11-71-0011-06a Hús Kjartans Bjarnasonar Hlíðarvegur 1. En þar fór snjóflóð að kvöldi 14. febrúar, sem skall á suðurhluta hússins inn um stofuglugga þar, gegn um húsið og út um gættir að austan. Húsmóðirin varð fyrir flóðinu en var fljótlega bjargað að manni sínum og uppkomnum syni þeirra, sem voru staddir á öðrum stað í húsinu.
11-71-0011-07a Kindakofi sem feðgarnir Friðrik Stefánsson og Stefán Friðriksson áttu úti á Hvanneyrarströnd, en snjóflóð féll í gegn um húsið að morgni 15. febrúar og drap 11 kindur, sama flóð tók sumarbústað norðar á ströndinni og færði alla leið niður í fjöru.
11-71-0011-08a Kindakofinn á Hvanneyrarströnd
11-71-0011-09a Kindakofinn á Hvanneyrarströnd séð í norður
11-71-0012-15 Þarna er verið að byrgja glugga á Fossvegi, til varnar hugsanlegu flóði á þeim slóðum