11-68-0113-28 Undirbúningur að söltun um borð í Haferninum. Þórður Þórðarson söltunarmeistari (smyrjari) og Ágrímur Björnsson vélstjóri losa í síldartunni.
11-68-0114-32 Jón Rögnvaldsson matsveinn og Guðmundur Björnsson, háseti- dælumaður á bak við hann, Sigurjón Kjartansson háseti - dælumaður og Sigurður Jónsson háseti -bátsmaður á bak við hann.
11-68-0114-35 kappsamir drengir
11-68-0114-36 Brytinn Sverrir Torfason og Jón Rögnvaldsson matsveinn
11-68-0123-24 1. vélstjóri Ólafur Sigurðsson og Guðmundur Björnsson við söltun aftur á skut.
11-68-0129-07 Þarna er verið að hífa hausaða og slógdregna síldina upp á bátadekk, þar sem síldinni var komið fyrir í tunnum. Þetta var erfitt verk fyrir þá sem lentu í því að hífa 20 kg föturnar upp á bátadekkið.
11-68-0129-08 Þarna eru vélstjórarnir Eiríkur þóroddson og Ólafur Sigurðsson ásamt smyrjara í vél, syni Ólafs að að hausskera
11-68-0129-09 Þarna hafa skipverjar af Ásbirni kastað netapoka fullum af síld í sjóinn, sem svo var hífaður um borð í Haförninn. Margar aðferðir voru prófaðar við "selflutninginn" og reyndist þessi sú besta.
11-68-0129-09 Þarna er netapokinn kominn um borð
11-68-0179-30 Uppi á bátadekki, Guðmundur Arason 1. stýrimaður og Salmann Kristjánsson
11-68-0179-31 Guðmundur, Ægir og Sigurjón
11-68-0180-35 Þessi var kallaður krani, þar sem hann virtist óþreytandi, þetta er Steindór Ólafsson háseti
11-68-0182-10 Oft voru menn þreyttir, hér eru þeir í pásu; Sigurður Jónsson, (man ekki nafnið) en fjarst situr Guðmundur Björnsson
11-68-0182-11 Sigurður Ásgrímsson, dagmaður í vél
11-68-0182-12 Sigurjón Kjartansson
11-68-0183-19 Svo þurfti að pækla síldina, en veltingur hafði góð áhrif á verkunina
11-68-0183-20 Ágrímur Björnsson, Steindór Ólafsson, Guðbrandur Sigþórsson, Sigurður Jónsson og ?
11-68-0183-22 Guðmundur Arason, fyrir miðju
11-68-0184-17 Sigurður Ásgrímsson og pækilmeistarinn Salmann Kristjánsson
11-68-0185-25 Sigurður Ólafsson smyrjari
11-68-0184-15 Páll Jónsson matsveinn að störfum í eldhúsinu