CD COP 02 0249. Vetrarbrautin, séð í suður
CD COP 02 0250 Veiðafæraverslun Sig Fanndal á vinstri hönd, mennirnir standa á gatnamótum Eyrargötu og Vetrarbrautar. Gamla Efnarannsókn SR (sem er löngu horfið) er á hægri hönd næst.
CD COP 02 0251 Lækjargata. Flest húsin hér eru horfin og önnur komin í staðinn. Það glittir í Hótel Læk hægra megin, sem hét þegar myndin var tekin Hótel Siglunes og 2 hús á Eyrargötu gatnamótum sem enn standa.
CD COP 02 0252 Eyrargatan, Eyrargata 16 (Svavar úrsmiður) til hægri.
CD COP 02 0253 Hafnarbryggjan og gamla Hafnarhúsið fyrir breytingu, en nú horfið.
CD COP 02 0255 Þetta eru gatnamót Aðalgötu og Lækjargötu, gamla Kaupfélagið við Suðurgötu fyrir miðju, kirkjan og "gamla hótelið" til hægri.
CD COP 02 0256 Ég er ekki viss um hvaða svæði þetta er. Þeir sem vita betur látið mig vita.