Eftirtaldir aðilar fengu styrk frá Menningarsjóði Sparisjóðs
Siglufjarðar þann 11. mars 2004.
Gallerí
Sigló
Hönnun á merki til að setja á minjagripi fyrir
Þjóðlagahátíð
Styrkur kr. 20.000
Arnfinna
Björnsdóttir
Er að vinna að uppsetningu á sýningu á myndum
sem tengjast síldarsöltun. Sýningin verður opnuð á 100 ára
afmæli síldarsöltunar á Siglufirði um Verslunarmannahelgina.
Styrkur kr. 20.000
Þórarinn
Hannesson
Er að vinna að útgáfu geisladisks í samvinnu við
aðra siglfirska tónlistamenn, Þórarinn gaf áður út geisladisk
árið 2001, um er að ræða frumsamin lög og textasmíðar
Styrkur kr. 20.000
Sigurður
Ægisson
Er að vinna að útgáfu geisladisks með nýjum
kirkjuskólalögum, þar sem mikil þörf er fyrir hjálpartæki í
barnastarfið, en engin endurnýjun hefur verið lengi.
Styrkur kr. 20.000
Siglfirðingafélagið
Hefur verið mikilvægur hlekkur milli
Siglufjarðar og brottfluttra Siglfirðinga, en félagið var
stofnað árið 1961. Félagið stendur fyrir hinum ýmsu uppákomum í
Reykjavík auk þess að koma að ýmsum menningarviðburðum tengdum
Siglufirði. Félagið gefur út fréttablað tvisvar á ári.
Styrkur kr. 50.000
Sögufélagið
Var stofnað árið 1943, en hefur ekki starfað
formlega síðan 1977. Í nóvember sl. ákvað hópur einstaklinga að
endurreisa félagið. Félagið mun gefa út rit í sumar sem
tileinkað yrði síldinni og stefnt er að árvissum ritum frá
félaginu.
Styrkur kr. 75.000
Vorboðarnir
Kór félags eldri borgara stendur fyrir kóramóti
eldri borgara á norðurlandi. Má vænta þess að 220-240 gestir
mæti til Siglufjarðar vegna þessa. Óskað er eftir styrk til að
mæta kostnaði vegna þessa
Styrkur kr. 75.000
Steingrímur Kristinsson
Stendur fyrir öflugri siglfirskri fréttasíðu,
þar geta Siglfirðingar og aðrir hvar sem þeir eru staddir í
heiminum vitað um allt sem er að gerast í mannlífinu á
Siglufirði. Óskað er eftir styrk vegna endurnýjunar á tölvu,-
og hugbúnað og kostnaðar vegna nettengingar og vefsvæðis
“Ljósmyndasafns Steingríms”
Styrkur kr. 100.000
Leikfélag
Siglufjarðar
Hefur látið skrifa fyrir sig leikverkið “Silfur
hafsins”, sem áætlað er að frumsýna 27. mars nk.. Höfundur
verksins er Ragnar Arnalds og Elías Þorvaldsson hefur samið
tónlistina.
Styrkur 150.000
Síldarminjasafnið
Hefur staðið fyrir stöðugri uppbyggingu
undanfarin ár og er það framtak lofsvert. Safnið stendur frammi
fyrir stórframkvæmdum og síðan hefur það verið valið til að
keppa fyrir Íslands hönd til Evrópsku safnaverðlaunanna sem fer
fram í Aþenu í Grikklandi í maí nk. Síldarminjasafnið hefur
ákveðið að taka þátt í þessari keppni fáist til þess
stuðningur. Styrkurinn kr. 170.000 er því tileinkaður þátttöku
í keppninni.
Hlöðver
Sigurðsson
Hefur undanfarin ár dvalið erlendis í námi.
Þarna er á ferð ein af okkar helstu vonum í óperusöng. Með
umsókn Hlöðvers fylgdu ótal meðmælabréf frá núverandi og
fyrrverandi kennurum, hérlendis og erlendis. Ljóst er að námið
er mjög dýrt. Eitt námskeiðanna sem Hlöðver stefnir að því að
sækja er “Il Bel Canto, opera singers course” næsta sumar, um er
að ræða 4-vikna námskeið í Verona á Ítalíu. Beinn kostnaður
vegna námskeiðsins er kr. 250.000. Ákveðið var að styrkja
Hlöðver vegna þessa námskeiðs með því að greiða það að fullu.
Styrkur kr. 250.000
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði
Verður haldin í fimmta sinn í júlí nk., ljóst er
að framtakið er glæsileg í alla staði og fjöldi innlendra og
erlendra listamanna koma við sögu. Kostnaður við hátíðin er
gríðarlegur, enda er í boði mjög vönduð dagskrá, sem einkennist
af metnaðarfullum áhuga þeirra er stýra henni.
Styrkur kr. 250.000
Herhúsfélagið
Var stofnað með það að markmiði að koma á
gestavinnustofu fyrir listamenn. Kostnaðaráætlun við
heildarverkið er um 9mkr. og hefur þegar tekist að afla 8mkr..
Áætlað er að uppbyggingu verði lokið í sumar og starfsemi geti
hafist. Ákveðið var að veita styrk til uppbyggingar að fjárhæð
kr. 300.000. |