|
.JPG)
Í
sumar munu tveir hópar á vegur sjálfboðaliða samtaka sem kalla sig
veraldarvini eða World Wide friends starfa við umhverfisverkefni í
Siglufirði. Fyrsti hópurinn muna koma 5 júlí og eru það um 12 manns og
sá seinni kemur um miðjan ágúst og telur tæplega 20 manns. Fyrsti
hópurinn mun starfa við að ganga frá lóðunum í Kringum Herhúsið og
Þjóðlagasetrið, einnig verða einhverjir við vinnu í Síldarminjasafninu
og sitthvað fleira er lýtur að fegrun bæjarins og þá í samvinnu við
Vinnuskóla Siglufjarðar.
Seinni hópurinn sem von er á um miðjan ágúst mun starfa í skógræktinni
við lagningu göngustíga,grisjun og gróðursetningu. Einnig er ráðgert að
stika gönguleið frá skíðasvæðinu og verður hópurinn væntanlega notaður í
það verkefni.
Veraldar vinir eru alþjóðleg samtök sem hafa það á stefnuskrá sinni að
stuðla að náttúruvernd og vináttu tengslum sjálfboða liða um allan heim.
Hver hópur mun starfa í tvær vikur og sjálfboðaliðarnir koma frá sex
þjóðlöndum.
Sumarið 2003 tóku veraldarvinir á móti sjö hópum enn í sumar er ráðgert
að hóparnir verði um 15 talsins hér á landi.
Sumarið 2003 voru neðantalin verkefni meðal þeirra sem samtökin unnu hér
á landi
Hreinsun stranda á Þórshöfn, endurbygging hleðslugarða á Akranesi,
aðstoð við framkvæmd bindismótsins í Galtalæk,stígagerð í Skaftafelli og
gróðursetning að Sólheimum í Grímsnesi.
Veraldarvinum er skaffað húsnæði og fæði meðan á vinnu þeirra stendur
yfir og munu þau félagasamtök sem hóparnir vinna fyrir taka þátt í
kostnaði vegna fæðis.
Tengiliðir hópsins hér eru:
Arnar H Jónsson
Hörður Júlíusson
Hálfdán ??
Guðrún Árnadóttir
Á neðri myndinni eru þrír Frakkar, sem heita; Greg Chandanson
- Anne Kervella og Yann Kerguntevil og Þau standa við Herhúsið. |