>>>>>>>>>>>

 




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Valdar glefsur frá lesendum sent í tölvupósti til birtingar, vegna umræðunnar um Héðinsfjarðargöng og fleiri málefni sem kunna að berast frá lesendum sem vita hvað þeir heita, fela ekki sjálfan sig á bak við einhver felunöfn. heldur standa sjálfir fyrir sínum skrifum.

Mér virðist lítill áhugi hjá mönnum að tala, en hvað um það,...

Í fyrsta lagi, það er endalaust gengið fram af manni með yfirlýsingum ráðherra og stjórnmálamanna ríkisstjórnarinnar. Það nýjasta er að Davíð varar við því að menn taki lán til að kaupa hlut í Landssímanum því hann er reiður yfir áhuga almennings á kaupunum. Hann vildi selja sínu fólki Landssímann.

Í öðru lagi, er að framsóknar alþingismaðurinn og Siglfirðingurinn Birkir Jón Jónsson þykist vera að verja "yfirmann" sinn og lýgur því að þjóðinni hjá Silfri Egils að hann þ.e. Halldór eigi aðeins 2.2% um 15 milljónir í fyrirtæki sínu Skinney-Þinganesi en á í raun sem nemur 45 milljónum og fyrirtækið á svo hlut í öðru fyrirtæki sem svo á stærsta hlutann í VÍS um einn þriðja hlut. Þetta með VÍS hlutinn er "manngildi ofar auðgildi" þeirra framsóknarmanna (eða hitt þó heldur).

Í þriðja lagi, þá hvetur sami framsóknar alþingismaðurinn Birkir Jón Jónsson "yfirmann" sinn til að nota part af sölu Landssímans til að byggja Sundabraut í Reykjavík en minnist ekki á okkar göng. Er Birkir að þóknast "yfirmanni" sínum til að tryggja sér frama í þessum pínulitla flokki þrátt fyrir að "yfirmaður" hans sé ekki forsætisráðherra í umboði Íslendinga. Hann virðist fremur kjósa Sundabrautina en Héðinsfjarðargöngin? Hvað finnst öðrum Siglfirðingum?

Með beztu kveðju,
Karl Jóhann Lilliendahl.

Efst á baugi í dag er - fyrir utan Héðinsfjarðargöngin - hvað almenningur er áhugasamur um kaupin á Landssímanum. Það er gott og vel og ætla ég bara rétt að vona að það gangi allt eftir. Agnes Bragadóttir á heiður skilið fyrir að vekja okkur Íslendinga sem höfum sofið allt of lengi út. En við megum heldur ekki gleyma okkar manni Orra Vigfússyni Siglfirðingi í húð og hár sem hefur tekið að sér að leiða allan hópinn í gegnum þetta söluferli með Agnesi. Það er líka ánægjulegt fyrir okkur Siglfirðinga að eiga Orra Vigfússon að, þegar svona stór mál koma upp sem varða okkur öll og vil ég senda honum og Agnesi, hamingjuóskir fyrir að koma þessu af stað.

En það er sorglegt hvað Halldór Ásgrímsson og Davíð Oddson eru "ánægðir" yfir þessum áhuga landa sinna. Já, ég sagði sorglegt. Þar á ég við að ég held því fram að Davíð og Halldór álíta okkur hin fífl vegna þess að í raun við höfum við eyðilagt plan þeirra og komið í veg fyrir að þeir geti leyft sínum hópum (sem þeir einir vita hverjir eru) að kaupa Landssímann. Auðvitað eru þeir ekki ánægðir yfir þessum áhuga heldur þykjast þeir bara vera það og halda að þeir geti sannfært okkur um það. Þetta ætti öllum að vera ljóst sem eru með hausinn í lagi.

Og aftur í göngin; þegar þau verða komin í gagnið verður okkur skemmt þegar við horfum upp á Gunnar Birgisson og alla þá sem á móti göngunum voru, keyra í gegnum þau "með veggjum" af skömmustuleg heitum.

Með beztu kveðju,

Karl Jóhann Lilliendahl.

Frá Karl Jóhann Lilliendahl frá Siglufirði, búsettur í Reykjavík.

Fyrst vil ég gera þá menn sorgmædda sem eru á móti Héðinsfjarðargöngunum með því að tilkynna þeim, að sem betur fer koma göngin fyrr heldur en síðar.

Það er með ólíkindum að menn skuli gera svo lítið úr sjálfum sér að þora ekki að gefa upp fullt nafn hvort sem þeir eru með eða á móti Héðinsfjarðargöngunum. Hvað veldur því að menn fela sig inn í skáp skjálfandi af hræðslu í stað þess að koma heiðarlega fram? Hvað veldur því að menn skjálfa af hræðslu við að búa í lýð- og skoðanafrjálsu landi?

Og enn spyr ég: Þið sem eruð á móti þessum göngum; munuð þið nota þau þegar þau verða orðin að veruleika? Eða, þegar þið komið til Siglufjarðar munuð þið þá snúa við frá Siglufirði og fara gömlu leiðina til Ólafsfjarðar? En þvílík nöfn sem menn kalla sig hræðslunnar vegna, "Milan", "Kdax", "Lite" osfrv osfrv og ég veit ekki hvað. Einn (aðeins einn) kemur þó heiðarlega fram hér þ.e. Eiríkur St Eiríksson. En, mun hann líka snúa við eða "skammast sín" fyrir að keyra í gegnum Héðinsfjarðargöngin?  

Ég hef aldrei vitað aðra eins aumingja og þessa menn sem skrifa hér felugreinar og þora ekki "að láta sjá sig".

Ég lét mig hafa það að skrá mig hér inn til þess eins að geta svarað fyrir mig, þetta gengur alveg fram af mér hvað menn eru virkilega svona hræddir.

Með beztu kveðju,  Karl Jóhann Lilliendahl Siglfirðingur í húð og hár.

Netf.: hagbokhald@hive.is
 

From: Hermann Einarsson [he@srv.is]
Sent: 15. apríl 2005 14:52
To: Steingrímur Kristinsson
Subject: FW: Samgönguáætlun

Sæll Steingrímur.

Ég vildi láta þig sjá að það þegja ekki allir sem á Siglufirði búa vegna ummæla Gunnars Birgissonar, hvort sem að þetta er rétt eða rangt að segja sig úr flokknum veit ég ekki en ég veit þó að það fór allt í gang á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins eftir þennan tölvupóst minn.

Og var mér sagt að þar innandyra væru menn ekki sáttir við Gunnar.

Ég er alveg klár á því að maðurinn veit ekkert hvað hann er að tala um, eftir að hafa hlustað á hann á Talstöðinni í fyrradag. 

Ég legg til að bæjarstjórn Siglufjarðar bjóði þessum alþingismanni “verktaka” til Siglufjarðar sem allra first, því nauðsynlegt er að víkka hans sjóndeildarhring.

Gaman væri að koma af stað umræðu um þessi mál á heimasíðu þinni. 

Með kveðju

Hermann Einarsson.


From: Hermann Einarsson
Sent: 13. apríl 2005 12:04
To: 'gunnb@althingi.is'
Subject: FW: Samgönguáætlun

Sæll Gunnar.

Vegna ummæla þinna á Alþingi í gær þá einfaldlega get ég ekki setið aðgerðalaus.

Þar af leiðandi sendi ég eftirfarandi póst á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í morgun.“
============

Sæl Bryndís.

Vinsamlegast skráið mig úr Sjálfstæðisflokknum nú þegar. 

Ástæðan er einfaldlega sú að ég get ekki verið í sama flokki og Gunnar Birgisson.  

Ummæli Birgis Gunnarssonar á Alþingi í gær varðandi samgöngumál fannst mér fyrir neðan allar hellur, maður sem er búin að mjólka kúnna með sitt fyrirtæki í vegamálum um land allt undanfarin ár. Maður hlýtur að velta því fyrir sér hvort að þetta tengist eitthvað þeim málum að maðurinn er að taka við bæjarstjóra starfinu í Kópavogi á næstu dögum.” 

Gunnar önnur eins hentistefna hélt ég að einungis Ragnar Reykás stundaði, þú sem ert búinn að mata krókinn á vegaframkvæmdum undanfarin ár á landsbyggðinni. 

 Verkfræðingur hjá Norðurverki 1977 og Hönnun hf 1979-1980. Verkfræðingur og framkvæmdastjóri Gunnars og Guðmundar hf 1980-1994 og Klæðningar ehf síðan 1986.

Varðandi skiptingu höfuðborgarsvæðis landsbyggðar, ég flutti til Siglufjarðar fyrir rúmu ári síðan og bjó þar áður í Rvík í fjögur ár, ég gat ekki séð annað en að framkvæmdir á vegum ríkis(vegagerðar) væru töluvert meiri en t.d. á Siglufirði t.d. mislæg gatnamót frá Stekkjarbakka/Smiðjuveg mislæg gatnamót Nýbýlaveg/Breiðholtsbraut... svo eitthvað sé nefnt.. 

Og svona til fróðleiks fyrir þig og er þetta tekið af heimasíðu X-D

 Undanfarin átta ár hafa einkennst af bjartsýni, framförum og bættum hag þjóðarinnar. Öflugt atvinnulíf hefur lagt grunninn að blómlegu mannlífi og sókn á flestum sviðum þjóðlífsins. Styrk stjórn landsmála hefur leitt af sér lengsta samfellda skeið vaxandi kaupmáttar og hagsældar í Íslandssögunni og tekist hefur að tryggja efnahagslegan stöðugleika. Á grundvelli þessa og í ljósi hins mikla hagvaxtar sem framundan er skapast þjóðinni nú ótal tækifæri til að sækja fram til aukinnar velmegunar og enn betri lífskjara.

Slík framþróun er forsenda þess að tryggja megi næga atvinnu, stöðugt verðlag, efla velferðarkerfið og treysta stoðir þess. Ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks vill enn bæta þjónustu í heilbrigðiskerfinu og auka skilvirkni í einstökum þáttum þess. Haldið verður áfram uppbyggingu í menntakerfinu með það að markmiði að Íslendingar skipi sér enn sem fyrr á bekk meðal fremstu þjóða heims.

Áhersla verður lögð á samheldni þjóðarinnar, víðtækt samráð við aðila vinnumarkaðarins og samvinnu dreifbýlis og þéttbýlis um efnahagslegan stöðugleika svo markmið um frekari framfarir, uppbyggingu atvinnulífs, bættar samgöngur, menntun og öryggi borgaranna náist.

Ég vona að þú sjáir að þér og hugsir málið uppá nýtt. Það er búið að ákveða þessi jarðgöng og er alveg ljóst að þú breytir engu þar um.

Með kveðju.

Hermann Einarsson

Innkaupastjóri

Logistic manager

SR-Byggingavörur

Sími 467-1559

580 Siglufirði

www.srv.is