Miðvikudaginn 18. maí kl. 20.00 er á Kaffi Torgi í
Siglufirði boðað til framhaldsstofnfundar félagsins Ný sókn á
Norðurlandi.
Tilgangur félagsins er stuðla að uppbyggingu stóriðju á Norðurlandi og
að vatns- og gufuafl á Norðurlandi verði nýtt og beislað í því skyni.
Félagið leggur höfuðáherslu á að kynna kosti Eyjafjarðar sem heppilegs
staðar fyrir stóriðju. Tilgangi sínum hyggst félagið ná með því að
standa fyrir opinni umræðu um málið og með útgáfu á kynningarefni.
Dagskrá:
-
Setning, gerð
grein fyrir tildrögum að stofnun félagsins.
Ásgeir Magnússon forstöðumaður
Skrifstofu atvinnulífsins á Norðurlandi
-
Hverju skiptir
samstaða heimamanna.
Baldur Dýrfjörð starfsmannastjóri
FSA
-
Áhrif
stórframkvæmda á íbúaþróun
Jón Þorvaldur Heiðarsson
sérfræðingur hjá RHA
-
Þýðing stóriðju
fyrir atvinnulíf í Eyjafirði.
Magnús Þór Ásgeirsson
framkvæmdastjóri AFE
-
Efnahagsleg áhrif
stóriðju.
Bjarni Már Gylfason hagfræðingur
Samtaka iðnaðarins
-
Álver er góður
vinnustaður.
Hrannar Pétursson
upplýsingafulltrúi ALCAN í Straumsvík.
-
Félagið stofnað.
Samþykktir þess bornar upp til
samþykktar og kosin stjórn.
Félagið er öllum opið og er allt
áhugfólk um uppbyggingu atvinnulífs á Norðurlandi er hvatt til að mæta á
fundinn og taka þátt í stofnun félagsins.
|