|
Þriðjudagur 14. júní 2005
Eins og sést hér fyrir
neðan þá óskaði ég aðstoðar lesenda
minna til að fjárfesta í veðurstöð. Árangurinn var mjög góður, en stöðin
upp komin; það er stöðin sjálf með tilheyrandi, efni, framlag og
sjálfboðavinna má má meta sem 3/4 af kostnaðar, sem alls var um 140
þúsund krónur.
Restina réði ég vel við, en enn er eftir að kaupa tengi og hugbúnaðinn
til að koma upplýsingunum lifandi beint á síðuna, þannig að hægt verði að
skoða á netinu um ástand líðandi stundar, þær fjölmörgu upplýsingar sem stöðin
býður upp á. Það mál verður bráðlega í höfn.
En nú er annað mál komið í gang
ekki síður áhugavert.
En eftir hvatningu góðra manna hefi ég ákveðið að kaupa vandaða
vefmyndavél, og er vinna við það verkefni á fullu meðal annars er verið
að semja um það mál við erlendan aðila.
Myndavélin hefur verið keypt, og allur undirbúningur á lokastigi -- nema
búið er að bíða yfir 10 daga eftir ADSL tengingu fyrir vélina hjá
símanum. (1. september 2005)
Mjög margir hafa hvatt mig í orði, tölvupósti og í "Umræðunni"
Og einnig hefur mér borist góður styrkur vegna þessara kaupa.
Það eru eftirtaldir aðilar:
Baldvin Einarsson
Box ehf
Erla Bjartmarz
Geirlaug Helgadóttir
Guðmundur Albertsson
Hinrik Aðalsteinsson
Katrín Sif Andersen
Kristján Sigtryggsson
Leó R Ólason
Merkismenn ehf
Norðurfrakt ehf
Óskar Berg Elefsen
Róbert Guðfinnsson
Sigurður Stefán Sigurðsson
Sigurður Þór Bjarnason
Skarphéðinn Fannar Jónsson
Sparisjóður Siglufjarðar
Sturlaugur Kristjánsson
SR-Vélaverkstæði
Sveinn Þorsteinsson
Sölvar ehf (bensínstöðin)
Sæmundur Rúnar Þorgeirsson
Theódór Júlíusson
Tryggvi Örn Björnsson
Örlygur Kristfinnsson
Þorsteinn Sveinsson
Þórir Kristinn Þórisson
Verkalýðsfélagið Vaka
Vefmyndavélin kom í gagnið 16. september 2005: 
Allar upphæðir litlar sem stórar til þessa verkefnis eru vel þegnar.
Steingrímur Kristinsson
kt. 210234-4549 - Reikningur: 1102-26-1569
í Sparisjóðnum á Siglufirði.
Smá sýnishorn af því sem vélin getur boðið upp á
miðað við vera staðsett á hitaveitutanka
er hér á
Óskavélin
========================================
Mánudagur 30. maí 2005
VEÐURÁHUGAMENN og aðrir
lesendur HJÁLP -- Ég verð að játa
að ég er ekki einn í þeim hópi sem spái mikið í veðrið eða hlusta eða
horfi á veðurfregnir. En eins og allir sem heimsækja þessar síður mína
vita, þá eru þar daglegar fréttir og ljósmyndir sem tengjast veðrinu
eins og það er í hádeginu hverju sinni. Þessi þáttur var í upphafi
settur á síðuna eftir ósk brottfluttra Siglfirðinga, sem flestir hafa
svo sterkar taugar til fjarðarins okkar, að þeir fylgjast með ástandinu
heima og þar með veðrinu. Síðan bættist við mynd af einhverju húsi, sem
venjulega var tekin fyrir hádegið og sett við hlið “veðurmyndarinnar”
Nú upp á síðkastið hafa komið ábendingar um að gott væri
ef fleiri upplýsingar um veður kæmu fram á síðu minni, jafnhliða var
bent á að til væru sjálfvirkar veðurstöðvar sem sendi þráðlaust allar
mögulegar veðurfarsupplýsingar beint í tölvuherbergið á skjá sem þar
væri og einnig væri hægt að koma þessum upplýsingum beint á netið á síðu
minni.
Ég skrapp suður síðastliðinn föstudag, og eitt af erindi
mínu var að skoða fjölvirka veðurstöð sem vinur minn Baldvin Einarsson
hafði fundið fyrir mig. Þetta er veðurstöð af tegundinni Vantage Pro2
Plus, mjög fullkomin.
1.
Eifaldasta einingin er Veðurstöðin + móttökuskjár, þar sem allar
hugsanlegar upplýsingar um veður líðandi stundar kemur fram á.
(Veðurstöðin væri staðsett neðan við hús mitt)
2.
Hægt er að kaupa/tengja viðbótarbúnað, sem gerir kleift að skoða
allar þessar upplýsingar á vefsíðu.
3.
Við þann búnað er einnig hægt að tengja vefmyndavél og setja
lifandi myndir frá henni inn á sömu vefsíu.
Hluti 2 og 3 þarf að kaupa sérstaklega. Nú þegar hefi
ég ákveðið að fjárfesta í 1. áfanga, þó svo að fjárhagurinn leyfi það
tæpast. (þetta er dýr búnaður)
1. júní: Ég er búinn að kaupa stöðina,
1. áfanga. -- (tók lán fyrir henni) Undirbúningur vegna
masturs fyrir stöðina er þegar hafinn (2. júní, holan grafin)
En eftir hvatningu frá þeim sem þegar vita af þessum
hugleiðingum mínum, þá óska ég eftir stuðning frá veðuráhugafólki og
öðrum til þessara kaupa þennan búnað.
Hvort sá væntanlegi(?) stuðningur nægir til að kaupa 1.
áfanga, - eða jafnvel 2. og eða 3. verður að koma í ljós.
Hver þúsundkallinn frá einstaklingum eða fyrirækjum
hefur sitt gildi.
Máltækið segir: “Margt smátt gerir eitt stórt”
Hérna er tengill Sem segir frá
veðurstöðinni:
http://www.davisnet.com/weather/products/stations.asp
Íslensk einkaveðurstöð:
http://www.verksud.is/vedur/reynivellir-nu.cfm
- Sama tegund
Og hérna er
sýnishorn frá danskri vefsíðu sem notar samskonar búnað og ég hefi sagt
frá hér fyrir ofan.
http://www.mmc.dk/davis/vejret_paa_masnedoe/Current_Vantage_Pro.htm
Með vinsemd og
góðum tilgangi,
Steingrímur Kristinsson
kt. 210234-4549 - Reikningur: 1102-26-1569
í Sparisjóðnum á Siglufirði.
|