|
Fréttatilkynning send út þann 21. október 2005
Tengiliður
og nánari upplýsingar; Ómar Hauksson, atvinnuráðgjafi á Siglufirði, s.
460 5612 / 897 1935 tölvupóstur
omar@ssnv.is
Þann 4. nóvember 2005 standa
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra og Svæðisráð
Svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra fyrir málþingi um atvinnumál á
Norðurlandi vestra. Yfirskrift málþingsins er Norðurland vestra 2020 og
verður það haldið í Verinu, húsnæði Háskólans á Hólum á Sauðárkróki.
Málþingið stendur frá 10:30 til 17:00.
Á málþinginu verður reynt að
varpa ljósi á þróun atvinnulífs á Norðurlandi vestra síðustu fimmtán
árin og hvernig líklegt er að atvinnulíf muni þróast á næstu 15 árum, en
í tengslum við málþingið hefur verið gerð nokkuð umfangsmikil könnun á
framtíðarsýn atvinnurekenda á Norðurlandi vestra. Iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir hefur framsögu á málþinginu
en þennan dag mun ráðherra einnig tilnefna starfshóp til undirbúnings að
vaxtarsamningi fyrir Norðurlands vestra.
Á málþinginu verður reynt að
draga fram hvernig atvinnulíf hefur þróast á undanförnum árum, staða
atvinnulífs í dag verður skoðuð sérstaklega og reynt að skyggnast inn í
framtíðina með aðstoð atvinnurekenda og sérfræðinga á sviði atvinnu- og
menntamála. Yfirskrift málþingsins verður Norðurland vestra 2020, og
er hugmyndin að varpa ljósi á mögulega framtíð atvinnuveganna til þess
tíma.
Í raun má segja að málþinginu
sé ætlað að svara eftirfarandi þrem spurningum.
1 Hvernig hefur
atvinnulífið á Nv þróast síðustu 15 árin?
2 Hver er staða
atvinnulífsins í dag og hvaða kraftar verka á það?
3 Hvernig má búast
við að atvinnulífið verði á Nv eftir 15 ár?
Leitast verður við að svara
ofangreindum spurningum útfrá ólíkum forsendum og í anddyri
ráðstefnuhússins verður sett upp sýning, þar sem þróun atvinnumála á
Norðurlandi vestra í fortíð, nútíð og framtíð verður gerð skil. Kynntar
verða niðurstöður viðamikillar könnunar sem gerð var meðal
atvinnurekenda á Norðurlandi vestra í þeim tilgangi að varpa ljósi á
framtíðarsýn þeirra.
Erindi framsögumanna, sem eru
virtir fræðimenn og þátttakendur í Íslensku atvinnulífi, munu fjalla
m.a. um vaxtasamninga, samstarf atvinnurekenda, þróun mannfjölda,
uppbyggingu lítilla fyrirtækja, áhrif menntunar á menningu og atvinnulíf
ásamt mikilvægi jákvæðrar ímyndar fyrir Norðurland vestra. Að
fyrirlestrum loknum verða settir saman umræðuhópar sem ætlað er að ræða
nánar það sem fram kemur á málþinginu. Hverjum hópi er falið tiltekið
umfjöllunarefni tengt atvinnuþróun og er þeim ætlað að komast að
niðurstöðu um hvert sé æskilegt að stefna og hvaða leiðir séu vænlegar
til að ná árangri í atvinnuþróun Niðurstöður hópanna verða kynntar í
lok málþingsins.
Norðurland vestra 2020
Málþing um atvinnumál á
Norðurlandi vestra
Dagskrá
Tími:
Föstudaginn 4. nóvember 2005 kl. 10:30 – 17:00
Staðsetning:
Í
Verinu, húsnæði Háskólans á Hólum á Sauðárkróki
Málþingstjóri:
Vilhjálmur Egilsson
Sýning
á framtíðarsögum í opnu rými – vegvísar til
2020
Sýningin
opnar klukkan 9:30.
Fundarsetning:
Formaður
SSNV Ársæll Guðmundsson
10:30 – 10:40
Opnun
ráðstefnunnar
Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra
Ráðherra tilnefnir starfshóp til
undirbúnings vaxtarsamningi
10:40 – 11:15fyrir
Norðurland vestra
Vaxtarsamningar
og klasasamstarf
Elvar
Knútur Valsson, verkefnisstjóri hjá Impru
11:15 – 11:35
Hvernig atvinna verður stunduð á
Norðurlandi vestra eftir 15 ár?
11:35 – 11:55
Ásgeir
Jónsson, Lektor við Háskóla Íslands og
hagfræðingur við KB
banka
Umræður og fyrirspurnir
11:55 – 12:15
Matarhlé
Uppbygging lítilla fyrirtækja
Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs
13:00 – 13:20
Afl
menntunar í menningu og atvinnulífi
Skúli
Skúlason, rektor
Hólaskóla
13:20 – 13:40
Hverju
svaraði kötturinn Lísu í Undralandi?”
Kristín
Björnsdóttir, markaðsstjóri hjá FOCAL
13:40 – 14:00
Umræður og
fyrirspurnir
14:00 – 14:30
Kaffihlé
14:30 – 14:45
Umræðuhópar
14:45 – 16:00
Þátttakendum málþingsins er skipt í nokkra hópa. Hverjum
hópi er falið tiltekið umfjöllunarefni tengt atvinnuþróun og er hópunum
ætlað að komast að niðurstöðu um hvert sé æskilegt að stefna og hvaða
leiðir séu vænlegar til
árangurs.
Léttar
veitingar
16:00 – 17:00
Niðurstöður hópa kynntar í hvíta herberginu og heimasíða SSNV opnuð og
kynnt. 16:15
Málþingi slitið
17:00
|