|
Með kröfu
um staðsetningu flugvallar í Reykjavík.
ÁFRAM,
hagsmunasamtök íbúa í Dalvíkurbyggð, hafa nú hrundið af stað
undirskriftarsöfnun til að árétta þá hagsmuni sem í húfi eru fyrir allt
landsbyggðarfólk, þegar rætt er um flutning innanlandsflugs úr
Vatnsmýrinni. Sérstaklega er minnt á þá öryggishagsmuni sem tengjast
sjúkraflugi, þar sem stærstu sjúkrahús landsins eru aðeins steinsnar frá
Reykjavíkurflugvelli en þessi nálægð er ómetanleg þegar um bráðatilfelli
er að ræða. Auk þessa mun ferðatími almennra farþega til Reykjavíkur
tvöfaldast ef lenda þarf á Keflavíkurflugvelli og má ljóst vera hvert
óhagræði það verður fyrir alla hlutaðeigandi, þ.e. farþega, fyrirtæki og
stofnanir. Þess utan hefur verið bent á fleiri öryggisþætti tengda
flugvellinum, bæði fyrir borgarbúa og landsbyggðina alla.
Hagsmunasamtökin ÁFRAM óska eftir
því að félagasamtök hvar sem er á landinu, sem áhuga hafa á að beita sér
fyrir þessari undirskriftarsöfnun í sinni heimasveit eða bæ, hafi
samband við okkur á
afram@afram.is og munu samtökin halda skrá yfir það hverjir safna
hvar. Við leggjum áherslu á að margar hendur vinna létt verk og með góðu
skipulagi má vænta að vel muni til takast. Ætlunin er síðan að safna
öllum undirskriftarblöðunum á einn stað og því óskast þau send að söfnun
lokinni, eða fyrir 1. desember n.k. til:
Hagsmunasamtökin ÁFRAM
621, Dalvíkurbyggð
Þá verður fjöldi undirskrifta
talinn, og þær síðan afhentar samgönguráðherra fyrir hönd
ríkisstjórnarinnar, sem og afrit borgarstjóranum í Reykjavík fyrir hönd
borgarstjórnar, í byrjun desember. Almenningi gefst kostur á að fylgjast
með fréttum af gangi mála, og e.t.v. taka þátt í umræðum um þau á
vefsíðu okkar; afram.is. Við skorum á almenning, hvar sem er á landinu,
að taka þátt í þessu með okkur og sýna fram á að ekki kemur til greina
að færa völlinn út fyrir borgarmörkin.
Stjórn hagsmunasamtakanna ÁFRAM. |