|
Eini kvenhöfundurinn í
Eurovisionkeppninni í ár!!

Bryndís Sunna Valdimarsdóttir keppir viđ karlmennina
á úrslitakvöldinu í Söngvakeppni sjónvarpsins 2006. Lag hennar
Hjartaţrá sem Sigurjón Brink flytur ţann 18. febrúar er eina lagiđ í
úrslitum sem samiđ er af konu.
Hin 35 ára gamla Bryndís er
ekki óţekkt í tónlistarheiminum. Hún á fjölbreyttan feril ađ baki bćđi
sem lagahöfundur, flytjandi og útgáfustjóri.
Bryndís lćrđi söng og nam píanóleik hjá
Tónlistarskóla Rangćinga, á árunum 1981-1985. . Ţá var hún í námi í
tónvinnslu hjá Ţorvaldi Bjarna áriđ 2005. Hún tók ţátt í fyrstu
söngvakeppni Sjónvarpsins í ţćttinum Á tali hjá Hemma Gunn.
Hún vann í
dćgurlagakeppni á Sauđárkróki áriđ 2004 međ lagi sínu “Sumar í
hjarta” í flutningi Heiđu í Idol.
Sama ár komust tvö af lögum
hennar í keppni um ţjóđhátíđarlag Vestamannaeyja. Annađ ţeirra “Međ
ţér” lenti í öđru sćti í flutningi Cecilíu Magnúsdóttur söngkonunnar
í Saga Klass.
´Sumarnćtur” heitir lagiđ sem
komst í úrslit í keppni um ljósanćturlagiđ í Reykjanesbć 2004.
Rakel María Axeldóttir flutti ţađ fyrir hana.
Hún á skemmtilegt lag á disknum
“Uppáhaldsljóđin okkar”, sem kom út fyrir síđustu jól. Ţar eru lög
ýmissa höfunda viđ ljóđ Ţórarins Eldjárns. Lagiđ hennar var valiđ viđ
ljóđiđ “Grannmeti og átvextir”. Regína Ósk flutti lagiđ á disknum.
Hún sá um útgáfu á geisladisknum
Ástartöfrar áriđ 1996 ţar sem lög föđur hennar voru flutt af fjölda
listamanna. Titillagiđ söng hún sjálf.
Bryndís tók ţátt í sýningunni
Bítlaárin sem gekk í tvö ár á Hótel Íslandi. Ţá var hún í
hljómsveitinni 8villt, sem fór vítt og breitt um landiđ í fimm
ár.
|