Ég skrapp inn í Héðinsfjarðargöng til að fylgjast þar með
gangi mála þar. (6. október 2010)
Allt er þar í góðum farvegi, malbikunarframkvæmdir farna að nálgast lokaáfanga.
Byrjað var fimmtudaginn 26. Ágúst að malbika nýjan veg Ólafsfjarðarmegin, síðan
var hafist handa við þar sem frá var horfið inni í göngunum Ólafsfjarðarmegin um
það bil 4 km frá gangnamunnanum og haldið til Ólafsfjarðar hægt og sígandi, en
lagt er í gangnagólfið þvert yfir með tveim malbikunarvélum.
Stuttu eftir hádegið er ljósmyndarinn mætti, voru að mati hans um 2,5 km. eftir
að munnanum (gróf áætlun).
Það er fyrirtækið Hlaðbær sem sér um malbikunina. Rafverktakinn Rafmenn er með
fjölda manns við að setja upp ljósabúnaðinn í göngunum og fleira og að
sjálfsögðu er starfsmenn Háfells á fullu við ýmsa vinnu við frágang og snyrtingu
umhverfisins. Meðal annars, bæði í Ólafsfirði. Héðinsfirði og Siglufirði við að
helluleggja útsýnisafdrep á stöðunum og fleira.
Áætlanir eru uppi um opnun ganganna um mánaðarmótin
næstkomandi og sjálf opnunarvígslan er áætluð 2. október nk.
Myndirnar hér eru örlítið móskulegar, þar sem
malbikunargufa og útblástur tækja á staðnum var nokkur, þrátt fyrir öfluga viftu
sem var til staðar, en nánast logn var úti og enginn trekkur þess vegna.