2006-03-04-023 |

|
Á myndinni eru:
Sverrir Júlíusson - Sverrir
Bergsson (Seigla ehf.) Andri Þór Gunnarsson
(brautryðjandi á Íslandi
í þessari aðferð við smíði úr trefjaplasti hann er
sonur Gunnars Árnasonar) -
og Salmann Kristjánsson.
Smá fróðleikskorn tengt Andra: Ingibjörg
Sigfúsdóttir (saumakona) og Árni Jóhannsson
(gjaldkeri hjá fógeta)
þau bjuggu að Túngötu 27 neðri hæð, Þau áttu saman
Gunnar Árnason og Önnu Sigríði Árnadóttur.
Ingibjörg amma átti áður Sigfús Agnar Sveinsson og
Sverri Sveinsson (pabba).
Agnar bróðir pabba bjó alla tíð á Sauðárkróki, en
kom reglulega til Siglufjarðar með bát sinn Blátind
SK, sem nú er varðveittur í Vestmannaeyjum.
Blátindur var alla tíð tekinn í slipp á Siglufirði,
trúi ég að það hafi átt þátt í því hve vel hann
entist, vinnubrögð þeirra Þórarins, Jóns á Nesi,
Bigga Guðlaugs ofl. í slippnum voru annáluð.
kær kveðja Árni Sverrisson. |
|