2005-07-09-045
2005-07-09-045
Í takt við lífið - Vertu þú sjálfur
Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi
Stjórnandi: Skúli Ragnar Skúlason
Meðleikarar: Bryndís Bragadóttir og Ragnar Knútsson

Lestu meira neðar á síðunni
Í takt við lífið / Vertu þú sjálfur
Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi var stofnuð árið 1994. Síðastliðin 3 ár hefur hún þó verið skipuð núverandi meðlimum sem eru 15 stúlkur á aldrinum 11 til 17 ára. Þær eru allar í klassísku fiðlunámi en til að létta yfirbragðið er náminu skipt í tvennt, í hið hefðbundna klassíska nám og frjálsari fiðluleik.

Síðastliðin 3 ár hefur hópurinn verið með þrenna mismunandi tónleika/sýningar í gangi. Sú fyrsta hét " Nótt Dagur Nótt " sem fjallaði um ljós og myrkur. Næsta verkefni var unnið út frá dæmisögunni " Síðasta Blómið " eftir James Thurber í þýðingu Magnúsar Ásgeirssonar en þar var stríð og friður aðal viðfangsefnið. Tónleikarnir sem hópurinn verður með á Þjóðlagahátíðinni heita " Í takt við lífið - Vertu þú sjálfur " . Þessi sýning byggir á ljóði Höllu Jónsdóttur "Í takt við lífið". Við það bættist svo hugmyndin um að vera þú sjálfur. Fjallað er um mikilvægi þess að vera það sem maður er, hvorki meira né minna og vera sáttur við sjálfan sig.

Verkefni sveitarinnar eru ekki bara sett upp sem tónleikar, heldur sem heilsteypt sýning þar sem samspil fiðlu, söngs, talkórs og mynda eða leikmuna fær að njóta sín. Gengið er út frá ákveðnu þema með upphafi hápunkti og endi. Dagskráin á þessum tónleikum er mest írsk og skosk þjóðlagatónlist og með ljóðum og textum í tengslum við fyrrgreint þema.

Hljómsveitin hefur fengið mikið lof fyrir fallegan fiðluleik, söng og textaflutning og vakið mikla athygli fyrir nýja tegund tónleikaforms. Þjóðlagasveitin hefur gefið út tvo geisladiska : "Síðasta Blómið" og "Í takt við lífið / Vertu þú sjálfur ".

Skúli Ragnar Skúlason stjórnar Þjóðlagasveit Tónlistarskólans á Akranesi. Hann er tónlistarmenntaður en var einnig í listaskóla í 4 ár á Englandi þar sem hann lærði leiklist og „Speechformation“ sem segja má að snúist um listrænan flutning texta með áherslu á hljóð, öndun og takt. „Með þessari vinnu hef ég verið að brjóta upp hið hefðbundna kennsluform í tónlist og blanda öðrum listgreinum inn í námið. Hér er ég að blanda saman ljóðlistinni við tónlistina og sýna fram á skyldleikann milli þessara tveggja greina. Tónlistarflutningurinn er mjög nýstárlegur þar sem nemendur mínir koma fram á öðruvísi hátt en venja er til þess að sýna það sem þeir hafa lært. Þetta hefur orðið til þess að auðveldara hefur verið að fá nemendurna til að halda áfram listnáminu því eins og oft vill gerast á unglingsárunum þá detta nemendur úr náminu.“