|
|
|
|
| Malarastúlkan fagra eftir Franz Schubert Lagaflokkurinn Malarastúlkan fagra eftir Franz Schubert er meðal fegurstu verka rómantíska tímabilsins í tónlist. Ljóðin orti Peter Müller. Þar greinir frá malarastrák sem fellir hug til heimasætunnar, malarastúlkunnar fögru. Hann gerir hosur sínar grænar fyrir henni en stúlkan vill heldur njóta samvista við veiðimanninn sem lítur við og við í heimsókn. Malarastrákurinn heitir stúlkunni eilífri tryggð í ljóðum sínum en svo fer að hann kýs að leggjast til svefns undir spegli myllulækjarins. Guðmundur Hansen, fyrrv. skólastjóri í Kópavogi, þýddi ljóðin á íslensku í samvinnu við Gunnstein Ólafsson og verður þýðingin frumflutt á þjóðlagahátíðinni á Siglufirði. Hlöðver Sigurðsson tenór er einn efnilegasti lýríski tenór sem við Íslendingar eigum um þessar mundir. Hann er fæddur og alinn upp á Siglufirði og stundaði söngnám hjá Antoníu Hevesi. Að loknu námi hjá henni lá leiðin til Guildhall School of Music and Drama í London og síðan í tónlistarháskólann Mozarteum í Salzburg í Austurríki þar sem hann stundar nú nám. Hlöðver hefur tekið þátt í margvíslegum óperuuppfærslum í skólanum, svo sem í Brúðkaupi Fígarós eftir Mozart. Antonía Hevesi er fædd og uppalin í Ungverjalandi. Hún var áratug organisti og tónlistarkennari á Siglufirði en gerðist síðan organisti við Hafnarfjarðarkirkju. Antonía er undirleikari við LHÍ og stjórnar fjölbreyttri hádegistónleikaröð í Hafnarborg. |