2005-07-09-167
2005-07-09-167
Grasaleit og matargerð
Kennari: Hildur Hákonardóttir

Hildur Hákonardóttir lærði myndvefnað og starfaði jafnframt við Myndlista- og handíðaskólann í Reykjavík og Byggða- og listasafn Árnesinga. Hún ólst upp á Bústaðavegsholtinu þar sem foreldrar hennar voru frumkvöðlar í ræktun. Hún lærði snemma að meta það sem landið gaf af sér og eftir að hún flutti í Ölfusið árið 1980 hefur hún ræktað tré og grænmeti og týnt grös til heimilisnota. Hún hefur haldið námskeið í Grænu smiðjunni um þetta efni, við Endurmenntunardeild HÍ og í Skotlandi. Um sumarmál 2005 hyggst hún gefa út bók sem mun bera nafnið Ætigarðurinn allt árið eða Handbók grasnytjungsins. Á námskeiðinu á Siglufirði mun hún ganga til grasa með nemendum sínum og sýna þeim hvernig nýta má gróður jarðar við matseld.