Að segja
sögur
Kennarar: Ingi Hans Jónsson og
Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Hæfileikinn til að segja sögur,
leynist í okkur öllum. Á námskeiðinu
virkjum við þennan hæfileika og
fetum okkur áfram á sagnaslóðinni.
Við skoðum efniviðinn, þ.e. sögurnar
sjálfar – það að velja sögu og
endurskapa sögu. Einnig söfnum við
ýmsu í verkfærakistu sagnamannsins
sem hann getur beitt til glæða
sögurnar sínar lífi. Á námskeiðinu
verður stuðst við sagnahandbók úr
Evrópuverkefninu Storytelling
Renaissance.
Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr.
Hannesdóttir hafa undanfarin ár
fengist við sagnamennsku og komið
fram á sagnakvöldum hér heima og
erlendis.
|