Rímnakveðskapur
Kennari: Steindór Andersen
Á námskeiðinu kynnti Steindór
Andersen kvæðalagasjóð
Kvæðamannafélagsins Iðunnar. Notast
var við nýútkomna bók Silfurplötur
Iðunnar, en þar getur að heyra 200
lög sem tekin voru upp á árunum
1935-36 en komu út haustið 2004 á
nótum ásamt upptökum og ítarlegum
skýringum.
Steindór Andersen er löngu
orðinn landskunnur fyrir
rímnakveðskap sinn. Hann hefur
einnig haldið þessari fornu tegund
tónlistar á lofti erlendis. Naxos
gaf út kvæðasöng hans á geisladiski
og nýlega kvað hann inn Úlfhamsrímu
fyrir útgáfufyrirtækið Smekkleysu.
Þátttakendum býðst að kaupa bókina
Silfurplötur Iðunnar á forlagsverði
hjá kennaranum, Steindóri Andersen.
|