Hreyfileikir
og rytmaspuni
Kennari: Kristín Valsdóttir
Hvernig getum við búið til tónlist
úr sjálfum okkur með rödd, klappi,
stappi og kroppaklappi (bodypercussion)?
Á námskeiði Kristínar Valsdóttur
vvoru ýmsir möguleikar kannaðir í
rytma, hreyfileikjum og spuna.
Þjóðlögum og þulum er umbreytt í
rytma- og hljóðverk. Námskeiðið var
opið öllum en sérstaklega er það
hugsað fyrir kennara og aðra sem
vinna með börnum.
Kristín
Valsdóttir er ættuð frá Siglufirði.
Hún er tónmenntakennari og stundaði
framhaldsnám við Carl Orff-skólann í
Salzburg. Kristín Valsdóttir hefur
verið ódeig við að fara óhefðbundnar
leiðir í tónlistarkennslu og kynnt
nýstárlegar aðferðir við að glæða
sköpunargleði nemenda og kennara í
tónmenntakennslu.