2005-07-09-244
2005-07-09-244
Tyrknesk tónlist fyrir tónlistarnema
Kennari: Hadji Tekbilek, Tyrklandi. Aðstoðarmenn: Steingrímur Guðmundsson og Sigtryggur Baldursson.

Á námskeiðinu var kennd þjóðleg tyrknesk tónlist. Þátttakendur léku á hefðbundin eigin hljóðfæri. Námskeiðinu lauk með stuttum tónleikum á uppskeruhátíðinni.
Hadji Tekbilek er í fremstu röð tyrkneskra tónlistarmanna. Hann er jafnvígur á djass sem þjóðlega tyrkneska tónlist. Á Þjóðlagahátíðinni á Siglufirði mun hann veita tónlistarnemum á aldrinum 15-25 ára innsýn í tyrkneska tónlist og njóta aðstoðar Steingríms Guðmundssonar og Sigtryggs Baldurssonar, en saman mynda þeir tvíeykið Steintrygg.
____________
Þarna fór eitthvað úrskeiðis í hljómflutningsgræjunum, kallað var eftir aðstoð 9 ára gamallar stúlku sem var fljót að kippa græjunum í lag.