Myndir: Fyrsta loðnan | Mengun

>>>>>>>>>>> Mengun

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Öll frásögnin frá 24. júní 2003

Meira-(1): Strax sama dag, 24.6. um kvöldið, hófst bræðsla hjá verksmiðjunni. Daginn eftir, tóku menn eftir heljarmiklum "mengunar" fláka á sjónum, stutt frá verksmiðjunni, og sumir fóru að undrast, hversvegna hinar hefðbundnu og sjálfskipuðu klögurófur, hefðu ekki kallað á heilbrigðisnefnd og fulltrúa til að hella sér yfir, Andersen verksmiðjustjóra og Jónasson efnafræðing og gæðastjóra", bræðslunnar, S.V.N á Sigló.

En S.V.N. mönnum létti fljótlega, er þeir sáu að "mengunin" sem fuglinn buslaði í, yfir hinum kærkomna hátíðarmat, kom ekki frá bræðslunni, heldur frá Primex, rækjuverksmiðjunni.

Vonandi er það ekki skýringin á því af hverju klögurófurnar voru ekki búnar að láta í sér heyra, en það hefur nokkuð oft borið á, allmikilli "mengun" sem komið hefur frá Pólar og Primex að undanförnu, stórir flákar hafa dreift sér um fjörðinn og meðfram vesturströndinni (ég hefi séð það út um gluggann minn heima)- og ekkert orðið vart umræðu, né opinberra klögumála, eins og nokkuð oft varð hér áður, þegar SR átti í hlut, oft yfir "meinlausari mengun".

Annars, talandi um þessa "mengun", (innan gæsalappa)  þá er þetta ákaflega saklaus mengun sem brotnar niður í náttúrunni, eftir að fuglinn hefur hakkað í sig megninu af þessu floti, en fuglinum stafar engin hætta af þessu, frekar en 95% af því sem sloppið hefur í sjóinn frá SR á undanförnum árum, jafnvel áratugum.

Aftur á móti ef slys verða, við missi á lýsismenguðu efni, þá gæti það skaðað. En það hefur verið lögð afar ströng áhersla á, hjá SR, nú S.V.N., að að fyrirbyggja slys af því tagi, og að þess er vel gætt að slíkt hendi ekki, bæði vegna fjárhagslegs skaða sem það gæti valdið og ekki síður vegna mengunar sem af slíku hlýst.

Klögurófur síðustu ára, eru ef til vill búnar að átta sig á því að "peningarnir" sem við lifum á og fyrir, er ekki aflað í Kringlunni eða Smáralind, heldur í sjáfarútvegsfyrirtækjunum allt í kringum landið - og þeir sem ekki þola að finna lyktina af þessum afurðum okkar ættu að huga að brottflutningi frá sjáfarplássunum og upp í sveit, því þeir eiga enga samleið með okkur hinum sem vita hvaðan peningarnir koma og sættum okkur við hið óumflýjanlega.