Lífið í Júní 2003 | Lífið í Júlí 2003 | Lífið í Ágúst 2003 | Lífið í September 2003 | Lífið í Október 2003 | Lífið í Nóv. 2003 | Lífið í Des 2003 | Aðsend ljóð og vísur | Nýfæddir Siglfirðingar | Afmælisbörn 2003 | Aðsent efni, fréttir ofl. | Aðsendar myndir | Bátar og skip 2003 | Aflasíður | Veðrið 2003

>>>>>>>>>>> Aðsend ljóð og vísur

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Tveir náungar, sem báðir eiga hund - og fara gjarnan með þá í göngutúr á ströndina. Þeir eru báðir hagmæltir, og senda stundum hvor öðrum vísu, þetta eru þeir Baldur Þór Bóasson og Sigurður Friðriksson. Ég komst yfir nað "nýjasta" frá þeim, og er það hér fyrir neðan, 2 stk.

Ennþá virðist, kallinn kúl
konu sinni, fengur
bráðgreindur og bjútifúl
og bragðar það, ekki lengur. --- Baldur
Alla tíð frá æsku var
ekki byggt á sandi
maðurinn eins og múví-star
mágúll sjarmerandi.    Sigurður

Hér eru frumsamin og eða áður óbirt ljóð og vísur, send hingað með leyfi höfundar. (og eða ókunnir höfundar.)

Og mjög gamalt efni (um 50 ára) sé það skondið og gott, má einnig fylgja.

Siglufjörður.
Eitt er það sem ávallt skín
efst í huga mínum.
Að ég megi á fjöllin þín
einn horfa af grundum þínum.

M.P

Mjóstræti 2 Siglufirði. Pálshús byggt árið 1927.
Hús var byggt sem hér er enn
án herlegheita og prjáli.
Við það unnu verkamenn
velunnarar Páli.

M.P.

 

Þessar vísur hér fyrir neðan, skrifaðar með bláu letri eru allar tekna "af " borði sem staðsett er, norðan við skiltið sem er við innkeyrsluna í bæinn.  Þar sem númer (n) er við vísu, þá kom sú vísa í þeirri röð á borðið, sem númerin vísa til og seinna númer, einskonar svar við fyrri vísunni. Aðrar án númers eru stakar.  "Ókunnir" höfundar.

(1)

Ofsa er fagur vor fjörður

fallega að guði gjörður

Útsýni breitt

og ei skemmir neitt

hann Sigurður sundlaugarvörður

(2)

Siglufjörður er sælunnar staður

og saklaust náungans blaður

Hef þó heiður að verja,

í þitt höfuð skalt berja .

Ég er Friðriksson forstöðu maður

(3)

Þessi vísa það var og

þrætu góður skóli

Þú ert fyrir titla-tog

en tekur illa hóli.

Nú er lognið um firði og flóa

fuglarnir tísta í móa

Hér er æskunnar glóð

atvinna góð

og rafveitustjórinn að róa.

(1)

Á glæpaþróun vil marka mín spor

mun það skilja frelsari vor

Er með krimmana á kláru

kæri Sigmar og Báru

Ég er löggunnar labrador

Rafveitustjórinn má róa,
með réttu um firði og flóa.
Því kallinn er klár,
þó kosninga fár.
Þá kemur það ekki við bóa.

Sendi þessa vísu til gamans vona að það særi engan.
Höf: Þorsteinn Sveinsson   ( 8. ágúst 2003)

(2)

Á lögreglunni léttvæg sýn

lýsir huga þínum

Þú skalt ekki gera grín

að "góðkunningjum" mínum

Þó alls, ekki ábata skili

að borað sé í bili

Aumingja háttur

einn er þó sáttur

bóndinn á Bjarna-gili

"Á Alþingi"
Ætlun þeirra ágæt var
efndir stóðust minna
Ofborgaðir andskotar
eru þar að vinna.

"Nýi bíllinn prestsins"
Þekkir hvorki vol né víl
vinur fugla og rebba
Ekur nú á bláum bíl
bónuðum af Stebba
Las ég þessi ljúfu ljóð
og langar bara að segja.
Hann vantar skáldablóð
og er því best að þegja.

.

Um bæinn þær renna í röðum
rollurnar frá Brúnastöðum.
Þeim er bannað á blóta,
burtu reka, á skjóta,
eða lasta í landsmála-blöðum
Fyrst að engan fengum við snjóinn
og fáir nýttu sér berjamóinn.
Er það staðfesta sterk
hjá Steina verk
að fara með fjallið í sjóinn.
Sent: 4. ágúst Kom Heim í sól og logni 2 september 2002.
Sól og blíða signir fjörð
sælureitinn góða heima.
Enginn staður er á jörð
yndislegri um að dreyma.

Kveðja,  Gamlinginn að Mjóstræti 2.

Hér hvílir,
sig kona er kvaldi sinn mann,
nú Kölski er sáttur við frúna.
Gleði þess einstæða heimsótti hann
og hamingjusamur er núna.
      (þessi limra er á grjóti, við borðið)

Sent 4.. ágúst  Eftir að hafa séð á fréttir á stöð 2, þar sem Vestmannaeyjar voru no.1 og Árni J. sem var óhress yfir því að hafa ekki fengið leyfi að fara úr fangelsi til að syngja á fylliríshátíð í Vestmannaeyjum, og ekki var var numið staðar við Siglufjörð, þegar talað var um útihátíðar vítt um landið, þá varð þessi vísa til.
Þó Siglufjörður sé hér ekki í fréttum
þá stendur hann uppúr, ef að vel er gáð.
Því bæjarlífið þar er með bragi réttum
þar blómstrar allt vel, sem að til er sáð.
            Magnús Pálsson, Mjóstræti 2 Siglufirði. (Pálshús)