Það er ófrávíkjanleg regla, þeirra björgunarsveitarmanna: Allir skulu vera í bjargvestum, þrátt fyrir þá logn, blíðu og 18 °C hita, sem var á þessum tíma.
Auðvitað var myndasmiður í hópnum
Það verður örugglega enginn sjóveikur í þessari ferð, spegilsléttur sjórinn
Þetta er skemman "hans" Gunna, þar sem fákarnir voru geymdir á meðan á ferðinni stóð, ca 6-8 tíma (stoppað í Héðinsfirði og farið í land) En athugið, þetta er á Siglufirði, og þrátt fyrir 35-40 miljóna verðmæti í Harley Davidson mótorhjólum, auk annars verðmætis, er engin þörf á að loka húsinu, á meðan eigandinn skrapp í Héðinsfjörð með góðu fólki.