Félag eldri borgarar, Siglufirði. Ferð um Snæfellsnes föstudaginn 22. ágúst til sunnudagsins 24 ágúst 2003.
Lagt var af stað kl. 8 föstudag22. ágúst frá Torginu og Skálarhlið.
Farið var í Hákarlaminjasafnið í Reykjaskóla og það skoðað. Farið var, sem leið lá um nýmalbikaða Bröttubrekku og til Borgarness. Þar tók Ragnar Olgeirsson á móti okkur í Hyrnunni og fór með okkur um Borgarnes, til Bændaskólans á Hvanneyri og næsta umhverfi og svo aftur til Borgarness.
Þaðan var farið til Gistihússins Langaholts (u.þ.b. kl.st. akstur frá Borganesi), en þar ráða ríkjum Svava Guðmundsdóttur og Símon Sigurmonsson. Langaholt er í Snæfellsbæ. Þar, var kvöldverður, gist um nóttin. Eftir morgunverð á laugardagsmorgni, var farið að Arnarstapa og Hellnum og drukkið kalli í Fjöruhúsinu Hellnum.
Í Grundarfirði var farið í Krákuna hjá Finna Friðfinns og Höllu Elimarsdóttur. Þar voru einnig Kristín og Selma systur Friðfinns og Guðni Gústafsson ásamt Jóhönnu systur sinni. Þetta fólk ásamt fleirum tók svo vel á móti okkur að lengi verður í minnum haft. Jensína I. Guðmundsdóttir kona Guðna sýndi okkur svo kirkjuna í Grundarfirði. Um miðjan laugardaginn tók svo Njáll Gunnarsson við, en Elís Guðjónsson fylgdi okkur eftir í sínum bíl.
Þeir fóru með fólkið í Bjarnarhöfn til Hildibrandar Bjarnasonar, sem sýndi okkur bænahús eitt lítið og var það stórkostleg upplifun, svo ekki sé nú meira sagt. Annaðhvort var þarna yfirþyrmandi hátíðleiki eða menn veinuðu af hlátri. Guðjón sonur hans sá svo um að útbýta hákarli, harðfiski, reyktum rauðmaga ofl.
Síðan var haldið “heim” í Langaholt í kvöldverð. Eftir það hvíldust menn, tóku í spil eða dönsuðu við harmonikkuundirleik Stefáns Þorlákssonar og Aðalheiðar Rögnvaldsdóttur, en hún spilaði einnig undir við fjöldasöng á Krákunni. Sem sagt, við vorum í góðu yfirlæti í Langaholti.
Farið var nýjan veg svokallaða Vatnaleið í Langaholt, og eftir að hafa kvatt Svövu og Símon var lagt af stað til Stykkishólms sunnudagsmorguninn kl 10. Þar tók Einar Karlsson á móti okkur, en María formaður Félags eldri borgara þar, gat ekki mætt. Einar byrjaði á að sýna okkur kirkjuna. Síðan fór hann með liðið um gamla bæinn og sagði sögu bæjarins. Félag eldri borgara á staðnum bauð svo í súpu, kaffi og konfekt, en Guðni Friðriksson tók á móti hópnum á veitingastaðnum Fimm fiskum, sem er í eigu Sumarliða sonar Fanneyjar Sumarliðadóttur og Aldísar. Eftir að hafa þakkað enn einu sinni frábærar móttökur í þessari ferð var svo farið heimleiðis um Skógarströnd og Laxárdalsheiði og komið heim til Siglufjarðar kl rúmlega 8 um sunnudagskvöldið.
Ferðin tókst í alla staði mjög vel og er öllum, sem greiddu för þökkuð liðveislan. Og þar á Þór Jónsson ferðafélagi, stóran þátt, af öðrum ólöstuðum - og ekki má gleyma bílstjóranum okkar Jóni, sem lumaði á ýmsum góðum fróðleik, auk góða skapinu. Kærar þakkir til ykkar allra, fyrir að hafa mátt vera með.
Þórhallur Daníelsson
|