70 tonna jarðýta að renna í "hlað" í Siglufjarðarskarði.
Brotinn vagn. Vel sést hversu boginn grindin er, sem var enn meiri á meðam ýtan var á honum
Þarna á ýtan rétt um 50 metra eftir í há Skarðið. Á mörgum stöðum á leiðinni var rétt pláss fyrir ýtuna á veginum, fjallshlíðin annars vegar og snarbratt hinsvegar
Ýtusrjórinn, --- Árni Pálmason
Þarna leggur ýtan á stað niður brattan til Siglufjarðar, eftir að ýtustjórinn hafði aðeins teygt úr sér
Þarna er flutningabíllinn, við Torgið, með ýtuna á tengivagni.
Og þarna er ýtan komin á áfangastað, og heldur upp fjallið, þar sem tönnin ofl. bíður eftir henni.
Þarna sést hvernig "rafsuður" á tengivagninum hafa brostið
Það er greinilegt, að annað hvort hefur gleymst að sjóða þarna, eða hreinlega viðkomandi suðumaður ekki starfi sínu vaxinn
Hér sést greinilega að ekki er botnsoðið, eins og ætti að vera, og eða hreinlega rangur suðuþráður (og maður) Þessi vagn er alveg nýr, smíðaður á Íslandi. Ekki nógu gott eftirlit með smíðinni, (segi ég) --- "Góð hönnun, góður vagn" segir bílstjórinn, "ef þessu óhappi er sleppt."
Ragnar Steingrímsson, - Guðni Jónsson, - og Árni Pálmason
Guðni Jónsson, innan við tönninni á "stóru" ýtunni sinni
Tönnin komin á stóru ýtuna, og verið að koma plógtönninni fyrir, að aftan.
Stærðarmunur er talsverður á stóru ýtunni hans Árna og "stóru" ýtunni hans Guðna. Og ekki fer mikið fyrirlitla bílnum mínum, í samanburðinum.