Veðrið á Sigló Hitamælirinn er staðsettur í tveggja metra hæð, í skugga frá sólu á húsinu Hvanneyrarbraut 80. Vindhraði er áætlaður, m.v. sjálfvirkan vindmælir í botni fjarðarins. Myndin hverju sinni er tekin til suðurs, frá svölum Hvanneyrarbrautar 80.
Myndin er tekin á óti sterku sólarljósi, og ekki hirt um að leiðrétta lýsinguna á myndini.
Í morgun hefur verið til skiptis glaðasólsky og slydda á milli.
Næturfrost var í nótt, og frosnar rúður á bílum, eftir rigninguna kvöldið áður, hiti í Bakka kl. 9 í morgun var 1,6 °C en í suðurbænum 0,6 °C - Klaka húð á götum sem olli hálku, en hvarf fljótlega er sólin náði að skýna yfir fjöllin, en hún efur látið sjá sig annað slagið í morgun.
Myndin er tekin á "móti sólu" , en sólin náði annað slagið að skýna á milli hnoðrana. Snjófölin sem náði byggð í nótt og í morgun, er öll farinn, aðeins örlar fyrir "lit" í fjöllunum, nú í hádeginu.