Sjóðvélin með tilheyrandi, kom í seinna lagi, til verslunarinnar, en þar er um fullkomna "strikamerkingarvél" að ræða. En þarna eru þjónustuaðili "sjóðvélarinnar" að kenna Guðmundi verslunarstjóra og Ólafi framkvæmdastjóra á gripinn, rétt fyrir opnun í dag.
Þarna er Óli á táknrænan hátt að opna verslunina formlega með því að hleypa gestunum að kræsingunum.
Óskar Elefsen, verkstæðisformaður, á afmæli í dag og fékk hann það hlutverk að "afmeyja" tertuna.
Þær sáyu um veitingarnar, eiginkona Óla framkvæmdastjóra, Sigurbjörg Björnsdóttir og eiginkona Óskars verstæðisformanns SR-Vélaverkstæðis, Helga Óladóttir
Mikið úrval af jólaskrauti, og konurnar fjölmentu þar
Guðmundur hafði nóg að gera við afgreiðsluna.
Þessir þrír, Úlfur, Heimir og Guðmundur hafa haft nóg að gera að undanförnu við vörumerkingar og að koma vörunum fyrir.
Stefán Bjarnason, skipaverkfræðingur
Þórður G Andersen og Bigir Guðlaugsson
Óskar og Ólafur Kárason byggingameistari
Þorleifur Halldórsson og Stefán Bjarnason
Þessi hnáta heitir Arna Sverrisdóttir, hún er þarna í fangi móður sinnar.
Þeir sem stjórna: Óskar Berg Elefsen verkstæðisformaður, Ólafur Sigurðsson framkvæmdastjóri og Guðmundur Einarsson verslunarstjóri.