|
Gísli Súrsson og Stolnar stundir
Síðasta vetrardag, miðvikudaginn
20. apríl nk. kl. 20.00, ætla bræðurnir Þórarinn og Elfar Logi
Hannessynir að vera með uppákomu í Möguleikhúsinu við Hlemm. Þar mun
Elfar Logi sýna einleik sinn um Gísla Súrsson, í leikstjórn Jóns St.
Kristjánssonar, og Þórarinn mun kynna lög af nýjum geisladisk sem hann
var að senda frá sér og ber nafnið Stolnar stundir.
Einleikurinn um Gísla Súrsson var
frumsýndur 18. febrúar á Þingeyri og hefur síðan verið sýndur víða um
Vestfirði, alls 19 sýningar. Leikurinn hefur fengið mjög góða dóma
jafnt hjá gagnrýnendum sem hinum almenna áhorfenda.
Diskur Þórarins Stolnar stundir kom
út í lok mars og er þetta annar diskur hans með frumsömdu efni en sá
fyrri hét Má ég kitla þig? og kom út 2001. Hlaut sá diskur góða dóma og
viðtökur.
Aðgangseyrir að þessari tvöföldu
skemmtun er kr. 1.500 og er hægt að panta miða hjá miðasölu
Möguleikhússins í síma 562-5060 eða á netfanginu
komedia@komedia.is
Athugið að sætafjöldi er
takmarkaður.
Þórarinn mun einnig vera með diskinn til sölu að skemmtun lokinni og
eins er hægt að panta hann á netfanginu
hafnargata22@simnet.is |