>>>>>>>>>>>

 




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Veðurstöðin í Bakka -- upplýsingar
Veðurstöðin í Bakka er í einkaeigu, rekin í tengslum við Siglfirska fréttavefinn Lífið á Sigló.

Við kaup og uppsetningu stöðvarinna naut undirritaður aðstoðar eftirtalinna aðila. (e. stafrófsröð)
Baldvin Einarsson - Bás ehf - Eico ehf - Guðmundur Albertsson - Guðrún Árnadóttir - Brimbær - Ingibjörg Sigurjónsdóttir - Jóhann Örn Bjarnason - Karl Líndal Baldursson - KLM sport ehf - Óskar Berg Elefsen - SR-Vélaverkstæði - Sveinn Þorsteinsson - Sölvi Sölvason - Theodór Kristinn Ottósson - Torgið ehf - Tryggvi Örn Björnsson - Þorsteinn Sveinsson -  Veður ehf
Veðurstöðin í Bakka var tekin í gagnið Þriðjudaginn 7. júní 2005 Í fyrstu voru upplýsingarnar færðar handvirkt í hádeginu á hverjum degi - en síðar voru, eins og nú, allar upplýsingar sem frá henni koma sýndar á rauntíma á vefnum Lífið á Sigló. Uppfært sjálfvirkt á 10 mínútna fresti  --  Hitatölur eru nákvæmar miðað við staðsetninguna, en getur á góðum degi sýnt lægra hitastig í Bakka heldur en oft kemur fyrir inni í bænum þar sem skjól er fyrir hafgolu og vindum, þannig að hitumunur getur orðið samkvæmt reynslu, allt að 5 °C + Einnig getur munað á hitastigi í svipuðum mæli að vetri til, þegar til dæmis 1-4 °C frost á liðinni inn í botn fjarðarins, þá er stundum frostlaust í Bakka. - það hafa blautar og frosnar götur borið greinileg merki.
Sólin nær ekki til að trufla hitamælirinn í Bakka, vegna sérstaks útbúnaðar og sýnir hann því raunhita staðarins; í Bakka.

Staðsetning stöðvarinnar er á Siglufirði: 66°09 N 586 - 018°54 V 199 sem er bletturinn sem sést á myndinni, og rauða örin bendir á.
Húsið mitt er til hægri á myndinni og útsýni til suðurs, með Mjölhús Síldarvinnslunnar (áður SR) fyrir miðju. Húsið mitt er fyrsta húsið á vinstri hönd við innkeyrsluna inn í bæinn, Hvanneyrarbraut 80

Steingrímur Kristinsson