10 myndir teknar trésmíðaverkstæði Berg
hf. 11. febrúar 2004
(00005292)
Trésmíðaverkstæðið Berg hf. er gamalt og rótgróið fyrirtæki á Siglufirði. Það sama má segja um verkstæðishúsið sjálft, sem þjónað hefur mörgum hlutverkum, áður en það varð að tréverkstæðinu Berg. Þetta hús hefur áður hýst Skrifstofu Sveins Ben, skrifstofur SR, verbúð, íbúðarhús og sjálfsagt ýmislegt fleira, en þá var húsið staðsett á lóð S.R.P. Síðar flutt á núverandi stað við Norðurgötu, er Berg keypti það.
Þetta er Gísli Antonsson að vinna við smíði á eldhúsinnréttingu.
Þórarinn Vilbergsson, sem nú stundar aðeins tómstundastarf sitt heima, en er þarna að búa í haginn fyrir enn eitt verkefnið, og nýtur aðstöðunnar á gamla vinnustaðnum sínum.
Þetta er Sverrir Jónsson smiður, nýkominn í hús til að fá sér kaffi
Hallgrímur Vilhelhelmsson, einnig að koma í kaffi.
Það hitti svo vel á að Skúli Jónsson átti afmæli í dag, þarna er hann að skera afmælisbrauðið, sem hann bíður uppá í tilefni af deginum. Einn félagi hans lét svo orð falla. "Að þetta væri svo mikið og rausnalegt, að hann hlyti að hafa keypt þetta á raðgreiðslum"
Þarna eru Þorsteinn Jóhannsson, Skúli Jónsson og Þórarinn Vilbergsson
Skúli Þórarinn og Sverrir
Birgir Guðlaugsson og Gísli Antonsson
Björn Jónsson, og Hallgrímur Vilhelmsson
.