"15.
febrúar 2004" Ein gömul: Ég þekki aðeins son minn
Kristinn, á þessari mynd, hann er drengurinn sem hallar sér að skúrnum,
í dökku peysunni og gráu buxunum,
14. febrúar 2004
PÓLAR SIGLIR, áður Siglir - kom inn til Siglufjarðar rúmlega 10 í
morgun. Þetta verksmiðjuskip, er að hluta til í eigu Gunnars Júlíussonar
og & -og að hluta til, Grænlenskra aðila- og er skipið skráð í
Grænlandi, Nuuk, Skipið var að koma frá Póllandi með viðkomu í Danmörk,
eftir ýmsar lagfæringar, sandblásturs, málningu ofl.
14.
febrúar 2004 Þessa mynd sendi Halldóra Elíasdóttir á "vegum"
Verkalýðsfélagsins Vöku.og Heilbrigðisstofnunarinnar, það er viðkomandi
hóps. "Við hættum að reykja í fyrra og áttum 1
árs reyklaust afmæli 5.febrúar sl. Við fórum út að borða að því tilefni
á Kaffi Torg og viljum koma þakklæti til þeirra í leiðinni,fyrir
frábæran mat. Hjúkrunarfræðingurinn Sóley Reynisdóttir sá um námskeiðið
og hjálpaði okkur að sigrast á fíkninni og er hún hetjan okkar. Myndin
er mjög óskýr því miður, eitthvað hefur klikkað. Þeir sem eru
reyklausir og eru á myndinni eru: Sóley Reynisdóttir
hjúkrunarfræðingur, Elías Þorvaldsson, Sigurbjörg Gunnólfsdóttir, Sóley
Erlendsdóttir, Linda Ásgeirsdóttir, Lilja Guðmundsdóttir, Ólafur
Kárason, á myndina vantar Halldóru Elíasdóttur (mig), þar sem að ég var
að taka myndina. (E.S. frá SK, ég gat vart lagað myndina betur,
vona þetta dugi)
"14.
febrúar 2004" Ein gömul: Gísli Antonsson, Sigurður
Sigurðsson, Axel Schiöth og Jón Sæmundsson
13.
febrúar 2004 Slysavarnarfélagið
Landsbjörg - Björgunarsveitin Strákar Siglufirði. Níu ára krökkum og
kennurum Barnaskólans voru í morgun afhent námsgögn, sem Landsbjörg
kallar "Lífsleikninámsefni" Og er ætlað til fræðslu fyrir börnin
varðandi slysavarnir almennt, ýmsar fyrirbyggjandi aðgerðir og raunar
allt sem þessi mál varðar. Námsefninu fylgir einnig DVD diskar, með
myndrænum upplýsingum fyrir börnin. Sveinn Björnsson og Guðbjörg
Jóhannsdóttir, fulltrúar áðurnefndra félagasamtaka, afhentu kennurum
og nemendum þessi gögn.
"13.
febrúar 2004" Ein gömul: Magnús Guðjónsson í
skut- Aðalbjörn Rögnvaldsson í stafni, hina yngri þekki ég ekki.- Tekið
á sjómannadegi, 1960-70 ?
12 febrúar 2004
Mér hefur greinilega orðið á, varðandi það að alhæfa
kaffistofur starfsmanna hins opinbera, hvað varðar meðlætið, en ég veit
fyrir víst um nokkrar "opinberar" starfsmannakaffistofur þar sem "við"
greiðum meðlætið ofan í starfsmennina, en samkvæmt ábendingum þá gildir
það ekki almennt, og hér kemur ein ábendingin í biðbót: "Að gefnu
tilefni viljum við hérna á Sýsluskrifstofunni taka fram að við borgum í
kaffisjóð, sem fer til kaupa á meðlæti með kaffinu. Að vísu greiðir "
hið opinbera" kaffið en meðlætið er á okkar kostnað en ekki ykkar".
Kveðja G.
12. febrúar 2004
Ég heimsótti gamla vinnufélaga á
"SR-lóðinni" í morgun, þetta nafn "SR-lóðin" mun lengi lifa. Áður var
talað um að fara niður í "ríki" þegar menn heimsóttu SR, það máltæki er
að mestu, (ekki alveg) horfið, eins og sumir segja enn; "ég þarf að
skreppa í "ríkið"" eða upp í "ríki" þegar þeir ætla að versla við
áfengisverslunina, sem í dag kallast "Vínbúð". En hvað um það, ég talaði
við vini mína og tók nokkrar myndir.
12.
febrúar 2004 Fyrrverandi
slökkviliðsstjóri var kvaddur í gærkveldi, af settum bæjarstjóra Þórir
Hákonarsyni, og slökkviliðsmönnum, með smáveislu og veglegri bókagjöf
frá Siglufjarðarkaupstað, með þakklæti fyrir vel unnin störf undanfarna
áratugi. Ég mætti á staðinn og tók myndir við þetta tækifæri. ---
Smelltu, á myndina til að skoða.
12
febrúar 2004 Vinsældir afmælisfregna á
"Lífið á Sigló", virðast fara aukandi, ef miðað er við þann fjölda
upplýsinga sem ég fæ, um afmælisdaga og myndsendingar því samfara, en um
95% þeirra birtinga sem koma á síðu minni koma í gegn um tölvupóst.
Stundum á ég sjálfur "betri" mynd af afmælisbarninu en þeirri sem send
er, en einnig kemur fyrir að ég fæ jafnvel enga,-og á heldur enga
sjálfur. Þá fæ ég einnig talsverðan fjölda viðbragða um ánægju yfir
þessum þætti síðunnar.- Hvet ég því alla Siglfirðinga til þess að, ef
þeir vilja láta vita af afmæli vina og vandamanna, sendi til mín
upplýsingar í tíma, ásamt mynd.
11. febrúar 2004
(13:10) Máltækið segir, engin undantekning er til, án
undantekningar. Mér barst áðan smá athugasemd, sem kemur hér:
Vil ég hér með koma því á
framfæri að við starfsmenn á Bæjarskrifstofunum borgum kr. 2000 á mánuði
hver í kaffisjóð sem er til kaupa á meðlæti en Siglufjarðarkaupstaður
borgar kaffið sem við drekkum, því erum við EKKI að borða meðlæti á
kostnað ykkar hinna. Og einnig hefur sú hefð skapast á okkar vinnustað
að sá sem á afmæli kemur með tertur og/eða annað góðgæti með kaffinu.
H.M.
11.
febrúar 2004 Berg hf. Þangað kom ég í kaffitímanum í
morgun og smellti þar af nokkrum myndum. Ég hitti vel á, því þar átti
einn starfsmaðurinn afmæli, og því vel útilátið með kaffinu. En almennt
á vinnustöðum, þá njóta starfsmenn ekki þeirra sjálfsögðu fríðinda eins
og hjá hinu opinbera, sem fær frítt meðlæti á kostnað okkar hinna.- En
hefð hefur skapast hjá mörgum vinnustöðum á Siglufirði, að sá sem á
afmæli, komi með tertur, og eða annað góðgæti með kaffinu, á afmælisdegi
sínum. Smelltu á myndina.
11. febrúar 2004
Varðandi fréttina, er Gestur Hansson
fann dularfulla holu / hvelfingu, norðan og ofan Stóra bola, (sagt frá
hér neðar á síðunni) , þá fengu jarðfræðingar áhuga á málinu, og ég
beðinn að afla frekari upplýsinga. Niðurstaðan: "Ég er búinn að skoða
myndina. Það er útilokað að þetta sé jarðhiti svona hátt. Ég tel víst að
þetta sé trekkur og gróf urð undir, sama eðlis og frostgufur".
Kveðja, Kristján Sæm.
local.is
| 10/02/04 09:16 | Norðausturkjördæmi Kristján vill stórauka fjármagn til loðnurannsókna
Í máli Kristjáns L. Möller, þingmanns
Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi, á Alþingi í gær kom fram að hann
vill stórauka fjármagn til loðnurannsókna. „Það er dýrt spaug fyrir
íslenskt efnahagslíf ef gengið er á stofninn en það er líka dýrt að
veiða of lítið,“ sagði Kristján meðal annars. Ræðan öll
hér
10
.febrúar 2004 Þetta eru hinir
einu og sönnu "Rafbæingar", þeir, Guðmundur Lárusson, Freyr
Sigurðsson og Jóhannes Friðriksson. En þeir stofnuðu fyrirtækið Rafbær
sf. árið 1972
10
.febrúar 2004 Og þessa hitti ég á
förnum vegi, þar sem þeir voru að ræða um sín "uppáhaldsmál" það er;
kindur. En báðir hafa þeir í gegnum árin átt kindur, en nú er annar
þeirra, Hafsteinn Hólm (til hægri) eini rollubóndinn innanfjarðar á
Siglufirði, samkvæmt sérstakri undanþágu, en félagi hans Björn Ólafsson,
verður að láta sér nægja að hugsa til þeirra úr fjarlægð. Hafsteinn
lofaði að hóa í mig þegar burðurinn hæfist í vor, - og ég mun þá mæta
með myndavélina.
10
.febrúar 2004 Þessa brosmildu drengi, hitti ég í
kaffitímanum í morgun á Síldarminjasafninu, en þar vinna þeir að
undirbúningi á sýningu nýrra þátta á safninu, sem væntanlega verða
opnaðir í sumar komandi. Þetta eru Sveinn Þorsteinsson og Hafþór
Rósmundsson
10
.febrúar 2004 Ein gömul, mörg
andlit
9. febrúar 2004
Listinn yfir afreksfólkið í tilefni
veitingar Kiwanis á titlinum: Íþróttamaður ársins
2003, er á síðunni
Afreksfólk
Og kominn er texti við myndirnar (vantar þó nokkur nöfn)
9.
febrúar 2004 Gestur Hansson, er einn af þeim sem reglulega
fara á fjöllin hér í nágrenni, bæði á vélsleða sínum sem og tveimur
jafnfljótum.
Hann var á einum slíkum göngutúr í gærdag í sólinni norðan og ofan við
"Stóra bola" , er hann skyndilega féll niður úr snjónum, sem þarna var
tæpur metir að þykkt, svona fyrirbrygði eru ekki óalgeng, þar sem td.
lækir eru, en þarna voru engir lækir, og það sem vakti furðu Gests á
þessu atviki, var að á móti honum kom talsvert hitauppstreymi sem
greinilaga varða vart, þar sem á svæðinu þarna uppi var amk. -12°C
frost. Og þegar að var gáð var þarna einnig grænan gróður að finna.
Spurningin er: Hafa einhverjir skýringu á svona fyrirbrygði; stóru
holrúmi undir snjóskelinni, og hitauppstreymi sem að vísu, ekki var
finnanlegt eftir nokkra stund?
Er þarna einhver varmi í jörð á þessu svæði, sem dæmi eru til um hér
innanfjarðar, þó ekki sé svo hátt uppi. Eða spyrja menn í "gamansömum"
tóm er að koma eldgos !!!! Nei varla, en spurning hefur vaknað: Hver er
orsökin, hver getur svarað?
9. febrúar
2004
Íþróttamaður ársins á Siglufirði var kjörinn í
gærkveldi, ásamt stórum hópi íþróttamanna úr hinum ýmsu greinum íþrótta.
Titilinn Íþróttamaður ársins á Siglufirði í ár hlaut Salóme Rut
Kjartansdóttir. Smelltu á myndina og skoðaðu 32 myndir - en ég bíð
enn eftir textanum sem mun fylgja þeim