|
Síðastliðið sumar var unnið
við að endurnýja Gránugötuna, með skólplögnum, raflögnum osfv.
Framkvæmdin sjálf gekk eins og í sögu, enda vanir menn sem voru
verktakar, og verkið því vel unnið, - samkvæmt teikningum -
Þeir sem fara um þessa götu
eru mjög ánægðir, bæði gangandi og akandi, - gagnvart því sem þeir sjá.
En margar spurningar hafa vaknað, raunar heilu reyfararnir hafa verið
sagðir, um það sem er undir yfirborði götunnar, það er hið "nýstárlega"
(?) skólplagnakerfi, sem átti að útiloka árvisst rennsli til öfugrar
áttar í nokkrum kjöllurum húsa á Eirinni, það er þegar mjög stórstreymt
var.
Nú segja margir íbúar á
Eirinni mér, að nú þurfi ekki stórstreymi til, til að flæði upp um
kjallaraniðurföllin, það nægi röskleg rigning, eða hláka. Sjálfvirkar
dælur, sem sumir kjallaraeigendur hafa haft í áraraðir til taks þegar
stærsti straumur er af náttúrunnar hendi. Nú hafa sumar þessar dælur
ekki undan. Einn íbúinn sagði mér að, hann hefði haft 1,1/4" sjálfvirka
dælu til að grípa til við sérstakar aðstæður, en nú hefði sú dæla ekki
dugað og hann hefði keypt 1" dælu til viðbótar og- báðar rétt haft
undan. Annar fullyrðir við mig að það magn sem hann hefði einn daginn
þurft að dæla úr kjallara sínum, samsvaraði yfir 20 tonnum á sólarhring.
Dælubúnaður sá, sem tengdur
er holræsakerfinu, og átti að fara í gang er rennsli um kerfið ykist,
var í upphafi talinn af rafvirkjum sem tengdu hann of lítill- og einn
rafvirkinn taldi raunar að þar hefði greinilega orðið "kommu villa"
komman hefði færst aftar, í viðkomandi stærðartölu í útreikningunum.
Staðreyndin er sú að þetta
holræsakerfi er stórgallað, og gerir ekki það sem ráðmenn bæjarins
ætluðust til af þeirri verkfræðistofu, sem teiknaði kerfið. Fengu
hönnuðirnir, rangar forsendur sem þeir unnu eftir, eða eru þeir ekki
starfi sínu vaxnir?
Svör við þessu öllu, hvað
veldur, eru vel þegin til birtingar á vef mínum, ef það gætið "huggað"
þá sem orðið hafa fyrir tjóni og óþægindum, þar með talinn bæjarsjóð sem
orðið hefur að kosta til allmiklu vegna þessara eftirmála.
SK |