Lífið í feb. 1-8 2004 | Lífið í feb. 9-14 2004 | Lífið í feb 16-21 2004 | Lífið í feb 22-29 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í feb 22-29 2004

 

Til forsíðu
Til baka
JONNI SI 86
Skólplagnir
Viðbygging ofl.
Aðsent




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

29. febrúar 2004 Aðsent:  Blessaður Steingrímur, Gísli Níls heiti ég og er hjúkrunarfræðingar á Heilbrigðistofnun Siglufjarðar og bý á Hvanneyrarbraut 58. Ég sendi þér nokkra myndir sem ég tók af grönnum mínum úr verkamannabústaðnum nr.58 þ.e. af þeim Laugu úr Fljótunum og Önnu Hertervig ásamt vinkonum þeirra þegar þær voru að búa til sviðasultu á föstudaginn 27.febrúar handa hátíð eldri borgara í Skálarhlíð núna í dag.
Eins og þú sérð þá var mikil stemming í kringum þetta hjá þessu ekta Siglfirsku dömum og vinkonum þeirra. Því fannst mér að alveg tilvalið að senda þér þær á Siglfirsku ljósmyndasíðu þína.
Hinar dömurnar sem eru á myndunum eru Pálína (konan hans Hreinsa) og Guðný Friðfinnsdóttir og Jóhanna Vernharðsdóttir    Smelltu á myndina

29. febrúar 2004   Ekki er mikill snjór á Siglufirði, miðað við síðasta dag febrúar í ár. Hlíðin fyrir ofan bæinn nær snjólaus og auðar götur, myndin er tekin í hádeginu í dag.

29. febrúar 2004 Gæsapartí, var haldið á Kaffi Torg, í gærkveldi. Þar voru komnar saman vinkonur væntanlegrar brúður sem er María Númadóttir. Það lá vel á stúlkunum, sem allar eru úr Fljótum. Einn karlmaður var þarna í hópnum, en það var bílstjóri þeirra, sem átti að sjá um að allar kæmust þær heim af fjörinu loknu. Væntanlegur brúðgumi er Halldór Hálfdánsson, og hann var auðvitað víðsfjarri.
Á annarri myndinni sést María ein, með öll "vopnin" tilbúinn, svona til vonar og vara.

29. febrúar 2004 Ein Gömul: Þetta eru þeir Helgi Halsson, Einar Björnsson og Björn Þór Haraldsson, myndin er tekin á Seyðisfirði eða Reyðarfirði,um 1963-1965 (?)

28. febrúar 2004 - Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðstjóra, Ámunda Gunnarssyni, var mjög rólegt hjá Slökkviliði Siglufjarðar á síðastliðnu ári, 2003. Aðeins eitt brunaútkall, vegna sinubruna. Eitt útkall vegna bifreiðaslyss og eitt útkall vegna leka úr 20 tonna sýrutanka.

28. febrúar 2004 - Í gærkveldi 27. febrúar klukkan 19:03:25 snart þessi fallegi bátur, sjóinn í fyrsta sinn. En báturinn heitir JONNI SI 86 - 2599. - Eigandinn er Guðlaugur Oddsson. Báturinn er "plastbátur" skrokkurinn er smíðaður hjá Sigla ehf. En JE-Vélaverkstæði sá um alla aðra vinnu við bátinn.

28. febrúar 2004 - Ein gömul:   Guðmundur Guðmundsson, Jón Ágústsson og Guðmundur Baldvinsson.

Þau eiga afmæli í dag
   28. febrúar 2004

27. febrúar 2004  Síðastliðið sumar var unnið við að endurnýja Gránugötuna, með skólplögnum, raflögnum osfv. Framkvæmdin sjálf gekk eins og í sögu, enda vanir menn sem voru verktakar, og verkið því vel unnið, - samkvæmt teikningum -    Myndin sýnir dælubíl vera að dæla úr brunninum eða dælu "húsinu" sem tengt er holræsakerfinu í morgun, til að kanna hvað veldur því að afköst dælubúnaðar nú, eru komin niður í svipað rennsli og helt væri úr kaffibolla, eins og einn af þeim sem þarna standa sagði.   Villtu lesa meira?

27. febrúar 2004 Karlakór Siglufjarðar ásamt undirleikurum, fer nú um helgina á kóramót sem haldið verður á Hvammstanga.
Kórinn hefur æft af kappi að undanförnu undir stjórn Elíasar Þorvaldssonar, sem er stjórnandi kórsins.

27. febrúar 2004   Ein gömul, 1968. Um borði í Haferninum, áhöfnin saltar síld um borð fyrir eigin reikning, með leyfi útgerðarinnar. Guðmundur Björnsson, Jón Rögnvaldsson og Sigurjón Kjartansson.

26. febrúar 2004  Unnið er um þessar mundir að viðbyggingu, við Íþróttahöllina / Sundhöll. Rauða örin á þessari mynd bendir á staðinn þar sem að byggingunni er unnið. Verktakinn er Ólafur Kárason. Ég hitti á nokkra sem þar voru að vinna, í kaffitímanum í morgun. Þá tók ég einnig myndir hjá Olís og Rafbæ -  Smelltu á myndina til að skoða.

26. febrúar 2004  Ein gömul, 1967 - Þessir gleðigosar, voru skipverjar á síldar- og olíuflutningaskipinu  Haförninn. Þarna eru þeir klæddir druslum sem fengnir eru úr "tuskubölum" sem er úrkast frá saumastofum, - og selt til vinnustaða og skipa um allan heim. Þetta eru Snorri Jónsson rafvirki (nú fiskkaupandi, Vestmannaeyjum) og Valdimar Kristjánsson dælumaður (nú lögregluþjónn á Hólmavík)

25. febrúar 2004  Júlíus Júlíusson kennari, lést að á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 23. febrúar sl. Júlíus var rétt rúmlega 77 ára
 

25. febrúar 2004  Vegna nokkurra ábendinga og beiðnir, undanfarna mánuði, þá kemur ein viðbót við fréttaefni síðunnar, fyrir eru tengdar fréttir, fæðingar og afmæli, en tilmæli hafa komið um (einkum frá Íslendingum erlendis), að einnig verði birtar fréttir af andláti einstaklinga.
Þetta verður gert þannig, að mynd mun birtast af viðkomandi látnum Siglfirðingi, og ef einhver vill láta fylgja eftirmæli, og eða senda inn síðar, eftir að andlátsfrétt tilkynnist eða birtist, þá mun veitt pláss hér á síðunum fyrir viðkomandi. - Þá hafa einnig komið upp hugmyndir um birtingu á fregnum um trúlofanir og giftingar. Athugið: ekki er víst að ég eigi ljósmynd af viðkomandi, og er því æskilegt að ljósmynd fylgi, viðkomandi upplýsingum sem til mín berast.

25. febrúar 2004  Nýfæddur Siglfirðingur, lítil snót.
25. febrúar 2004    Ein gömul, frá Ísafold (Þráins)
25. febrúar 2004  Hún átti afmæli þann 24. febrúar sl.

25. febrúar 2004 þann 23. sl. sótti starfsmaður skíðasvæðisins í Skarðadal Hákon Antonsson bunka af svokölluðum CARVENG skíðum sem bærinn keypti fyrir svæðið, til útleigu þar. Úlfur Guðmundsson hjá SR-Byggingavörur afhenti skíðin, með viðhöfn. Hákon til vinstri, Úlfur til hægri.
Ljósmynd: Sveinn Þorsteinsson