|
Vor
í lofti?!?
Eitthvað voru skaparanum mislagðar hendur með veðrið
nýliðna helgi. Á meðan fresta varð atburðum í skíðabrekkunum fór fram
vormót hestamannafélagsins Glæsis á íþróttavellinum við Hólsá.
Um morguninn var völlurinn mokaður til að gera hann eins
keppnisfæran og mögulegt var miðað við aðstæður. Knapar og
keppnisstjórn funduðu svo eftir hádegið og voru sammála um að mótið færi
fram skv. áætlun. Veðurútlit um morguninn varð sennilega til þess að
þeir erlendir keppendur sem skráðir höfðu verið til leiks forfölluðust.
Dómarar voru þeir Símon Gestsson frá Barði og Sverrir
Jónsson heimamaður. Mótið hófst með að þulurinn og formaðurinn Hreinn
Júlíusson bauð knapa og áhorfendur velkomna á þetta stórmót. Áhorfendur
voru ekki margir og vindurinn feykti orðum þularins til og þegar þau
bárust yfir völlinn til knapanna sem biðu í ofvæni eftir að taka gæðinga
sína til kostanna þá hljómaði þetta eins og formaðurinn hefði boðið menn
velkomna á stormmót sem var sennilega nær sanni en stórmót. Keppni
hófst í barnaflokki, þar voru 4 keppendur sem allir stóðu sig með sóma,
röðuðust þeir þannig:
- Finnur Ingi Sölvason á Jarli
einkunn. 5,78
- Hilmar Snær Símonarson á Bassa
einkunn. 5,09
- Brynhildur Svava Ólafsdóttir á
Blesa einkunn 4,50
- Guðný Eygló Baldvinsdóttir á
Hrana einkunn. 3,75
Gaman verður að fylgjast með þessum keppendum í sumar
þegar keppni harðnar og bæði hestum og knöpum fer ört fram. Fleiri börn
eiga svo eftir að bætast við með hækkandi sól. Glæsismönnum finnst
sérstaklega ánægjulegt að fá svo sterka “nýliðun” í hestamennskuna.
Keppni í fjórgangi hófst eftir að brautin hafði verið
skafin. Þá biðu menn í ofvæni eftir að berja Harald og Ofsa augum eftir
frábært gengi þeirra undanfarið, hann brást okkur ekki en umræður voru
um að sennilega þyrfti að stofna sér atvinnumannadeild svo við hinir
ættum möguleika á einhverjum verðlaunum! Þó verður líklegt að teljast
að atvinnumannadeildin yrði fámenn! Ólafur meðeigandi í hestinum
fylgdist aðdáunaraugum með hestinum sínum og þykir líklegt að hann geri
þá kröfu að fá að ríða Ofsa hér eftir á öllum innanfélagsmótum en Halli
keppi á honum á landsvísu!
Annars urðu úrslit þessi:
- Ofsi frá Engimýri, knapi
Haraldur Marteinsson einkunn. 6,90
- Skorri frá Ragnheiðarstöðum,
knapi Katrín Haraldsdóttir einkunn 4,9
- Erill frá Miðsitju, knapi
Símon Símonarson einkunn 4,3
Strax að lokinni keppni í fjórgangi hófst keppni í
tölti. Þar var keppni jöfn og spennandi og til að skilja á milli sumra
sæta þurfti að nota svipaða nákvæmni og í Formula 1! Þar var eins og nú
er í enska boltanum að fallbaráttan var mest spennandi, þar börðust þeir
hart Rúnar Marteins á Mána og Sævaldur Gunnarsson á Daða. Rúnar hafði
betur með minnsta mun, og hlaut í einkunn 6,41 á meðan Sævaldur og Daði
hlutu 6,40. Þar eð munur varð svo lítill var farið fram á endurtalningu
líkt og í Florída um árið, en sú talning skilaði engu og breytti ekki
niðurstöðunni hér heldur.
Úrslit urðu:
- Fálki frá Ey, knapi Haraldur
Marteinsson, einkunn. 7,70
- Skorri frá Ragnheiðarstöðum,
knapi Katrín Haraldsdóttir einkunn. 7,10
- Erill frá Miðsitju, knapi
Símon Símonarson, einkunn. 6,82
Að móti loknu fengu hestamenn sér kaffi og kex í
félagsheimilinu Glæsibæ þar sem verðlaunaafhending fór fram. Þar
skipulögðu menn áframhaldandi mótahald, grillveislur, hestaferðir og
félagsreiðtúra, einnig voru lögð á ráðin um áframhaldandi þjálfun
keppnisgæðinga. Þar eru margir hestar að koma góðir fram á
sjónarsviðið, Sölvi Sölvason á góða hesta sem forfölluðust á síðustu
stundu á þessu móti en verða með næst. Héla frá Barði sú gráa sem Símon
ætlaði stóra hluti varð fyrir “heimilisofbeldi” í hesthúsinu rétt fyrir
mót. Svona vill stundum fara þegar saklaust sveitafólkið kemur í
sollinn á mölinni! Aðrir efnilegir kusu einnig að sitja hjá þetta mót,
t.d. Unnar og handbremsu-Jarpur sem eru gamlir refir og líklegir til
afreka, einnig kaus Sævaldur að geyma staða-Rauð amk eitt mót enn og
þykir líklegt að þá komi hann fram undir nafninu hraði-Rauður en komi
svo seinna á árinu fram undir réttu nafni sem er Flugeldur og þá verði
“flugeldasýning” sem lengi verði í minnum höfð!
Næsta mót hjá Glæsi veðrur sennilega Stefánstölt í
byrjun júní þar sem keppt er um stórglæsilegan farandverðlaunabikar sem
ekki er fyrir nema hraustustu menn að jafnhenda! Haraldur er núverandi
handhafi bikarsins sem er fram að móti til sýnis í hestahorninu í
Aðalbúðinni. |