Lífið í apríl 1-4 2004 | Lífið í apríl 5-11 2004 | Lífið í apríl 12-18 2004 | Lífið í apríl 19-25 2004 | Lífið í apríl 26-30 2004

>>>>>>>>>>> Lífið í apríl 19-25 2004

 

Til forsíðu
Til baka
Skíðamótið
Hestamótið
Sumardagurinn fyrsti
Árgangur 59
Kríuhólmi
Eldri borgarar




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

25. apríl 2004   Ein gömul:  Söltunarstöð Jóns Hjaltalín ?  Síldarstúlkurnar þekki ég ekki. 
Ábending:
Lengst til vinstri. Guðný Guðlaugsdóttir, Möddu og Gulla Kalla

24. apríl 2004  Kleinuviðskipti.    Skólakrakkar voru í morgun að safna fé í ferðasjóð, með því að ganga í hús og selja kleinur. Þessar hnátur, Helga og Svana heimsóttu mig,- og konu mína sem keypti af þeim 2 poka, af gómsætum kleinum.

24. apríl 2004  Álftirnar sendu bæjarstjóranum tölvuskeyti. Þeim fannst ganga heldur seint að gera hólmann, sem sumir eru farnir að kalla Kríuhólma, boðlegan hvítum og hreinum álftum. Bæjarstjórinn brá skjótt við og fól garðálfinum verkið, og eftir mikinn barning og hrakfarir á farkostinum, búnum "fullkomnum" nýtísku árabúnaði, tókst Arnar Heimi, ásamt aðstoðarmanni- og annars hjálp-sams úr landi að komast á leiðarenda með fulllestað skipið að hólmanum. Þeir hófust strax handa við þökulagnir, hey og áburðardreifingu, svo væntanlega verða álftirnar og annað fiðurfé ánægt með tilveruna. Að maður tali nú ekki um vegfarendur og aðra nágranna úr mannheimum.   Smelltu á myndina.
(frásögnin er byggð á samtölum vegfaranda, - í gamansömum tón) Myndirnar tekna í gær.

Þær eiga afmæli í dag, 24. apríl 2004

24. apríl 2004 Félagar í Félagi eldri borgara, komu úr ferð sinni til Hveragerðis í gærkveldi. Kona mín Guðný var með í för og tók nokkrar myndir í ferðinni. Smelltu á myndina

24. apríl 2004  Aðsent: Árgangshátíðarhöld ársins hafin. Nokkrar myndir af samkomu árgangs 1959 frá Siglufirði nú um páskana á Kaffi Torgi. Fyrst snæddu, þau kvöldverð að hætti hússins. Síðan nutu þau leiksýningar Leikfélags Siglufjarðar á Silfri hafsins og enduðu á dansleik með hljómsveitinni Von.  Smelltu á myndina.

24. apríl 2004 Aðsent: Þessir krakkar fóru á Íslandsmótið í blaki sem haldið var í H.K. húsinu í Digranesi helgina 16-18 apríl og stóðu sig mjög vel. Þetta eru þrjú lið og náði eitt liðið öðru sæti af um 50 liðum.Svetlana þjálfarinn þeirra er með á myndinni. Þetta sem hér stendur fyrir ofan, - er það eina sem ég veit um myndina, sendandi svaraði ekki beiðni minni um nöfn krakkanna, eða amk. hvaða krakkar þetta væru, því ókunnugir (þmt.ég) er engu nær. Svarpóstur minn til sendanda, kom með þessi skilaboð, "frá sendanda": star@simnet.is : Viðtakandi hefur síað og hafnað skeytinu.

24. apríl 2004  Ein gömul: Vitringarnir hugsa, sumir stíft. Sigurjón Sæmundsson, Pétur Gautur Kristjánsson, Benedikt Sigurðsson og Hlöðver Sigurðsson.

23. apríl 2004  Þetta eru bræðurnir Ólafur Guðmundsson og Pétur Guðmundsson. Þeir sitja þarna á borðstokk á einum báttanna inni í Bátahúsi Síldarminjasafnsins í morgun.

23. apríl 2004  Þessa drengi, starfsmenn Þormóðs Ramma, hitti ég fyrir utan Olís, en þetta eru Sigurður Þór Haraldsson og Þórir Stefánsson
23. apríl 2004  Norska olíuskipið Ophelia kom í morgun með svartolíu á vegum Olíudreifingar hf.
23. apríl 2004  Þetta eru krakka af leikskólanum, sem stilltu sér upp fyrir mig fyrir utan Sparisjóðinn í morgun

23. apríl 2004 Ein gömul: Leifur Halldórsson, Hanna Ragnarsdóttir og Guðmundur Þóroddsson - þau eru af árgangi 1948 - Myndin er tekin á skólaskemmtun, í Nýja Bíó.

Hann á afmæli í dag 23. apríl 2004   

22. apríl 2004  Sumardagurinn fyrsti hefur ávalt í augum almennings, verið talinn einn af "helgidögum" landsmanna, gefið frí í skólum og vinnustöðum. En þetta er hægt og sígandi að breytast, ekki það að "frídagurinn" sé ekki notaður, -heldur hefur þessi dagur ásamt öðrum fimmtudags frídögum, verið færðir um set, til föstudags. SRingar á Sigló hafa verið með þessa hefð í áratugi- og nú er svo komið í dag að öll fyrirtæki og starfsmann á Siglufirði sem koma því við, vinna í dag Sumardaginn fyrsta, en taka sér í staðinn frí á morgun föstudag og eig þar af leiðandi langa helgi í staðinn. Á myndinni hér er félagarnir Ásmundur Einarsson og Jón Helgi Ingimarsson hjá Norðurfrakt, þeir voru í morgun að keyra út vörum til fyrirtækja,- og sögðu flest þeirra með allt á fullu, skrifstofur, verksmiðjur, véla og tréverkstæðin ofl.   Ég heimsótti ma. SR-Vélaverkstæði og drakk með þeim kaffi í morgun. Smelltu á myndina til að sjá þá félaga ásamt 4 böldnum starfsmönnum Suðurverks, sem eru að undirbúa vinnuvélar sínar fyrir átökin við hlíðarnar ofan við bæinn, Snjóflóðavarnargarðana.
Einn af þeim er ég hitti á ferð minni í morgun, sagði að þetta helgidagarugl í miðri viku, ætti að færa að viðkomandi laugar og sunnudögum með lagasetningu, stjórnmálmennirnir þyrftu ekki einu að hafa áhyggjur af því að svíkja kosningaloforð, svo einfalt væri þetta. Það gerði öllum gott, almenningi og atvinnurekendum.

22. apríl 2004   Ein gömul  Ég þekki andlitin, en man ekki öll nöfnin.
Ljósmynd úr safni "Sillu" frá Steinflötum.

21. apríl 2004 

Ég fékk þessa frétt og myndir frá "Leikskólanum"

Foreldrafélag Leikskála varð 20 ára nú á dögunum, nánar tiltekið 27. mars síðastliðinn. Stjórn félagsins færði leikskólanum í tilefni þess veglega leikfangagjöf börnunum til gagns og mikillar gleði.
Hanna Hrefna ritari hélt stutta tölu um sögu félagsins, leikskólastjóri þakkaði kærlega fyrir og sagði að mikilvægt væri að eiga gott foreldrasamstarf og gott væri að eiga góða að.

21. apríl 2004  Hér koma upplýsingar, um Þjóðlagahátíð, hún verður haldin í fimmta sinn í sumar dagana 7. júlí – 11. júlí. Hún verður með svipuðu sniði og síðasta ár, þ.e. setningartónleikar verða  á miðvikudagskvöldið og svo verða námskeið á fimmtudag og föstudag einnig verða tvennir tónleikar á kvöldin á laugardeginum verður svo boðið upp á leiksýningu og eitthvað fleira. Hátíðinni lýkur svo með tónleikum á sunnudeginum. Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hjá lindam@simnet.is - Það er síðan er í vinnslu og verður vonandi tilbúin á næstu dögum.

21. apríl 2004  Ein gömul:  Henriksen plan ?
Þeir eiga afmæli í dag
21. apríl 2004

20. apríl 2004

Haraldur Árnason. það þarf þarf ekki að kynna Halla í Shell fyrir Siglfirðingum, hann hljóta allir að þekkja. Hann er orðinn 82ja ára gamall og lætur engan bilbug á sér finna- og heldur sér enn við sama góða heygarðshornið, hann er enn á fullu varðandi veiðimennsku, stöng og byssur, gerir sjálfur að mestu við bílinn sinn og keyrir eins og unglingur (nema varlegar). Hann heldur góðu sambandi við sína félaga unga sem gamla Og á meðan ég dvaldi um stund á hans "öðru heimili" tómstunda-afdrepinu sem hann hefur á slóðum gamla Shell-portsins sem var, þá komu tveir af samherjum hans í veiðimennskunni og sportinu í heimsókn, bræðurnir Valgeir Sigurðsson og Hafsteinn Sigurðsson.  Myndirnar sýna Halla þar sem hann slappar af í stólnum sínum,  - bræðurna ásamt Halla,- og þriðja myndin sýnir lítinn hluta af tómstundaplássi Halla, þar sem nánast allt er til alls.

20. apríl 2004  Er sumarið komið ? Kallaði ég til Mark Duffield, þar sem hann var uppi í stiga og var að undirbúa málningu á húsi nr. 2 við Aðalgötu í morgun í sólskininu. Já við skulum vona það svaraði Mark, og bætti við: það mættu fleiri fara að huga að viðhaldi húsa sinn heldur en Valgeir. (eigandi Aðalgötu 2)

20. apríl 2004  Tilkynning / Nýtt netfang: Ég hefi aftengt gamla netfangið mitt biosaga, við póstforritið á tölvu minni, þannig að þeir sem vilja hafa við mig samband, vinsamlega notið hnappinn: til að sækja nýja netfangið sksiglo og eða senda mér póst. En undanfarið er ruslpóstur, daglega 80 - 100 að kaffæra mig á það gamla. Ég fer þó á netpósthús símans til að skoða "biosaga@simnet" - en aðeins einu sinni á dag til að byrja með, en því verður fljótlega  lokað alveg. Nýja netfangið athugar póst á 15 mínútna fresti,- og sé ég við tölvuna þá stundina, þá svara ég samstundis eins og venjulega. Þeir sem hafa netfangið mitt í skrá sinni, vinsamlega breytið um netfangið.

20. apríl 2004  Vor í lofti?!?  Eitthvað voru skaparanum mislagðar hendur með veðrið nýliðna helgi.  Á meðan fresta varð atburðum í skíðabrekkunum fór fram vormót hestamannafélagsins Glæsis á Íþróttavellinum við Hólsá. (17. apríl)  meira

20. apríl 2004  Á mjölpalli, SR-46 1963(?): Gestur Frímannsson, ókunnur og Ragnar Kristjánsson

Þeir eiga afmæli í dag 20. apríl 2004

19. apríl 2004  Hér eru nokkrar myndir frá síðasta degi (sunnudagur) Unglingameistaramótsins í Skarðsdal, - Myndir frá Alla A, smelltu á myndina

Nánar hér http://siglo.is/sss/

19. apríl 2004 Ein gömul:  Leifur Halldórsson og Friðrik Hannesson, við vinnu um borð í Stapavík SI 4   1975(6)

Hún á afmæli í dag: 19. apríl 2004