Halldóra S Jóndóttir býður gesti velkomna, og afhendir upptöku af frásögn Sveins Ásmundssonar af björgunarafrekinu vestan Sauðarnes árið 1950. Samkomugestir hlustuðu síðan á hina athygliverðu frásögn, yfir kaffibolla og góðgæti.
Halldóra bað síðan Sverrir Sveinsson, eina eftirlifandi stjórnarmanna í Togskip hf, - sem á sínum tíma gaf Slysavarnardeildunum á Siglufirði hús það sem nú heitir Þormóðsbúð, en áður Jarlstöð.
Sverrir Sveinsson, las síðan þessa rituðu frásögn í stórum dráttum, sem jafnframt því að vera vel fram borin, einnig mjög fróðleg, - sérstaklega fyrir þá yngri sem þarna voru.
Sigurbjörn Jóhannsson og Sævar Björnsson
Þarna minnist Halldóra sérstaklega óeigingjarns starfs Sigurbjörns Jóhannssonar, en Sigurbjörn má heita, vann mest allar raflagnir í húsinu Þormóðsbúð í sjálfboðavinnu.
Guðmundur Skarphéðinsson hélt ræðu
Sveinn Björnsson núverandi formaður Slysavarnardeildarinnar
Helgi Antonsson, formaður Björgunarsveitarinnar Stáka í áratugi, hélt stutta ræðu og þakkaði halldóru störf hennar í þágu sveitarinnar og fleira sem hún hafði unnið málefninu til góðs. Þá rifjaði hann upp gamla tíma, í stuttu máli.
Sveinn tók aftur til máls
Að lokum þakkaði Halldóra vinsamleg orð í hennar garð og gestum fyrir komuna og lauk þar með fundinum