|
21. maí 2004 Næstu
2-3 daga verður hlé á uppfærslu síðunnar, þar sem ég ætla að vera
viðstaddur skírn nýjasta langafabarnsins í fjölskyldunni, (í R.v.k.)
dóttir Láreyar og Baldurs. |
|
21.
maí 2004 Suðurverk hefur hóf vinnu við
snjóflóðavarnargarðana að nýju í gær, eftir "hvíld" í vetur. |
|
21.
maí 2004 Dagskrá Síldarminjasafnsins
fór fram 20. maí, í gær í Gallerí Gránu klukkan 14:00
Opnuð var sýning leikskólabarna: Síldin og safnið og
Leikskólakórinn söng nokkur síldarlög. |
|
21.
maí 2004 Dagskrá Síldarminjasafnsins - 20. maí, hélt áfram
í Bátahúsinu kl. 14:30 í tilefni af afhendingu Báthússins,
Karlakór Siglufjarðar söng. Birgir Guðlaugsson afhendir Bátahúsið,
Ólafur H Kárason Evrópuverðlaunin, Örlygur Kristfinnsson Evrópukeppnin
og síðan harmonikkuspil. |
|
21.
maí 2004 Dagskrá Síldarminjasafnsins - Róaldsbrakki
Klukkan 15:30 20. maí, Holli Dýrfjörð býður vinum og kunningjum til
fagnaðar í tilefni 90 ára afmæli hans í vetur |
|
21.
maí 2004 Starfsmannafélag Síldarverksmiðja ríkisins, hélt
heljarmikla grillveislu, klukkan 16:00 í gær. Starfsmenn
SR-Vélaverkstæðis og starfsmenn Síldarvinnslunnar mættu ásamt
fjölskyldum, svo og gömlum félögum eins og mér og minni frú. En þrátt
fyrir nafnabreytingar fyrirtækisins Síldarverksmiðjur ríkisins, sölu
o.s.f.v. og allt hið neikvæða varðandi vöntun á loðnu undanfarið, þá
hefur upphaflegt nafn Starfsmannafélagsins ekki breyst og hópurinn sem
að félaginu hefur staðið, haldið ró sinni og góða skapinu, og fagnar
tilverunni nokkrum sinnum á ári. |
|
21.
maí 2004 Ein gömul: Hulda Guðbjörg Kristinsdóttir og
Lilja Pálsdóttir að salta hjá HF Hafliða. - Drengurinn í bak er
mér ókunnur ! |
hann
á afmæli í dag 21. maí 2004 |
|
20.
maí 2004 Þessi árabátur var smíðaður í Slippnum á Siglufirði
fyrir um 70 árum. Soffía Jónsdóttir (Soffía á Nesi) átti bátinn lengst
af og notaði hann í fyrstu við Staðarhólsbúið til margskonar flutninga
td er hún færði bæjarbúum nýmjólk úr fjósinu á Staðarhóli. Eftir að hún
giftist Jóni Þórðarsyni og settist að á Siglunesi var báturinn áfram
notaður til kaupstaðarferða og veiða. Löngu síðar eignaðist Helgi Antons
bátinn og gaf hann loks Soffíu aftur sem hefur svo afhent hann til
varðveislu í Bátahúsi Síldarminjasafnsins. Báturinn ekki bara sögulegur
fyrir það hve mikill "Siglfirðingur" hann er heldur er það líklega, að
hann sem kemur við sögu í frásögn sem Þ Ragnar Jónasson skráði og
birtist í bókinni Siglfirskar sögur og sagnir. Þar segir frá ferð Soffíu
frá Staðarhóli þar sem hún réri ein yfir um en var þó ekki ein! - Texti:
Örlygur, en myndina tók ég í gær er verið var að koma bátnum fyrir í
Bátahúsi Síldarminjasafnsins. |
|
_small.JPG) 20. maí 2004
Kvennakór Siglufjarðar hélt í gærkveldi Vortónleika kirkjunni og
kaffihlaðborð í og Safnaðarheimilinu á eftir. Stjórn tónleikanna
og undirleik annaðist Renáta Ivfra Þá sungu Sönghópurinn Dyfran
nokkur lög.
Ljósmyndir G.Ó.F. |
Siglufjarðarkaupstaður
á afmæli í dag, 20. maí 2004 |
|
20.
maí 2004 Ein gömul: ?
og Magnea Þorláksdóttir. |
Hann á afmæli í dag
20. maí 2004 |
|
19.
maí 2004 Ég frétti af því seinnipartinn í gær, að
menn frá Vegagerðinni, væru að mæla fyrir væntanlegri brú yfir Hólsána,
og fór á vettvang, en þeir voru farnir er ég kom á staðinn, það var
leiðhindar veður komið, haglél og slydda eða snjókoma til skiptis,
(þrátt fyrir bjartar vonir í hádeginu) og varla vinnuveður með mælibúnað
og skriffæri. Hinsvegar voru vélar menn og tæki frá Suðurverk á fullu í
því að róta til og moka úr Skútuánni á stóra bíla, til nota (væntanlega)
ofan á vegin upp í Hvanneyrarskál. |
|
19. maí 2004
Bæjarstarfsmenn vinna nú af krafti við lagfæringar á
Torg-svæðinu, við undirbúning hellulagnar ofl. Slydda og hrein snjókoma
var til skiptis í morgun, en nú rétt um hádegið fór snögglega að hlýna
með sunnan golu, jafnframt því sást glitta í sólina og úrkoma hætti. |
|
19. maí 2004
Aðsent: Þriðjudagskvöld 18 maí spilaði
Knattspyrnudeild Gólfklúbbs Siglufjarðar G.K.S. sinn fyrsta leik. Eins
og sjá má á myndunum eru þetta flest allir gamlir K.Singar. Sumir gamlir
spilarar en aðrir frekar þekktir sem stuðningsmenn. En reglur KSÍ segja
að K.S. má aðeins senda eitt lið í meistaraflokki karla á Íslandsmót og
fengum við því að spila undir nafni G.K.S. Leikið var í
bikarkeppni KSÍ við Neista á Hofsósi . Staðan var jöfn 0 - 0 eftir
venjulegan leiktíma og varð því að framlengja. Neisti skoraði
sigurmarkið úr vítaspyrnu í seinni hluta framlengingar og endaði
leikurinn því 1 - 0 fyrir Neista. - Geta má þess hér í lokin að 6 úr
byrjunarliði G.K.S. eru fertugir eða eldri og einn af þeim var að spila
sinn fyrsta meistaraflokksleik. Nöfnin: Mark D, Haukur Ó,
Alli A, Habbó, Þórarinn H, Bjössi Bó, Rögnvaldur Egils, Baldur Ben,
Róbert H, Gunni (Möggu Gunnnars), Gunni (t.sonur Habbó) Nonni (Dísu
Birgis)m Ingvar Erlings, Simmi H. Gunni Ragnars (Kambi) Alli A. |
|
19. maí 2004
Ein gömul: Guðmundur Jóhannesson, Hallur Garibaldarson og
Stefán Friðleifsson. |
18.
maí 2004 Ein gömul: Albert Einarsson og
Jón Ágústsson |
afmæli í dag
18. maí 2004 |
|
17. maí
2004 Aðsent: Sendi ég þér hér með, myndir sem ég tók af
fyrsta leik K.S. sem var hér í Vestmannaeyjum í dag 16 maí. Þetta var
nokkuð góður leikur hjá K.S. þrátt fyrir erfiðar aðstæður, þá
sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem rigndi heil ósköp og völlurinn
þungur. Það var góð barátta hjá liðinu og náðu þeir oft upp góðu spili
þá sérstaklega í seinni hálfleik. Þeir fengu færi í seinni hálfleik til
að klára þetta en misnotuðu. Þegar að færin eru ekki nýtt þá er hættan
að liðum verði refsað eins og gerðist næstum því þegar K.F.S átti skot
rétt fram hjá stönginni nokkrum sekúndum áður en dómarinn flautaði til
leiksloka. Held ég að ef þeir leggi sig eins mikið fram í hvern leik
eins og þeir gerðu í dag þá falla þær spár sem liðinu hefur verið spáð.
Kveðja frá Eyjum. Brynjar Guðmundsson. |
|
17.
maí 2004 Slysavarnarfélagið. Í gær fór fram formleg
afhending á upptöku af frásögn Sveins Ásmundssonar, af
björgunarafrekinu, sem sveit deildar Slysavarnarfélagsins á Siglufirði
afrekaði er línubáturinn Þormóður Rammi fékk á sig brotsjó með þeim
afleiðingunum að hann rak upp í fjöru vestur af Sauðarnesvita í nóvember
árið 1950, en það má telja eitt af meiriháttar björgunarafrekum í
sögu Slysavarna á landinu. Það var Halldóra S Jónsdóttir sem afhenti
deild Slysavarnarfélagsins hér á Siglufirði þessa merku upptöku. Þá
tilkynnti Halldóra einnig að gamlar fundgerðabækur og fleira sem verið
hefur í hennar fórum frá því sem hún tók við formennsku
kvennadeildarinnar Vörn, yrðu nú framvegis varðveitt æi Bókasafni
Siglufjarðar. Halldóra bauð gestum uppá kaffi og meðlæti. Margir tóku
til máls á eftir, smelltu á myndina til að sjá meira af samkomunni. |
|
17.
maí 2004 Ein gömul: Feðgarnir Guðmundur Konráðsson og
Pétur Guðmundsson |
Hann
á afmæli í dag 17. maí 2004 |