|
Sumarkoma?
Með
hækkandi sól hafa hestamenn hugað meira að umhverfi sínu, um daginn var
haldinn hreinsunardagur sem tókst með ágætum, 3 sturtuvagnar fullir af
rusli fóru á haugana. Hugmyndir eru uppi um landmótun og fegrun
svæðisins í kringum reiðvellina og hesthúsin þegar líður á sumarið.
Nú eru
hestamenn að verða það bjartsýnir að þeir eru í óðaönn að setja hross
sín í beitarhólf. Vorið hefur komið hægt en þó hafa hlýindi undanfarið
knúið menn til að hleypa hrossum sínum meira á grænkandi grasið. Flest
munu þau frelsinu fegin! Þó hafa komið upp ýmis vandamál og m.a.
“graddi” gjaldkerans haldið uppi stöðugum árásum á viljugar hryssur, það
hefur ekki tekist að koma honum í skilning um að eistun eru farin! Hann
sótti helst á hryssur formannsins, þeirra sparisjóðsmanna og
Helgustaðabræðra, hvað svo rammt að að hann braut sér leið inn í gerðin
og beit þar allt og sló! Gjaldkerinn hefur farið huldu höfði og vogar
sér ekki að hleypa honum í fleiri Bjarmalandsfarir!
Ýmsir
hafa fengið hesta senda að sunnan með vorinu, gjaldkerinn fékk
fyrrnefndan Bjarma eftir meinta mánaðartamningu en var ekki viss um að
skeifur hefðu nokkurn tíma farið undir folann. Í sömu ferð fékk kona
tamið barnahross sem reyndist síðan aldrei hafa undir manna hendur
komið! Eftir nokkra eftirgrennslan kom þó rétt barnahross og reyndist
þá fylfull! Húsvörður fékk til reynslu taminn efnilegan fola frá sama
bæ, en eitthvað loftaði undir rassinn úr hnakknum svo óvíst er með
kaupin.
Áhugi á
ræktun hefur aukist samhliða almennum áhuga á hrossarækt.
Aðstoðarsparisjóðsstjórinn fékk rauðstjörnótt hestfolald á dögunum sem
dóttir hans á og skýrði Fiðrildi. Sú stutta hnikar ekki frá
nafngiftinni þó að folaldið sé strákur enda nafnið í raun hvorugkyns!
Enn að nafngift á hrossum, einn af meiri keppnismönnum félagsins á
efnilegan fola sem ber nafnið Fífill. Gott og gilt nafn en svo
hugkvæmdist honum að erfitt yrði að verjast hlátri þegar þulurinn á
fyrsta stórmótinu kynnti “ þarna kemur hann ríðandi á Fífli”!! Þeir
bræður í Rammanum hafa fengið tvö folöld í nýrri ræktun kennda við
Fyrirbarð. Það ku víst vera mikil gæðingsefni undan bestu
kynbótahrossum landsins. En að Fyrirbarði er fyrirhugað að ala gæðinga
í stórum stíl.
Þann 17.
júní er fyrirhugað að hafa tölt mót kennt við Stefán frá Móskógum fyrsta
formann Glæsis. Afkomendur Stefáns gáfu glæsilegan bikar til minningar
og er mótið nefnt Stefánsmót. Er bikarinn svo stór og glæsilegur að
einungis er hraustustu mönnum ætlandi að vinna hann og þægustu hrossum
að ríða með hann sigurhringinn! |