|
5.
júní 2004 BOMB - buldi við og jörðin titraði, nákvæmlega
klukkan 15:34:09 En Suðurverksmenn sprengdu klöpp við enda nyrsta
snjóflóðavarnargarðsins, - sennilega fyrsta klöppina sem hinar stórvirku
vinnuvélar réðu ekki við án aðstoðar sprengjusérfræðings. |
|
5.
júní 2004 Dagskrá Sjómannadagsins hófst á skráningu
í dorgveiði, í Þormóðsbúð í dag klukkan 12:30 - Dorgveiðin hófst síðan
klukkar13:00 og stóð til klukkan 14:00. Þá átti að hefjast kappróður,
sem varð að "fresta", þar sem skortur var á keppendum, aðeins ein áhöfn
gaf sig fram til keppni. Lélegur afli var hjá dorgurunum, aðeins tveir
fiskar. Ástæðan var á hreinu hjá einum keppandanna, sem sagði þetta allt
hafnarvörðunum að kenna sem hefði bannað þeim að veiða á hefðbundnu
veiðisvæði, það er frá gömlu ríkisbryggjunni, þar væri nógur fiskur,- og
ekkert kaldari sjór til að detta í ef einhver félli í sjóinn. (Það
skal tekið fram; að aðgengi að ríkisbryggjunni er ekki talið öruggt, og
því vildu hafnarverðir (sennilega) ekki taka neina ábyrgð á
fjöldaumferð. (smelltu á myndina) |
|
5. júní 2004
Knattspyrnulið GKS spilaði sinn fyrsta heimaleik í Íslandsmóti 3
deildar á Hólsvelli föstudagskvöldið 5 júní kl 20.00. Leikið var við
Hvöt frá Blönduósi og endaði leikurinn 1 - 0 fyrir okkur í GKS og
skoraði Hafþór Kolbeinsson markið. Nokkrir áhorfendur komu svona
allavega fyrir forvitnis sakir. Mikil gæsla var á leiknum þar sem
nokkrar þekktar fótboltabullur sáust á svæðinu. Þar má fyrstan nefna
Herstein Karlsson hreinræktaðan orginal SRing, Egil gamla Rögg og Ragnar
á Kambi og fl. Fjölmiðlafulltrúi Knattspyrnudeildar GKS
Alli A. |
|
5. júní 2004
3 Flokkur KS hefur leikið tvo leiki það sem af er sumri, unnið
einn og tapað einum. Spilað var við KA í Boganum á Akureyri
miðvikudaginn fyrir rúmri viku og enduðu leikar þannig að KS tapaði 1 -
2. í mjög jöfnum leik . Þeir spiluðu síðan við Tindastól á Sauðárkróki
núna á miðvikudaginn var og unnu þar stór sigur 6 - 0. ----- Alli A. |
|
5.
júní 2004 Fyrsta steypuvinnan við kirkjutröppurnar
fór fram seinnipartinn í gær.
Þá mun einnig hafa verið skrifað undir samninga í
gær- við Bás ehf, varðandi sáningu í sár þau í fjallið sem komið hafa og
munu koma varðandi snjóflóðavarnargarðana. |
5.
júní 2004 Ein gömul: Kristinn
Jóakimsson og Stefán Friðleifsson |
|
4. júní 2004
Nú er símaskráin komin út, - og enn einu sinni hafa þessir
"jólasveinar" sem sjá um ritstjórnina, ekki áttað sig á því að
Siglufjörður er í Eyjafjarðarsýslu, Norðurlandi eystra - en EKKI
Skagafirði Norðurlandi vestra,- og eiga því heima á Norður landi EYSTRA
en EKKI vestra. Farið nú í landafræði tíma hjá einhverjum
grunnskólanum og rifjið upp landafræðina. |
|
4. júní 2004
Hvanneyraráin. Verktaka Snjóvarnagarða eru komnir á hreyfingu
aftur, eftir langt "helgarfrí" erlendis, þarna er verið að vinna við
bráðabirgða "ræsi" í Hvanneyrará. |
4. júní 2004
Ein gömul Ólafur Gíslason og Jakob Björnsson |
Afmæli í dag,
4. júní 2004
|
|
3. júní 2004
Síminn, er að láta færa ljósleiðara, sem nú er staðsettur um það bil á
því svæði sem nýja Hólsbrúin á að koma. skurðgrafa og mannskapur frá
Símanum var mættur á staðinn í morgun vegna framkvæmda. En brúin
mun koma aðeins norðan við þann stað sem grafan er á á myndinni. Það
sést örlítið í gömlu brúna lengst til vinstri á myndinni. Þá verður
aðkeyrslu að brúnni, það er núverandi vegur færður til vinstri á
svæðinu, svo og beint að væntanlegum brúarenda, þannig að engin kröpp
beygja verður þarna, eins og nú er. |
|
3.
júní 2004 Aðsent:
Nemendur 7. til 10. bekkja eyddu lokadögum skólans í útivist og
heimsóknir. Á þriðjudag lögðu nemendur leið sína á Síldarminjasafnið,
þar sem þeir fengu leiðsögn um húsin þrjú. Eftir það var rölt yfir í
rústir Evangers verksmiðjunnar. Á miðvikudag fóru nemendur 7. og 8.
bekkja að heimsækja Smástráka. Nemendur 9. bekkjar, sem eru flestir
félagar í Smástrákum tóku á móti þeim ásamt umsjónamanni deildarinnar.
Þar var farið í ratleik og síðan spreyttu nemendur sig á klifurveggnum.
Almennt voru nemendur glaðir og kátir á lokadögunum. Erla
--- Smelltu á
myndina |
3.
júní 2004 Ein gömul: Kristján Ásgrímsson og
Skapti Stefánsson |
 Afmæli
í dag 3. júní 2004 |
|
2.
júní 2004 Sumarkoma?
Með
hækkandi sól hafa hestamenn hugað meira að umhverfi sínu, um daginn var
haldinn hreinsunardagur sem tókst með ágætum, 3 sturtuvagnar fullir af
rusli fóru á haugana. Hugmyndir eru uppi um landmótun og fegrun
svæðisins í kringum reiðvellina og hesthúsin þegar líður á sumarið.
meira |
|
2. júní 2004
Aflaskýrsla fiskiskipa og báta, í maí
mánaðar 2004 |
|
2. júní
2004
Þessir kappar leggja hart að sér við lagningu gangstíga ofl. á
Torginu. Þeir gáfu sér þó tíma til að stoppa augnablik á meðan ég
smellti af þeim þessari mynd, en þeir eru Tómas Óskarsson, Bogi
Kristjánsson og Arnar Heimir Jónsson garðyrkjufræðingur, sem sér um
verkið. |
|
2. júní 2004
Plastbáturinn
Björn EA 220 2544, (frá Grímsey) var hífaður á land í morgun, en
menn frá JE-Vélaverkstæði voru að athuga stýrisbúnað á bátnum, sem
virkaði ekki sem skildi. |
|
2. júní 2004
Ein gömul: Á myndinni eru ma: "hnakkinn" á Eggert Theódórs, Reynir
Árnason, Sigurbjörn Fanndal, Árni Kristinsson, Guðmundur Skarphéðinsson
(á bak við hann) og Steingrímur Magnússon. |
Hann
á afmæli í dag
2. júní 2004 |
|
1. júní 2004
Sunnan SI 67, - sem komin var með nafnið "bryggjublómið", vegna
langrar legu í innri höfninni, flutti um set og lagðist við
Öldubrjótinn, þar sem hún mun liggja í óákveðinn tíma. Myndin er tekin
klukkan 14:13 í dag er Sunnan var á leið til næsta hvíldarstaðar.
--- En-það kom "babb í bátinn" Sunnan risti það djúpt að hún komst ekki
að Öldubrjótnum, það frétti ég er ég leit út um gluggann kl.
15:13, og sá að hún var farin- og hringdi í Hafnarskrifstofuna og sagt
að Sunnan væri komin aftur í gamla bólið "sitt". |
|
1.
júní 2004 Aðsent: Þessa mynd
tók Hannes Baldvinsson í gær og sendi mér. Á myndinni eru: Steingrímur
Kristinsson - Kristinn Georgsson - og Halldóra Jónsdóttir. |
|
1.
júní 2004 Ein gömul: Skipverjar um borð í Haferninum í
góðu gamni, á einni af hefðbundinni kvöldvöku um borð. Guðmundur Arason
og Guðmundur Björnsson, keppa um hvor er fljótari að innbyrða spottann
sem "karamella" hangir í. Ægir Björnsson, Jón Rögnvaldsson og fl. horfa
spenntir á leikinn. |
Hann
á afmæli í dag 1. júní 2004 |