Álmur, sunnan við húsið Eyrargata 11 - Sjaldgæft tré hér norðanlands. Er í hópi svokallaðra eðaltrjáa og tekur langan tíma að vaxa. Mjög skrítið að sjá svo stórt tré á Siglufirði og er eflaust um 70 ára. Annað minna tré af sömu tegund við hliðina á því.
Gullregn, Hávegi.28 -Þetta er í fyrsta skipti sem ég (Arnar) sé Gullregn blómstra svona mikið þessi tvö sumur sem ég hef starfað hér við garðyrkju. Gullregn er heppileg tegund til ræktunar hér en verður helst að vera í góðu skjóli.
Körfuvíðir, við Laugarveg. Nokkuð fallegur runni ef hann fær að vaxa frjálst upp. Hægt að klippa niður reglulega. Mjög blaðfalleg planta.
Seljur við enda á Suðurgötu. Selja er af víðisætt og er eina plantan í þeirri ætt hérlendis sem flokkast frekar sem tré enn runni. Kemur vel út á Siglufirði.
Blágrenitré, Hlíðarvegi 33 Þetta tré er orðið löngu landsfrægt meðal garðyrkju og skógræktarfólks á Íslandi og meðal annars birtist grein um það eftir Sigurð Blöndal í ársriti Skógræktarfélags Íslands fyrir nokkrum árum. Vaxtarlag og þéttleiki þykir afar óvenjulegur.
Sitkagreni, Hlíðarvegi 33 - Algengasta barrtegund hérlendis og gaman að skoða munin á blágreni trénu og þessu tré sem er í næsta garði.
Hávaxin Syrena, Fossvegi 10 sem er nýbúin að blómstra. Þarf gott skjól.
Blóðheggur, ekki algengur hér, frekar hinn venjulegi heggur. Munurinn, eru blöðin sem eru rauðleit á Blóðheggnum.
Ungt Gullregn, sem ekki er orðið það gamalt að það sé byrjað að blómstra.
Broddfura, Fossvegi hjá Herði Júll ferðamálafrömuði. Broddfura er ekki mjög algeng tegund, vex hægt og er með fleiri nálar í knippi heldur enn bergfura og stafafura. Broddfura er náskyld risafurunum í norður ameríku sem teljast til elstu lífavera í heimi.