|
Sunnudagur
1. ágúst - Svona rétt til ađ láta vita af ţví; ţá eru taugar
mínar rétt í ţessu ađ komast í lag eftir annasaman daga, í gćr og í dag
til kl. 17:00 - viđ annađ en ég ćtlađi mér en tölvan mín hrundi á
laugardag, eins og sagt er frá hér fyrir neđan, en ég er búinn ađ vera
međ tölvu og kerfisfrćđing í vinnu, lungađ úr deginum í gćr og svo aftur
í dag (8-9 tíma) Á milli skrapp ég til ađ taka myndir, ţó ekki eins
margar og ég ćtlađi. Ég stefni ađ ţví ađ birta ţćr á morgun. En nú er ég
ađ reyna ađ ná áttum og rađa möppum og gögnum til réttra stađa á vélinni
minni sem er orđinn hálfgerđur garmur, og segir mér ađ ég verđ ađ fara
ađ reyna ađ skođa möguleika á kaupum á nýrri vél, hvenćr sem ţađ verđur.
En hér međ fylgir ein mynd frá hátíđarstund uppi í Hvanneyrarskál upp úr
klukkan 10 í morgun. Ađrar myndir koma vćntanlega á morgun- ef vélin mín
bilar ekki aftur. |
|
Laugardagur 31. júlí 2004 klukkan 21:30,
Vinsamlega ! Vegna alvarlegrar
bilunar í tölvu minni (vélbúnađur bilađur eđa ónýtur ?) hefi ég ekki
komist til ađ vinna á vél minni í dag frá klukkan 7 í morgun og ţví
hefur ekkert bćst viđ af nýju efni í dag- og verđur ekki, - og óvíst í
augnablikinu hvert framhaldiđ verđur. En ég skrifa ţetta úr annarri
tölvu úti í bć. |
Laugardagur 31. júlí 2004 - Siglufjörđur í gćrdag klukkan
18:00 |
|
Laugardagur
31. júlí 2004 Síldarćvintýriđ, Eftir klukkan 21:00 í
gćrkvöld. ---- 1060 bílar höfđu fariđ um Siglufjarđarveg vestan
Strákaganga, síđasta sólarhring.
Smelltu á myndina. |
|
Laugardagur
31. júlí 2004 Síldarćvintýriđ, Töluglöggir menn
giskuđu á 4000 manns komna í bćinn um kl: 16:00 í gćr föstudag- og
stöđugur straumur bíla var á leiđ inn í bćinn. Samkvćmt upplýsingum
vegakorts Vegagerđarinnar höfđu tćplega 700 bílar fariđ um
Siglufjarđarveginn vestan Strákagana, frá miđnćtti fimmtudags/föstudags
um kl.17:00. Fólkiđ sem komiđ var ásamt heimamönnum spókuđu sig
léttklćdd um svćđin í veđurblíđunni og eđa slappađi af. Veđur var hiđ
besta hressandi vindur 5-6 m/s - 18-24 °c hiti, eftir ţví hvort sólin
náđi til ađ verma umhverfiđ, en ekki var stöđugt sólskin. Ţessi mynd er
frá Ađalgötunni, sem var lokađ á parti fyrir umferđ. Fleiri myndir koma
í ljós ef smellt er á myndina |
|
Föstudagur
30. júlí 2004
Vel aflađist, ţó aflinn vćri bćđi misjafn hvađ magn og stćrđ
fiskjarins var. En greinilegt var á andlitum stangveiđimanna ađ ţeir
voru ánćgđir međ ćvintýriđ, sem og aflann sem ţeir komu međ ađ landi, á
hinu árlega Stangveiđimóti um Verslunarmannahelgina.
Ég tók nokkrar myndir ţegar komiđ var ađ landi; smelltu á myndina |
|
Föstudagur 30. júlí 2004
Ţessi mynd er tekin klukkan 08:30 í morgun. 18 °C hiti, logn og
sólskin. Hér er smábátadokkin fyrir miđri mynd og tjaldstćđin viđ Torgiđ
fullsetin Nćgt pláss er ţó enn á hinum stćđunum.
Rćst var í morgun klukkan 06:00 til
sjóstangaveiđikeppni, og eru bátarnir vćntanlegir um kl. 15:00 |
|
Föstudagur
30. júlí 2004 Tjaldstćđin. Klukkan 18:00 í gćrkveldi voru
tjaldstćđin, eđa öllu heldur tjaldvagna og húsbílastćđin (ţví lítiđ ber
á hinum gömlu góđu tjöldum) viđ Torgiđ nćr fullsetin. Ţađ eru ţó nćg
pláss eftir og verđur seint hćgt ađ fylla ţau pláss sem bćrinn býđur
uppá. Veđurblíđan í allan gćrdaginn var eins og svo oft áđur á Sigló, ađ
vísu sólarlaust frá hádegi, en hiti um 22-23 °C og logn eins og hvergi
getur orđiđ "nema á Sigló". Ţegar myndin var tekin (18:00) var hitinn 21
°C og logn. |
|
Föstudagur
30. júlí 2004 Ein gömul: Ekki er ég viss um
hvađ hann heitir ţessi skíđastökkvari, ţó mér finnist svipur hans ver
kunnur. Hann er ţarna ađ taka sig á loft af miklum krafti á heimagerđum
"stökkpalli" í hlíđinni norđan Hvanneyrarár 1963-1964 ?. Ţeir sem
ţekkja, láta mig vita. |
>>> Afmćli
í dag: Föstudagur 30. júlí 2004 |
|
Fimmtudagur
29. júlí 2004 Arnar Heimir Jónsson fór međ mig í
garđaskođun í gćr og tók ég viđ ţađ tćkifćri, nokkrar myndir af fallegum
trjám í bćjarlandinu. Ég er ađ vísu enginn garđaáhugamađur sjálfur, en
til ađ lesendur síđu minnar sem áhuga hafa á garđrćkt og gróđri njóti
ţekkingar hans, tók ég bođi Arnars fegins hendi . S.K.
Ég gef honum hér međ orđiđ: Nokkrar tegundirnar eru sjaldgćfar
norđanlands, en ađrar hafđar međ til fróđleiks og er ţessi listi ekki
tćmandi yfir falleg tré í bćnum. Ráđgert er ađ fara ađra ferđ viđ
tćkifćri og eru allar ábendinga vel ţegnar. A.H.J. --
Smelltu á myndina og skođađu fleiri myndir og
textann sem ţeim fylgir. |
|
Fimmtudagur
29. júlí 2004 Ein gömul: Steypuvinna, viđ ţakiđ á
Sigló, - húsinu sem í upphafi bar ţađ nafn, ţá Sigló Síld og fleiri nöfn
en nú eign Ţ.R.S. Á myndinni eru Guđbrandur Sigurbjörnsson, Albert
Sigurđsson og Ólafur Bjarnason. |
>>> Afmćli
í dag: Fimmtudagur 29. júlí
2004 |
|
Miđvikudagur 28. júlí 2004
Ó.B. kvartettinn, heldur tónleika á Kaffi Torg, annađ kvöld
klukkan 21:00 - Á dagskrá verđa ýmis lög úr ýmsum áttum s.s.
klassísk kvartettlög, ballmannssöngvar, lög og textar eftir Bjarka
Árnason, Írsk lög viđ texta Jóns Árnasonar o.m.fl. -
Kvartettinn skipa: 1, tenór; Birgir Ingimarsson, 2.tenór; Óskar Berg
Elefsen, 2. bassi; Steinn Elmar Árnason, bassi og undirleikur;
Sturlaugur Kristjánsson.- Ball á eftir. međ Dansbandi Dúa Ben |
|
Miđvikudagur
28. júlí 2004 Undanfanar vikur hefur boriđ
nokkuđ á ţví ađ smásteinar upp í hnullungar, hafa hruniđ á vegin undan
skriđunum viđ Siglufjarđarveg, raunar hafa vegagerđarmenn vitađ af ţessu
og orđiđ ţeim nokkuđ dýrkeypt, ţar sem einn vegagerđarbíllinn losnađi úr
handbremsu og rann útaf og niđur í fjöru á međan vegagerđarmađur var ađ
hreinsa grjót af veginum. Minnugur ţess atviks, ţá stöđvađi ég vélina í
bíl mínum og gerđi viđeigandi ráđstafanir, er ég fór úr bíl mínum
síđastliđiđ sunnudagskvöld (á leiđ til Varmahlíđar) til ađ henda um 20
kg. grjóti sem var á nćr miđjum veginum ásamt smágrjóti ţar í kring. Ég
ćtlađi ađ minnast á ţetta grjóthrun sl. mánudag en hreinlega gleymdi ţví
ţar til í gćrkveldi, ađ ég heyrđi sagt frá ţví ađ Bás ehf. hefđi veriđ
beđinn í dag, ađ hreinsa rásirnar ofan viđ veginn sem eru/voru orđnar
fullar af grjóti. Rásirnar sem upphaflega voru gerđar til ađ taka
viđ grjóthruninu og hindra ađ ţađ fćri á sjálfan veginn. Ég frétti
jafnframt ađ ţađ hefđi veriđ Kristján Möller sem hefđi haft samband viđ
Vegagerđina og bent ţeim á ţetta ástand. - Og Vegagerđin brást skjótt
viđ og samdi viđ Bás um ađ hreinsa rásirnar. |
|
Miđvikudagur
28. júlí 2004 Ein gömul:
Spilađ í kaffitíma í kaffistofu bryggjumanna S.R. (Síberíu) >
Sigurđur Gíslason, - Jón Gunnar Pálsson, - Jóhann Örn Matthíasson og
Eđvald Eiríksson. |
|
Ţriđjudagur
27. júlí 2004 Síđasta lođnan á sumarvertíđinni.
Ţađ er nokkuđ síđan, menn héldu lođnuvertíđinni lokiđ, - og Íslensku
skipin ákváđu ađ hćtta vegna tregrar veiđi. Ţađ fór á annan veg, ţví
Norsku skipin héldu áfram ađ koma međ afla. En í dag telja menn fullvíst
ađ síđasti Norska skipiđ sem landađi hér í morgun hafi veriđ ţađ síđasta
ađ sinni. En eins og áđur hefur komiđ fram ţá er sá afli sem Norsku
skipin hafa komiđ međ meira en drjúgur, hann er mikill eđa 36% aflans og
Grćnlenska skipiđ Siku eitt međ 21% aflans sem hingađ hefur komiđ af
lođnu/kolmunna, sem í sumar nemur samtals 27.758.772 kg.
>> Aflaskýrslan |
|
Ţriđjudagur
27. júlí 2004 Ungur og efnilegur bóndi- vćntanlegur. Óđinn
Freyr Rögnvaldsson, sonur Rögnvalds Ţórđarsonar póstmeistara, - hefur
fest kaup á bóndabćnum og jörđinni Lambanesreykir. Óđinn mun taka viđ
jörđinni á haustdögum og hefja búskapinn međ 10 kindum til ađ byrja međ,
en landbúnađarreglur og kódi takmarkar ţann fjölda, sem ţó mun aukast
ţegar frá líđur. En Óđinn hefur fleira til brunns ađ bera en bóndaeđliđ,
hann er lćrđur trésmiđur- og hefur í sumar haft nóg ađ gera viđ smíđar í
Fljótunum og nágrenni- og kvíđir engu međ framtíđina, svo er hann víst
búinn ađ krćkja sér í kćrustu strákurinn, svo honum ćtti ekki ađ leiđast
í skammdeginu. Til hamingju Óđinn. |
|
Ţriđjudagur
27. júlí 2004 Ađsent: --
Afkomendur frumkvöđulsins.
Sá sem var fyrstur Norđmanna til ađ byggja söltunarstöđ og salta fyrstu
síldina hér á Siglufirđi 8. júlí 1903 hét Hans Söbstad frá Kristiansundi.
Hann er sem sagt mađurinn sem stóđ á bak viđ atburđinn sem leikritiđ
Silfur hafsins er byggt á.
Margir afkomendur Söbstads komu hingađ frá Noregi og voru á hátíđinni
okkar um síđustu helgi. Á myndinni eru Harald Söbstad (sonarsonur Hans
Söbstads), Hedvig kona hans, Unne dóttir ţeirra og Björn sonur Unne.
Ţrír ađrir Söbstađar voru hér auk Haralds og gistu ţau öll á Bjarnagili
í góđu yfirlćti hjá Sibbu og Trausta og var ţar sannkölluđ
ćttamótsstemning hjá ţeim Söbstödum sem hittast annars sjaldan. Og ekki
var síđri ánćgja ţeirra međ allt sem ţeir sáu og reyndu á hátíđinni
sjálfri.
Nafn Hans Söbstads, ţessa frumkvöđuls í atvinnusögu Siglufjarđar og
raunar alls Íslands, ber okkur ađ muna. Saga hans er mjög merkileg og
raunar dramatísk á margan hátt.
Ţeir helstu sem komu á eftir Söbstad í síldarútveginum á Sigló voru ţeir
Thormod Bakkevig, Hendrik Hendriksen, Edvin Jakobsen, Olav og Elías
Roald, Olav og Gustav Evangersbrćđur og Ole Tynes. ök |
|
Ţriđjudagur
27. júlí 2004 Ein gömul: Slegiđ á létta strengi-
Stefán Árnason, Hafţór Rósmundsson og Salmann Kristjánsson - um borđ í
Haferninum í Liverpool-höfn 1967 |
|
Mánudagur 26. júlí 2004 Enn koma Norđmenn fćrandi hendi, ţađ má segja ađ stöđugur
straumur Norskra skipa hafi veriđ hingađ međ lođnu til
Síldarvinnslunnar, í morgun voru ţessi tvö skip hér; Rřdholmen og Solvar
Viking. Alls eru nú komin á land til brćđslu hjá Síldarvinnslunni á
Siglufirđi á sumarvertíđ, rúmlega 27 ţúsund tonn. Samtals á árinu
rúmlega 32 ţusund tonn
>> Aflaskýrslan |
|
Mánudagur 26. júlí 2004
Brúđkaup. Síđastliđinn föstudag 23. júlí voru gefin saman,
Siglfirđingarnir Anna Rós Ívarsdóttir og Steindór Örvar Guđmundsson.
Fleiri myndir:
http://eldorado.raggoz.com/
|
|
Mánudagur
26. júlí 2004 Ein gömul: Jóna Sigríđur Jónsdóttir
(móđir Elíasar Ísfjörđ) og Guđbrandur
Sigurbjörnsson (Akra-Brandur) En ţau voru bćđi á Sjúkrahúsi
Siglufjarđar 1963 (+/-) |
>>> Afmćli
í dag:
Mánudagur 26. júlí
2004 |
|
Sunnudagur
25. júlí 2004 Sauđarnesviti viđ Siglufjörđ.
Vitavinafélagiđ, lauk dagskránni vegna 100 ára afmćlisins, í minningu
Síldarćvintýrsins, međ ađ efna til fundar viđ Sauđarnesvita. Siv
Friđleifsdóttir umkverfisráđherra flutti ávarp, formađur Félags Vitavina
á íslandi einnig, ţá var ţar staddur međal fleiri Norđmanna, formađur
Vitavinafélags í Noregi og fleiri. Ómar Hlynsson trúbardór söng- og
gestum var bođiđ upp á kaffi og međlćti og krökkum svalandi drykki. Auk
ţess gafst gestum kostur á ađ skođa vitann. Smelltu á myndina |
|
Sunnudagur
25. júlí 2004 Forsetinn kveđur: Um klukkan 11:40 í
dag fóru forsetahjónin Ólafur Ragnar Grímsson og kona hans Dorit
Moussaieff eftir sólarhrings dvöl frá Siglufirđi.
Smellti af nokkrum myndum ţeim tengdum í morgun. Smelltu á myndina. |
|
Sunnudagur
25. júlí 2004 Rosabaugur. Ég beindi myndavélinni minni ađ
sólinni klukkan 11:30 í dag. Heljarmikill rosabaugar var umhverfis sólu,
ţađ stór ađ 38 mm brennivídd linsu minnar náđi ekki heildinni, en ţetta
er árangurinn, eins og auga sem međ okkur fylgist utan úr geimnum..
(sjálfvirk stilling) |
|
Sunnudagur
25. júlí 2004 Norsku skipin eru enn ađ koma međ
drjúga slatta til brćđslu hjá Síldarvinnslunni á Siglufirđi. Ţessi komu
í gćr til löndunar. |
|
Sunnudagur
25. júlí 2004 Heimsókn forseta Íslands til
Siglufjarđar í tilefni af 100 ára afmćlishátíđar. Syrpur ljósmynda
eru á nćstu síđum.
Smelltu á myndina eđa tenglana hér til hliđar-
og skođađu um 200 myndir frá deginum í gćr; 24. júlí |
| Sunnudagur 25. júlí 2004 Lesiđ um;
Svona var á Sigló; smelliđ
hér |