Þetta er hópurinn: Guðmundur Sigurbjörnsson verkstjóri - Erling Kristinsson - Sverrir Gíslason - Birkir Þór Sveinsson - Árni Magnússon - Sigurður Jónasson - Kristján Guðjónsson - Jóhann Sigurðsson - Björn Ingvarsson - Jóhannes Sigurbjörnsson - Helgi Harðarsson.- á myndina vantar Ragnar Steingrímsson
Þessi skrifaði niður nöfnin fyrir mig (Björn Ingvarsson)
Guðmundur Sigurbjörnsson verkstjóri í kaffihléi - en hannsegir enga kaffistofu í landinu hafa jafn fagurt útsýni og þeir, beint yfir bæinn. Kaffistofan er sunnan og ofan Ljósastöðina. og stendur ofan á tveim verkstæðisgámum.
Ég fékk mér kaffisopa hjá þeim félögum og tók hópmyndina þar á eftir.
Stæsti hluti verksins er langt kominn, en á þó eftir að hækka um 4-6 metra í viðbót- og svo er að vona að vel takist að sá í svæðið, - takist betur en við stórabola, ar sem aðeins var sáð einu sinni, en þeir sem til þekkja segja það þurfa tvö á í röð amk. til að jarðvegurinn fái næga næringu.
Þetta svæði er ekki endanlega hannað- en þarna mun koma aðgengi að útivistarsvæði með tjörn og gróðri, auk bílastæða og tilheyrandi.
Þetta er ofan á garðinum, sem á eftir að hækka um 4-6 metra. En ofan á garðinum mun koma 3,5 metra breið gangbraut með handriði. Á sitthvorn enda mun svo koma smá hringtorg, svipað og á Stóra bola.
þarna eru vinnuvélar að verki bak við garðinn, í 10-15 metra V laga gjá, sem taka mun við grjóthruni og eða snjóflóði sem kann að falla úr hlíðinni
Með 80 sentimetra millibili er skift um lag í garðinum, mjukur jarðvegur stórgrýti og síðan hnullungar, þar á eftir koma stórir valtarar og þjappa flötinn, Nú er komið að því að koma fyrir plaströmmum, sem raðað verður í þrep í samræmi við hallann og fyllt jarðvegi Ekki ósvipað og hægt er að skoða á vefnum: http://www.prestogeo.com/files/pdfs/earth_retention_overview.pdf
Mold er til færð í hundruðim rúmetra á svæðum- og sett "fastari" jarðvegur í staðinn.
Vegir og slóðir eru gerðar fyrir bílana, en þeir verða síðan aflagðir og svæðið jafnað.
Hér kemur "glataði sauðurinn" Ragnar Steingrímsson, en hann var ekki viðlátinn í dag- en þessi mynd var tekin á svipuðum slóðum fyrir ár.