Laugardagur
7. ágúst 2004
Bláberin. Sveinn Þ. sendi mér þessa mynd í morgun sem hann tók
uppi í Skarðsdal af bláberjalyngi. Eftir myndinni að dæma virðast
bláberin vera á hraðri leið til þroska.
Laugardagur 7. ágúst 2004
Hvalir. Ég frétti að sést hefði til hvala inni á firði í
morgun, ég fór að "leita" þeirra og sá 3 hvali austast í firðinum nærri
í fjörunni. Það sást greinilega frá þeim blástursstrókar, en vegna
fjarlægðar, (of langt frá til myndatöku að gagni) þaðan sem ég var og gáru frá hafgolunni á sjónum, sást ekki
hvort hvalurinn var að elta síld eða annað, en síld var talin líkleg þar
sem hún hafði sést í vaðandi torfum inni á firðinum í morgun áður en
hafgolan fór að blása.
Laugardagur 7. ágúst 2004
Morgunverður / Pæjumót Ég mætti í morgunmat með Pæjunum í
morgun og smellti nokkrum myndum af starfsliði og pæjum. Á þessari mynd
er ung snót með elsta sjálfboðaliðanum í eldhúsinu, sem er Anna Lára
Hertervig, vel þekkt áhugmanneskja um fótbolta allt frá unglingsárum
hennar, en hún er orðin 81 árs En Anna er þekkt fyrir fleira en
fótbolta, hún hefur lengi verið dáð og vinsæl vegna hinna ýmsu starfa
sinna til menningarmála ofl. auk þess sem hún og maður hennar
fótboltakappi frá fyrri tíð Sveinbjörn Tómasson ráku hér verslun.
Smelltu á myndina og linkana til vinstri;
Pæjumótið (8-9) (einnig myndir frá fótbolta frammi á Hóli)
Laugardagur 7. ágúst 2004
Aðsent: Sæll Steingrímur, ég sendi þér hérna nokkrar
myndir sem ég tók í ferð eldri borgara. Það var farið héðan rúmlega 8 í
gærmorgun og fyrst stoppað á Sauðárkróki og síðan ekið fyrir Skaga, svo var
snæddur hádegisverður í Kántríbæ á Skagaströnd. -- Síðan var
ekið yfir Þverárfjall og svo hring í Hegranesinu, síðan var haldið heim
að Hólum og svo Stóragerði og skoðað þar bílasafn. -- Þaðan
var svo haldið í Höfðahóla og þegnar þar veitingar og svo var haldið til
Sigló. -- Þetta var frábær ferð í frábæru veðri í boði
Kiwanisklúbbsins Skjaldar í Siglufirði, hafi þeir kæra þökk fyrir. Sv.
Þ.
Laugardagur 7. ágúst 2004
PixMaker Er
merkilegur hugbúnaður, hægt er að sækja hann á netið ókeypis. Mynd sú sem
ég ætla að sýna ykkur mynd; þeim sem eru með háhraðatengingu
ADSL /1500 eða hraðar - Öðrum munn þykja seinlegt að sækja myndina,
því hún er stór. Þessi mynd er upphaflega tekin sem 8 ljósmyndir, en
forritið PixMaker setur þær saman í eina 180° mynd, svo ekki sjást
samskeyti. Myndin heitir frá Strákavegi til Hólsdals --
Smelltu á
Austurfjöllin.exeÞú getur
bæði opnað myndina beint frá glugganum sem upp kemur, eða vistað hana á
harða disknum þínum og opnað þar. - Þú getur stækkað myndina, allt upp í
skjá hæð, en breiddin er margföld, sem þu færir, handvirkt eð sjálfvirkt
með einum smelli,
Laugardagur
7. ágúst 2004 Pæjumótið, (seinnihluta dags í gær)
hélt áfram af fullum krafti í sama góða veðrinu, nema aðeins heitara. Ég
ætla ekki að hafa fleiri orð um það í bili en smelltu á myndina, eða
linkana til vinstri= Pæjumót (6-7)
Föstudagur 6. ágúst 2004
(fyrripart dags)
Pæjumótið hófs stundvíslega í morgun, slatti af myndum sem
teknar voru ("holt og bolt") frá klukkan 9:30-11:30 eru á næstu síðum =
Pæjumót (3-5). Það var gaman að horfa á krakkana, en þar sem ég
er ekki vanur þeim látum og öskrum, sem fullorðna fólkið lét frá sér
fara, þá skyggði það á ánægjuna, sérstaklega einstaka "þjálfarar" sem
öskruðu á liðin sín, hvatningar og jafnvel skammir. Kannski á þetta
að vera svona? Smelltu á myndina eða linkana til vinstri.
Það þarf ekki að taka það fram að veðrið var eins og best var kosið,
logn, sólskin og hiti.
Föstudagur 6. ágúst 2004 Morgunverður
/ Pæjumót. Fyrstu hópar liðanna komu til morgunverðar í sal
Hótel Lækur, Ég heimsótti Starfsliðið laust fyrir klukkan 8 í morgun og
smellti nokkrum myndum og síðan af krökkunum er fyrsta hollið kom.
Föstudagur
6. ágúst 2004 Pæjumótið. Stanslaus straumur
húsbíla, bíla, með og án tjaldvagna, var til Siglufjarðar í gærkveldi.
Um klukkan 20;00 voru helstu tjaldsvæðin orðin nær full. Nægt pláss er
þó á Hólssvæðinu og víðar í bænum, svo ekki þarf neinu að kvíða þrátt
fyrir það að von er á svipuðum eða jafnvel fleiri gestum en um síðustu
helgi. Yfir 1500 keppendur munu mæta til leiks- og ætla má að 2
fullorðnir fylgi flestum krökkunum auk annarra fjölskyldumeðlima. Myndin
hér er tekin rétt fyrir klukkan 20:00 í gærkveldi. Smelltu á myndina til
að sjá 4 í viðbót
>>>Afmæli í dagFöstudagur 6. ágúst
2004 Einnig; Ásta Júlía Theodórsdóttir, en mig vantar mynd (?)
Fimmtudagur 5. ágúst 2004
200 kg. af netveiddri síld. Sverrir Björnsson á Viggó SI
lagði í gærkveldi 2 síldarnet á "Hellunni" við Siglufjörð, og vitjaði í
morgun, hann kom núna laust fyrir hádegið í dag með 200 kg. úr þessum
róðri. Þetta er að mestu mjög falleg síld alt að 30 -35 sm,. Hannes
Baldvinsson gamalreyndur síldarmatsmaður frá gömlu góðu árunum, skoðaði
eina síldina sem var full af sandsílum- og bar síldin greinileg merki um
vaxandi þroska og komin var í síldina "mör". Nú er það spurningin; er
þetta af Norsk Íslenska stofninum eð eitthvað annað fyrirbrygði? Þetta
er einstakt fyrirbrygði sem ekki hefur skeð á marga áratugi. Auk þess
sem sjómenn segja merki um margar en smáar vaðandi torfur innan og utan
fjarðarins. Smelltu á myndina til að skoða fleiri myndir.
Fimmtudagur 5. ágúst 2004 Mér barst í morgun ánægjulegur
póstur, þar sem segir að Sparisjóður Mýrasýslu ætli að
styrkja síðu mína með veglegu framlagi, sem notað verður til kaupa á
nýjum tölvubúnaði. Kærar þakkir.
Fimmtudagur 5. ágúst 2004
Síld á Siglufirði - Það hefur ekki skeð í háa herrans tíð, að
síld hafi veiðst á Siglufirði, en þegar Kristinn Konráðsson var að vitja
um nokkur ýsunet í gær kom honum á óvart nokkrar síldar sem ánetjast
höfðu í net hans, hann hafði séð fiskivöðu og taldi víst að þar væri
ufsi á ferðinni, - en við nánari athugun reyndist þarna vera bæði ufsa
og síldarvöður- og síldin frekar í meira magni og stærri torfum. Viggó
SI lagði í morgun síldarnet á þessum slóðum, en hann er enn ókominn að
landi. Ég mun fylgjast með þessu. Á myndinni er Kristinn með eina af
síldunum sem ánetjuðust í net hans.
Fimmtudagur
5. ágúst 2004 Starfsmenn Suðurverks, sem unnið hafa
við gerð snjóflóðavarnargarðanna. Ég heimsótti svæðið norðanvert- og
naut fylgdar verkstjórans Guðmundar Sigurbjörnssonar um svæðið, sem og
lýsti verkinu, því sem komið er og það sem eftir er. Það gerir sér
enginn grein fyrir, nema að koma á svæðið, hversu viðamikið og
stórkostlegt verkefni þetta er, fleiri hundruð þúsund rúmmetrar af efni
hefur verið flutt til og frá, moldarjarðvegur þangað sem honum er óhætt
og grjót og björg þar sem því er ætlað hlutverk. þetta virðist ekki
mikið að sjá neðan úr bæ, nema það jarðrask sem þessu fylgir, sem er
áberandi. Vinnuvélarnar eru á fullu á bak við garðinn og sjást ekki nema
annað slagið bregða fyrir, og þá helst á matar og kaffitímum. Það eru
engir venjulegir karlar sem færir eru um að vinna svona verk, það þarf
bæði kjark og útsjónarsemi, því oft falla skriður og björg niður
hlíðarnar þar sem þeir vinna..
Smelltu á myndina til að skoða myndir frá vettvangi.
Miðvikudagur 4. júlí 2004
Erlenda skipið Trinket, kom í morgun til að lesta 630 tonn af
loðnumjöli til útflutnings frá Síldarvinnslunni á Sigló.
Miðvikudagur
4. júlí 2004 Flutningaskipið Jaxlinn kom í gærkveldi með tæp 1000 tonn
af kolmunnamjöli að austan frá Síldarvinnslunni, en allar geymslur eru
þar fullar en nægt pláss hér á Siglufirði. Á sama tíma var verið að
lesta í flutningabíl frá Norðurfrakt af hágæða loðnumjöli frá
Síldarvinnslunni á Siglufirði, sem fara á til Akureyrar í
fóðurverksmiðjuna þar.
Miðvikudagur
4. júlí 2004 Abby og Eysteinn. Þessi hjón, Arnfinna
Björnsdóttir og Eysteinn Aðalsteinsson er öllum Siglfirðingum að góðu
kunn, Sveinn Þorsteinsson sendi mér þessa skemmtilegu mynd af þeim
hjónum, sem hann tók er Síldarævintýrið stóð sem hæst. En þarna eru
hjónin á kafi í afgreiðslu í Fiskbúðinni sinni, þar sem hægt er að fá
allt matarkyns sem hugurinn girnist, bæði hrátt og soðið. Að auki heldur
Arnfinna úti verslun með handunnar vörur og myndir, að mestu sem hún
hefur sjálf unnið- og eru þar margir eigulegir munir, í Aðalgötu 7
Miðvikudagur
4. júlí 2004 Ein (2) gömul: Júlí 1965- Verið að dæla í núverandi Siglufjarðarflugvöll.
Þriðjudagur 3. ágúst 2004
Kynning: Video-áhugafólk, vitið þið af vefnum hjá Videoval?
þar er hægt er að skoða yfirlit yfir væntanleg myndbönd, nýrra og
gamalla. Smelltu
hér og skoðaðu.
Þriðjudagur
3. ágúst 2004 Ein gömul: -- Auðvitað þekki ég þennan
fyrrverandi skipsfélaga minn og vin. Það var oft glatt á hjalla um borð
í Haferninum forðum, með bestu skipsáhöfn sem nokkru sinni hefur stigið
öldurnar, skipshöfn sem var eins og ein stór fjölskylda. Þarna er
bátsmaðurinn í einu atriðinu í einni af mörgum kvöldvökum sem haldnar
voru um borð með og fyrir 24 manna áhöfn Hafarnarins. Ég ætla ekki að
nefna nafn hans, heldur til gamans lofa þeim sem skoða, að geta sér til
um nafnið.
Mánudagur
2. ágúst 2004 Aðsent: Að beiðni Steingríms,
sendi ég hér nokkrar línur um Síldarævintýrið.
Varðandi hátíðina þetta árið þá vil byrja á að þakka bæjarstarfsmönnum,
björgunarsveitarmönnum, lögreglunni, skemmtikröftum og öðrum sem að
þessu komu fyrir frábært samstarf. Gestir urðu mun fleiri en búist var
við en allt fór afskaplega vel fram, reyndar myndaðist á tímabili
umferðarhnútur úti við göng en það leystist allt. Þeir sem heimsóttu
bæinn voru að stærstum hluta fjölskyldufólk og var markmið okkar að
bjóða uppá fjölbreytta dagskrá og hef ég ekki heyrt annað en að fólk
hafa skemmt sér vel og notið þess sem var í boði. Eflaust er eitthvað
sem betur má fara og er það verkefni fyrir þá sem halda utan um
Síldarævintýrið á næstu árum! Með kveðju -
Theodór
Mánudagur
2. ágúst 2004 Gestir Síldarævintýrisins. Um klukkan
16:00 höfðu 650 bílar farið um Strákagöng, megnið að líkindum gestir
Síldarævintýrsins á leið heim. Tjaldvögnum, húsbílum og tjöldum hafði
fækkað verulega, en þó voru nokkrir sem voru ekki að flýta sér, eða
jafnvel að huga að lengri dvöl. Myndin hér sýnir glögglega samsetningu
þeirra sem sóttu Siglufjörð heim; það er fjölskyldufólk í mjög miklum
meirihluta. Þessi mynd var tekin rétt fyrir klukkan 16:00 í dag og sýnir
krakkaföt til þerris, ekki vegna rigningar eða polla á svæðinu, sem
sáust ekki, heldur ef til vill eftir busl í fjörum, veiðiskap á
bryggjum- eða bara einfaldlega tápmikil börn sem hafa unað sér vel með
pabba og mömmu í veðurblíðunni á Sigló. Ekki ber öllum saman um
gestafjölda, en ef reikna má með ónákvæmu meðaltali, þá hafa verið hér
um 5000-6000 gestir um helgina, og mikið var um skyndiheimsóknir úr
nágrannabyggðum, allt frá Akureyri að austan og Blönduós að vestan.
Lögreglan sagði mér að hjá þeim hefði verið mjög róleg helgi, jafnvel
minna en um venjulega helgi á Sigló. Ekki hefur orðið vart neinna
eiturlyfjabyrlara eða sjúklinga, þrátt fyrir að greinilegt var, að
lögreglan fylgdist vel með. Og ekki er hægt að segja að borið hafi á
"útihátíðarfyllirí" þó svo að dansað hafi verið til klukkan 3-4 á
nóttunum- bæði á Torginu sjálfu og inni á Kaffi Torg og Allanum- og
mikið fjör auðvitað. Enginn mun hafa þurft gistingu í fangageymslu.
Mánudagur 2. ágúst 2004 Á
morgunrúntinum, í morgun, sá ég litla hreyfingu í tjaldbúðunum.
Einstaka morgunhanar voru að hella upp á könnuna, aðrir flatmöguðu í
sólinni (17 °C) við "tjald"skörina- og svo eins og gengur fólk var á
leið til eða frá snyrtingum með tannburstann sinn og tilheyrandi. En
lítið fararsnið var á fólki. --
Þessi hópur sem á myndinni er, voru víst ekki farnir að sofa, veðrið er
alltof gott til að kúrast inni í tjaldi eða heima í rúmi sögðu þau. Sumir þessa
drengja og stúlka, er heimafólk, aðrir gestkomandi (?). Aðsendar
upplýsingar um nöfn ofl.: Halldór Þormar Hermannson (Hemma Jónasar),
Gunnar Freyr Sigurðsson (Sigga Bald), Stefán Heiðar Erlingsson (Erlings
Óskarssonar Fv. Bæjarfótgeta á Sigló) og ég Guðmundur Óli Sigurðsson,
pabbi næstur, Sigurður Oddson og kona hans Margrét Þórarinsdóttir
(Minnir alveg endilega að mamma hennar hafi átt heima á Sigló fyrir
mörgum árum. og svo Átti Margrét heima á Sigló í nokkur ár. Svo allt er
þetta fólk sem á rætur í Siglufirði)
Mánudagur
2. ágúst 2004 Aldrei hafa jafnmargir húsbílar og
tjaldvagnar verið á Siglufirði og nú um Verslunarmannahelgina. Á
myndinni má sjá yfir miðbæinn þar sem áberandi eru þessi híbýli manna á
ferðalögum. En þessir vagnar og tjöld voru í nær hverju plássi sem laust
fannst í bænum, svo og frammi á firði og Hóli. Ég náði að smella af
nokkrum myndum þrátt fyrir tafir vegna tölvuræfils míns, Myndirnar sem
koma í ljós ef þú smellir á myndina, voru teknar í gærdag og í
gærkveldi.
Mánudagur
2. ágúst 2004 Það var mikið um að vera í gær eins og
undanfarið. - Í gærmorgun var helgistund uppi í Hvanneyrarskál klukkan
10:00, þangað mættu hestamenn úr Glæsi, ásamt gangandi og akandi. Myndir
sem ég tók í gærmorgun en komust ekki á netið í gær vegna tölvubilunar,
koma nú í ljós, smellirðu á myndina