Og kominn 10 metra upp í loftið
Og kominn með bjór í hendi
Þá er að undirbúa hveitisöluna
Og klæðast viðeigandi búningi - en það fór að rigna
Þá rak hann augun í skiltið, aem á stóð: "Stelpur, stelpur, nú er síðasti séns að fá koss fyrir hveiti, - því ég er genginn út."
Og fyrsti kossinn hefur verið afgreiddur (kossin kom svo óvænt að ég missti af því) og hveitið afhent í staðinn.
Var þessi koss betri en ég á að venjast? Svei mér, ég held ekki. Gæti Baldi verið að hugsa.
Þá er að gera annan poka tilbúinn fyrir næsta koss !
Baldi er þarna kominn í hið besta skap, - en hér líkur hinni opinberu sögu. - Enginn fær að vita upp á hverju félagar hans tóku næst.