Lífiđ í okt 10-16 2004 | Lífiđ í okt 17-23 2004 | Lífiđ í okt.24-31 2004 | Lífiđ í okt 1-10 2004

>>>>>>>>>>> Lífiđ í okt 17-23 2004

 

Til forsíđu
Til baka
Fiskmarkađur
Steggjapartí




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirđi
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

   Siglfirski fréttavefurinn  Lífiđ á Sigló- s. 892-1569

Námskeiđ í ullarţćfingu - verđur haldiđ á Sigló í byrjun nóvember nćstkomandi, ef nćg ţátttaka fćst. Námskeiđiđ hentar bćđi byrjendum og ţeim sem lengra eru komnir. - Ódýrara og einfaldara en ţú heldur. Upplýsingar gefur Margrét Steingrímsdóttir í síma 896-5351

Laugardagur 23. október 2004  Fiskmarkađurinn sem hér var stofnađur fyrr í mánuđinum er nú kominn aftur á skriđ eftir ógćftirnar undanfarna daga. Mikill og vćnn fiskur barst ţangađ í gćr og allt var ţar á fullu er ég heimsótti markađinn í gćrkveldi. Ég tók ţar myndir af starfseminni.
Smelltu á myndina.

Laugardagur 23. október 2004 Steggjapartí. Félagar Baldvins Ingimarssonar héldu honum geggjađ steggjapartí í gćrkveldi í tilefni af ţví ađ hann er genginn út. En hann ćtlar ađ gifta sig Hrefnu Katrínu Svavarsdóttur, sem raunar kom einnig fram í tilefni af gćsapartí sem henni var haldiđ ţann 15. október síđastliđinn. Félagar Balda bakara komu međ hann akandi í körfu, stoppuđu á Torginu og hífuđu um 10 metra í loft upp og sögđust ekki slaka honum niđur fyrr en hann hćtti viđ giftinguna. Baldi neitađi auđvitađ og félagarnir gáfust upp á biđinni og lofuđu honum niđur, en létu hann í stađinn auglýsa og selja hveiti á Torginu.

Laugardagur 23. október 2004  Sunna SI 67 - Samkvćmt Fiskifréttum, ţá er Sunnan komin á Flćmska hattinn til rćkjuveiđa eftir rúmlega árs hlé. Skipiđ ef nú skráđ í Eistlandi og mun veiđa á Eistlenskum sóknardögum. Ađ útgerđ skipsins stendur félagiđ Anglo ehf en eigandi ţess er Bjarnar ehf og tengdra ađila, međal annarra Ţormóđur rammi Sćberg.  --- Einnig úr Fiskifréttum: Ţrír af hverjum fjórum ísrćkjutogurum hćttir, eđa ađ hćtta. -- Ţar á međal eru Múlaberg SI 22 sem er kominn á fiskitroll - Sólberg SI sem fer á fiskitroll - og Stálvík SI 1 sem verđur lagt.

Laugardagur 23. október 2004  Morgunblađiđ fyrir 50 árum

Laugardagur 23. október 2004  Ein gömul:  18. júlí 1962, var síldarflutningaskipiđ Stokkvik, nćrri sokkiđ viđ löndunarbryggju SR á Siglufirđi. Orsökin var sú ađ skipstjórinn lét fjarlćgja milliskilrúmin í miđju skipsins, ţrátt fyrir andmćli löndunarkarla, međ ţeim afleiđingum sem löndunarkarlarnir spáđu; síldin rann út í ađra hliđ skipsins og má segja ađ fyrir snarrćđi SR manna, ţá tókst ađ njörva skipiđ viđ bryggjupollana međ vinduvír sem ţarna var til stađar og og međ hjálp fráfalls, ţá strekktist á vírunum og skipiđ hallađi ekki meir. Síđan kom dýpkunarskipiđ Björninn og "krabbađi" síldinni úr bakborđshliđ skipsins ţar til ţađ rétti sig viđ og eđlileg löndun hélt áfram. Skipstjórinn létt ekki sjá sig viđ nćstu landanir skipsins sem kom nokkrar ferđir til viđbótar međ síld frá Seyđisfirđi ásamt fleiri skipum.

Smelltu á >> Afmćli í dag Laugardagur 23. október 2004

Föstudagur 22. október 2004  Kajakamyndir. Ef ađ einhver sem sér, eđa ćtti myndir frá Kajaka árunum gömlu, vinsamlega sendiđ mér, ég er ađ safna svona myndum og mig vantar alveg myndir sem teknar vćru inni í firđi.
Sveinn Ţorsteinsson
svennith@simnet.is
 

Föstudagur 22. október 2004 Ýtarleg frásögn af slysi, birt í blađinu Fram í nóvember 1922  -- Mun ýtarlegri en fréttamenn mundu greina frá á okkar tímum, áriđ 2004 ? 
Byrjađu á mynd; frá vinstri til hćgri.

Föstudagur 22. október 2004 Ein gömul:
Bjarni Bjarnason (Boddi Gunnars) og Júlíus Gunnlaugsson.

Smelltu á >> Afmćli í dag  Föstudagur 22. október 2004

Fimmtudagur
21. október 2004 -

JE-Vélaverkstćđi.
Ég leit inn hjá ţeim félögum, sem allir voru önnum kafnir í verkefnum. En ađal verkefni ţeirra ađ undanförnu hefur veriđ viđ ađ sinna smábátunum, bćđi heimbátum og ađkomubátum. Ţađ má segja ađ sú ţjónusta sé alhliđa, allt frá smá reddingum - véla og búnađarskipta og breytingar, og einn bát eru ţeir nú ađ vinna viđ ađ lengja um tćpa tvo metra. Myndirnar hér sem teknar voru eftir hádegiđ í dag sýnir bátinn sem veriđ er ađ lengja. Fjóra af 10 starfsmönnum verkstćđisins; Guđni Sigtryggsson verkstćđisformađur - Sigurđur Steingrímsson - Ámundi Gunnarsson og Gunnar Ţorsteinsson og ţriđja myndin sýnir tvo af bátum sem eru í klössun hjá ţeim, fjórđi báturinn lá viđ bryggjuna framan viđ verkstćđiđ međ lekar glussaslöngur viđ stýrisbúnađ.

Fimmtudagur 21. október 2004
Úr fundargerđ Siglufjarđarkaupstađar frá 1922, birt í blađinu Fram 16. desember 1922 -

Fimmtudagur 21. október 2004  Ein gömul: Jón Sigurđsson - Ásgeir Björnsson - Ari Jónsson og Gísli Hallgrímsson.

Smelltu á >> Afmćli í dag Fimmtudagur 21. október 2004

Miđvikudagur 20. október 2004 Síldarminjasafniđ.
(Bátahúsiđ)
Ţangađ skrapp ég í morgun og fékk mér kaffisopa međ ţremur heiđursmönnum; Örlyg Kristfinnssyni safnverđi - Páli Helgasyni kennara og Ţór Jóhannssyni safnara. En í sal Bátahússins hitti ég á eftir Svein Ţorsteinsson starfsmann safnsins viđ "föndurvinnu," ţađ er viđhald eins af safngripunum, sem margir hverjir ţarfnast ađhlynningar. Alls munu um 14 ţúsund safngestir hafa komiđ í safniđ ţađ sem af er ţessu ári

Miđvikudagur 20. október 2004

<<<< Smelltu á myndina

Miđvikudagur 20. október 2004 Ein gömul: Saumaklúbbur, tekiđ 7. apríl 1962 - Ég ţekki ţćr allar (međ gćlunafni) en gef mér ekki tíma til ađ fletta ţví upp. Einhver sendir mér nöfnin. -Er ţađ ekki?


Smelltu á >> Afmćli í dag  Miđvikudagur 20. október 2004

Ţriđjudagur 19. október 2004  Ein gömul:  Óskar Garđarsson og Jón Sigurđsson.

Ţriđjudagur 19. október 2004  Nýlega fćddir Siglfirđingur
Smelltu á >> Afmćli í dag Ţriđjudagur 19. október 2004 -

Mánudagur 18. október 2004  Um klukkan 15:45 í dag afhenti formađur kvenfélagsins Von fyrir hönd félaga, Önnu Gilsdóttur hjúkrunarforstjóra Heilbrigđisstofnun Siglufjarđar, stofnuninni ađ gjöf  sérstaka bađstóla sem ćtlađir eru mikiđ sjúkum sjúklingum vegna hinnar venjubundnu hreinlćtis ummönnunar. Myndin sýnir Konráđ Baldvinsson framkvćmdastjóra - Auđur Björnsdóttir, Von - María V Karlsdóttir, Von - Anna Snorradóttir formađur Von, - Pálína Pálsdóttir, Von - Guđlaug Guđmundsdóttir,Von  og Anna Gilsdóttir hjúkrunarforstjóri. Stólarnir eru í forgrunni. Einnig var stofnuninni afhentar litlar sérhannađar sálmabćkur ađ gjöf frá kvenfélaginu Von.

Mánudagur 18. október 2004  Ţađ er lítiđ um ađ vara á Sigló í dag og ekki komst ég ađ neinu markverđu, en til ađ fylla upp í fréttaleysiđ, ţá kemur hér ein eldgömul frétt. Blađiđ Norđri á Akureyri desember 1920.

Mánudagur 18. október 2004  Ein gömul: SR-ingunum (suđurbćingunum) keyrt heim í hádeginu,- Frystihúsiđ og "lóđin."

Mánudagur 18. október 2004  Nýlega fćddur Siglfirđingur
Smelltu á >> Afmćli í dag
Mánudagur 18. október 2004

Sunnudagur 17. október 2004 Ein gömul: 
Vel variđ; KS og KA - 17. september 1961

Smelltu á >> Afmćli í dag Sunnudagur 17. október 2004