Söngskemmtunin | Hugmyndasamkeppni | 60 ára Steini Gæ | Jólaball - 3 | Biljarð | Jólaball - 2 | Jólaball Lion | "Snjó" myndir | Pizzuhlaðborð | Skötuveislur | Sólstöðutónleikar | 0000 | Karlakórinn

>>>>>>>>>>> Hugmyndasamkeppni

 

Til forsíðu
Til baka




Ljósmyndasafn Steingríms
á netinu.

Steingrímur Kristinsson Siglufirði
G-892-1569
S-467-1569

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Hugmyndasamkeppni um atvinnutækifæri og fjölgun starfa í Siglufirði.

Siglufjarðarkaupstaður efndi til hugmyndasamkeppni um atvinnutækifæri og fjölgun starfa í Siglufirði, skilafrestur á hugmyndum var til 20. nóvember 2004. Skila átti hugmyndum inn undir dulnefni og nöfn höfunda með í lokuðu umslagi. 

Þrjár tillögur bárust.

  1. Ásinn, sendandi Ásinn. Hugmyndin gerir ráð fyrir að byggð verði 3-10 sumarhús og þjónustumiðstöð á Ásnum. Í þjónustumiðstöð yrði kennslu- og  fundaraðstaða, veitingarekstur ásamt skrifstofnum fyrir starfsmenn.
  2. Frístundabyggð á Ásnum, sendandi Salka Valka. Hugmyndin gerir ráð fyrir 150-200 m2 þjónustu og söluskála auk ca. 200 m2 viðbyggingar er hýsir módel með 6-10 herbergjum. Einnig verði byggðir 10 bústaðir 40-60 m2.
  3. Jarðgerðartromla, sendandi Jón Jónsson og Jón Jónsson. Hugmyndin gerir ráð fyrir að smíða rafknúna tromlu sem tekur á móti úrgangi frá um 150 heimilum.

Bæjarráð tilnefndi í dómnefnd eftirtalda aðila:

Runólf Birgisson bæjarstjóra og Skarphéðinn Guðmundsson af hálfu bæjarins, Signý Jóhannesdóttur frá Verkalýðsfélaginu Vöku, Konráð Karl Baldvinsson og Magnús Jónsson frá atvinnurekendum í bænum. Hafþór Rósmundsson tók sæti í nefndinni fyrir Signý Jóhannesdóttur. Nefndin kaus sér formann Konráð Karl Baldvinsson

Dómnefndin hélt fjóra fundi og voru fundarmenn sammála um að allar tillögur væru mjög áhugaverðar og samþykkti að skipta verðlaunafé með eftirfarandi hætti:

  1. Jarðgerðartromla                      50.000
    Höfundar: Arnar Heimir Jónsson garðyrkjufræðingur og SR-Vélaverkstæði hf Siglufirði
  2. Ásinn                                        25.000
    Höfundar: Kjartan Jónsson og Guðmundur Stefán Jónsson.
  3. Frístundabyggð á Ásnum           25.000
    Höfundur Guðmundur Davíðsson.

Dómnefndin þakkar aðilum fyrir framkomnar hugmyndir og mun óska eftir viðræðum við alla aðila um frekari útfærslur og hvernig nefndin og bæjaryfirvöld geti hugsanlega komið að og stutt við bakið á framangreindum hugmyndum. 

Siglufirði 30.desember 2004 --  fyrir hönd dómnefndar,

Konráð Karl Baldvinsson form.