|
Föstudagur
31 desember 2004 Lífið á Sigló, Ljósmyndasafn Steingríms,
- ég og kona mín óskum öllum gleðilegs árs með
þökk fyrir samfylgdina á liðnu ári. Ég ætlaði ekki að taka
neina mynd um miðnættið vegna logndrífunnar sem hófst upp úr 23:00- en
datt svo í hug að fara og taka mynd, svona til að athuga hverju ný
myndavél mín gæti skilað við flugelda myndir. Niðurstaðan var sú að
stafræn myndavél mín þó fullkomin sé getur ekki haft opið nema í 30
sekúndur, ekki ótakmarkað eins og gamla góða filmuvélin mín. Myndin sem
ég tók var vélin opin í aðeins 20 sekúndur svo ljósadýrðin er ekki
mikil, auk þess sem skyggnið var takmarkað. |
|
_small.JPG) _small.JPG) Föstudagur
31 desember 2004
Myndin lengst til vinstri var tekin um klukkan 10:30 í morgun, en þá var nánast logn og hiti
um frostmark.Hinar tæpum 12 tímum síðar. Eins og kemur fram hér fyrir neðan, þá ollu veðurguðirnir
- eða eigum við að segja veðurfræðingarnir usla á meðal skipuleggjanda
brennu og flugeldaskota, talsverðum vangaveltum og að einnig þeim
ákvörðunum að að öllu eldfimum aðgerðum skyldi frestað. En eins og þegar
er á allra vitorði spáðu fræðingarnir vitlausu veðri á viðkomandi
tímapuntum. Leiðinda veður með snjókomu og norðan kalda var "á tíma"
brennunnar 16:30, svo það var greinilega rétt ákvörðun þess augnabliks
brennumanna að fresta brennunni. (sem var samkvæmt ráðleggingu
veðurstofunnar) Þó svo að veðrið, sem sagt var að mundi koma hafi
ekki komið.Rétt upp úr klukkan 18:30 var komið logn og orðið úrkomulaust.
Þannig var veðrið til um kl, 23:00 er fór að snjóa (2jólasnjór), með smá
andvara. Það hefði sem sé ekki getað verið betra veður til flugelda
skota á áður tilsettum tíma, en þeir voru í vanda staddir drengirnir,
ekki síst með tilliti til veðurfræðinganna, sem í gegn um tíðina hafa
átt ´kaflega erfitt að spá til um veður innan fjallanna okkar. En hvað
sem því líður, þá gerði logndrífan ekki mikið tilefni til myndatöku af
minni hálfu um miðnættið. |
|
Föstudagur 31 desember 2004
Áramótabrennan sem vera átti á Suðurtanga
klukkan 16:30 í dag verður frestað
til morguns (tími ekki ákveðinn) og Flugeldaskotin sem hefjast áttu, eins og
venjulega klukkan 21:00 á Gamlaárskvöldi,
HEFUR VERIÐ FRESTAÐ allt vegna mjög slæmrar
veðurspár
Ekki hefur enn verið ákveðið hvenær
flugeldasýningin verður, en það verður ekki á þessu ári, samkvæmt
upplýsingum frá skotdeildinni. Tilkynnt verður frekar um væntanlegan
skotdag síðar á þessum vettvangi |
Föstudagur
31 desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 1 °C
Andvari
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Föstudagur 31 desember 2004 -
Brennið þið vitar. Fjölbreytt söngdagskrá fór fram í Bátahúsinu í
gærkvöld eins og auglýst var
hér á síðu minni. Húsfyllir var,
hvert sæti skipað eða vel á þriðja hundrað manns mættu. Þeim sem fram
komu var ákaflega vel fagnað og margsinnis klappað upp. Ég mætti og tók
drjúgan slatta af myndum.
Vegna fjölda mynda af þeim sem ég "pikkaði út," kemur aðeins um
helmingur þeirra á síðuna á þessu ári........... restin verður að bíða
til næsta árs. 1. jan 2005 |
Föstudagur
31 desember 2004 Ein gömul: Frá
apríl 1965 |
Föstudagur
31 desember 2004
Óðinn Freyr Rögnvaldsson
er 36 ára í dag |
Föstudagur
31 desember 2004
Þorsteinn B Bjarnason
er 35 ára í dag |
Föstudagur
31 desember 2004
Margrét Hallgrímsdóttir
er 59 ára í dag |
Föstudagur
31 desember 2004
Kristinn Georgsson
er 71 árs í dag |
|
Fimmtudagur
30. desember 2004
Hugmyndasamkeppni um atvinnutækifæri og
fjölgun starfa í Siglufirði. Siglufjarðarkaupstaður efndi til
hugmyndasamkeppni um atvinnutækifæri og fjölgun starfa í Siglufirði,
skilafrestur á hugmyndum var til 20. nóvember 2004. Skila átti hugmyndum
inn undir dulnefni og nöfn höfunda með í lokuðu umslagi.
Þrjár tillögur bárust. Smelltu
hér |
|
Fimmtudagur
30. desember 2004 Nýfæddur Siglfirðingur Guðmundur
Eggertsson og Guðný Kristinsdóttir voru að eignast son þann 27.
desember: Strákurinn var 14merkur og 52cm. Hérna er heimasíða stráksins
þeirra http://www.barnaland.is/barn/24100 |
|
Fimmtudagur
30. desember 2004 Björgunarsveitin Strákar er með sína
árlegu flugeldasölu í Þormóðsbúð. Salan gengur mjög vel og voru
drengirnir glaðhlakkalegir á svip, enda sitja þeir einir af sölunni í ár
þar sem Kiwanisfélagar hafa hætt afskiptum á þessum markaði. |
|
Fimmtudagur 30. desember 2004
Það hefur verið hefð í áratugi, að þegar starfsmenn SR og
síðar Síldarvinnslu og SR-Vélaverkstæðis á Siglufirði eiga afmæli, þá
komi þeir með tertu í þá kaffistofu sem þeir venjulega drekka sitt kaffi
á vinnunnustað. Þetta vissi ég sem gamall starfsmaður og mætti því í
morgunkaffið á SR-Vélaverkstæði, en eins og sést
hér neðar á síðunni þá er einn
starfsmaðurinn 60 ára í dag og ekki brást það frekar en venjulega,
tertan var mætt, raunar margar, svo og vinnufélagarnir, fyrrverandi (2)
og núverandi, bæði frá vélaverkstæði, skrifstofum og Síldarvinnslunni.
Efst á síðu |
Fimmtudagur 30. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 1 °C
Sunnan 8 -10 m/s
Smáél
Efst á síðu |
Fimmtudagur 30. desember 2004
BRENNIÐ ÞIÐ VITAR
SÖNGSKEMMTUN KARLAKÓRS SIGLUFJARÐAR
Í BÁTAHÚSINU
30.DES 2004 KL 20,30 Smelltu
hér eða á
vitann
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
30. desember 2004 Aðsend mynd. Þessi einmanna skarfur
virðist vera eitthvað vankaður, eða kannski óhræddur við mannaferðir og
blossa myndvélarinnar, en myndasmiðurinn Sverrir Gíslason tók nokkrar
myndir af skarfinum án þess að hann gerði neinar athugasemdir við það,
og hér kemur ein þeirra.
Myndavél: Canon PowerShot A75- Myndin er tekin 27.12 klukkan
13:18 |
|
Fimmtudagur
30. desember 2004 Ein gömul: Þessi mynd er tekin 6.
apríl 1965 - Myndin ætti ekki að þarfnast frekari skíringar.
Efst á síðu |
Fimmtudagur
30. desember 2004
Guðmundur Sigurðsson
(Gummi Sigurðs)
er 24 ára í dag |
Fimmtudagur
30. desember 2004
Halldóra María Elíasdóttir
er 30 ára í dag
Efst á síðu |
Fimmtudagur
30. desember 2004
Steingrímur Jóhann Garðarsson
er 60 ára í dag |
Fimmtudagur
30. desember 2004
Óðinn Gunnarsson
er 46 ára í dag
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur 29. desember 2004
Og enn um farsíma Morgunblaðið Tækni & vísindi | AP |
28.12.2004 | 13:35 - Farsími varð 36 breskum ferðamönnum á
Sri Lanka til bjargar. ---
36 breskum ferðamönnum sem urðu strandaglópar við Hikkaduwa-ströndina í
suðurhluta Sri Lanka var bjargað þaðan í dag. Það varð fólkinu til
hjálpar að einn úr hópnum hafði á sér farsíma sem björgunarmenn gátu
staðsett, að því er stjórnandi björgunaraðgerðanna á Sri Lanka sagði í
samtali við AFP-fréttastofuna. --
Vonandi verður aldrei þörf fyrir farsíma í álíka hörmungum hér á landi
SK |
|
Miðvikudagur 29. desember 2004
Aðsent: Heill og sæll Steingrímur og
gleðilega hátíð.
Vegna umfjöllunar um GSM
samband í Fljótum og á Almenningum vil ég benda á að ítrekað hafa
bæjaryfirvöld á Siglufirði verið með þetta til skoðunar og reynt eftir
megni að þrýsta á málið hjá Landssímanum. Þann 4. júlí 2002 var
eftirfarandi t.d. bókað á fundi bæjarráðs: “- GSM samband í
Fljótum og Almenningum. - Borist hefur bréf frá Landssímanum þar sem
svarað er erindi þess efnis að komið verði á GSM – sambandi í Fljótum og
Almenningum. Landssíminn telur ekki fjárhagslegan grundvöll fyrir því
að bæta GSM – sambandið á svæðinu þar sem það krefðist uppsetningar
einnar eða fleiri nýrra sendistöðva. -- Bæjarráð harmar mjög
afstöðu Landssímans og felur bæjarstjóra að kanna málið nánar.”
Síðar hefur málið verið kannað nánar og viðbrögðin hafa því miður verið
á sömu lund, þ.e. ekki er grundvöllur fyrir því að setja upp þessar
sendistöðvar og þar við situr. ÞH
Efst á síðu |
Miðvikudagur
29. desember 2004
Sverrir Björnsson og Ragnheiður Rögnvaldsdóttir eiga 40
ára brúðkaupsafmæli í dag |
Miðvikudagur
29. desember 2004
Vignir Ólafsson
er 14 ár í dag
Efst á síðu |
Miðvikudagur 29. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 4 °C
Sunnan 10 - 12 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur 29. desember 2004
Aðsent: Gleðileg jól Steingrímur minn, okkur í BJ.SV.STRÁKAR
hefur borist til eyrna að björgunarsveitin hafi ekki getað farið
á aðfaranótt aðfangadags til að aðstoða bíla í vandræðum á leiðinni
Ketilás-Siglufjörður, ÞETTA ER EKKI RÉTT, OKKUR BARST EKKI NEIN BEIÐNI
UM AÐSTOÐ ÞESSA NÓTT, og í annan stað vegurinn var lokaður vegna
snjóflóðs. Svo mættu einhverjir góðir pennar aðstoða okkur við að þrýsta
á yfirvöld um að fá GSM endurvarpa td. á Reykjarhól, þá er komið GSM
samband á ALMENNINGUNUM og í Sléttuhlíð, við óskum svo öllum
Siglfirðingum nær og fjær, og öðrum velunnurum gleðilegra jóla og
farsældar á komandi árum. ( munið það þarf einhver að láta okkur vita
svo að við getum aðstoðað )
Kærar þakkir : BJ.SV.STRÁKAR. Ó.G. --- Ekki
hefi ég heyrt þessa gróusögu fyrr, um að "Strákarnir" hafi ekki getað
sinnt kalli, það væri eitthvað meir en lítið að ef þeir þeir þyrftu að
hafna slíku, ég er þess fullviss að þeir mundu einskis svífast til þess
eins að geta veitt aðstoð þegar á þarf að halda, og þá mundi ekki ein
eða tvær snjóskriður hindra slíkt, þeir mundu gera viðeigandi
ráðstafanir og útvega tæki til að ryðja slíkum hindrunum úr vegi. En
eins og segir hér ofar; þeir þurfa að fá vitneskju um aðstoðarþörfina
til að geta sinnt henni. Og hvað varðar GSM endurvarpann, þá hefur þetta
verið nefnt áður, en án árangurs, ef til vill þarf einhver að verða úti
(frjósa í hel) áður en "herrarnir" þarna fyrir sunnan gera eitthvað í
málinu. Hvernig er það með þig Kristján Möller, getur þú ekki gert
eitthvað í málinu, þrýst á rétta aðila? SK
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
29. desember 2004 Ein gömul:
Helstu topparnir hjá Síldarverksmiðjum Ríkisins á Siglufirði á
leið í Danmerkurferð, í boði stjórnar SR þann 24. febrúar 1965. Steinn
Skarphéðinsson verkfæravörður - Björn Friðbjarnarson verkstjóri
SR-frystihúss - Baldur Steingrímsson rafvirkjameistari - Páll G
Jónsson byggingameistari - Sigurður Elefsen vélvirkjameistari, Jóhann
Garibaldarson lýsismeistari og Magnús Þorláksson vélstjóri. Myndin er
tekin er Drangur lagði frá bryggju á Siglufirði til Akureyrar, með
kappana í fyrsta áfanga ferðarinnar, en fleiri SR-ingar áttu eftir að
bætast í hópinn. |
Þriðjudagur 28. desember 2004
Bátadokkin í morgun klukkan 10:15
Efst á síðu |
Þriðjudagur 28. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 2 °C
Sunnan
4 -
6 m/s
Él
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur 28. desember 2004
Aðsent:
Jóla-barna-ball. Vel á annað hundrað
manns skemmtu sér á jólaballi Siglfirðingafélagsins í Reykjavík og
nágrennis, þetta árið. Hljómsveitin Fjörkallar spiluðu undir og ungir
jafnt sem aldnir skemmtu sér vel. Veitingarnar voru ekki af verri
endanum, enda stóð "nefndin" í ströngu í eldhúsinu og bakaði vöfflur.
Vöfflunum og smákökunum var rennt niður með heitu súkkulaði með rjóma.
Gáttaþefur mætti á staðinn, söng og trallaði. Eftir að hann hafði dansað
í kringum jólatréð með krökkunum settist hann niður og gaf góðgæti.
Allir skemmtu sér frábærlega og eru strax farnir að hlakka til að hitta
vini á næsta jólaballi sem verður eflaust á sama stað eftir ár.
G.Þ.A. |
|
Þriðjudagur
28. desember 2004 Ein gömul: Kaupstaðirnir
keppa, spurningaþáttur á vegum Ríkisútvarpsins, (bein útsending frá Nýja
Bíó Siglufirði) 19. febrúar 1965.- Spekingarnir; Pétur Gautur
Kristjánsson - Benedikt Sigurðsson og Hlöðver Sigurðsson, kepptu fyrir
Siglufjörð og stóðu sig vel.
Efst á síðu |
Þriðjudagur
28. desember 2004
Elínborg Ágústdóttir
er 41 árs í dag |
Þriðjudagur
28. desember 2004
Sigurður Ómar Hauksson
er 54 ára í dag
Efst á síðu |
|
Mánudagur
27. desember 2004
Aðsendar myndir frá Jólaballi Lions. Eins og kom fram með
myndunum sem ég tók af jólaballinu, þá var Jón Dýrfjörð einnig með
myndavél á vettvangi (tengill til minna mynda
hér) Jón sendi mér myndirnar
sem koma í ljós ef þú smellir á myndina, en hann dvaldi lengur en ég á
vettvangi. |
Mánudagur
27. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 0 °C
Suðvestan
6 - 8 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
Mánudagur
27. desember 2004 Síldarminjasafnið umlukt ljósadýrð.
Myndin er tekin klukkan 10:00 í morgun.
Efst á síðu |
|
Mánudagur
27. desember 2004
Magnúsarmót og Jólamót Allans í
tvíliðakeppni í biljarð fór fram í Allanum í gærdag og lauk um
kvöldið Sigurvegarar á Magnúsarmóti voru: 1. Guðjón Marinó Ólafsson - 2. Björn Gaui
Haraldsson - 3. Eyjólfur Bragi Guðmundsson. Sigurvegarar á Jólamótinu
voru; 1. sæti: Daði Már Guðmundsson og Grétar Örn Sveinsson - 2. Guðjón
Marínó Ólafsson og Árni Valgarð Stefánsson - 3. Páll Þorvaldsson og
Björn Gaui Haraldsson.
Efst á síðu |
|
Mánudagur
27. desember 2004 Jólaball fyrir börn á vegum Lionsfélags
Siglufjarðar var að Kaffi Torg seinnipartinn í gær.
Ég leit þar við, ég stoppaði stutt en tók samt nokkrar myndir.
Efst á síðu |
|
Mánudagur
27. desember 2004 Ein gömul:
Sigurður Sigurðsson læknir - kona hans (Dóra(?) - Erla Finnsdóttir -
Magðalena Hallsdóttir - Helgi Sveinsson - Steinunn Rögnvaldsdóttir -
Birgir Schiöth og Haukur Magnússon, á árshátíðardansleik Bridsfélags
Siglufjarðar, 20. febrúar 1965
Efst á síðu |
Mánudagur
27. desember 2004
Rakel Rut Heimisdóttir
er 6 ára í dag |
Mánudagur 27. desember 2004
Efst á síðu |
|
Sunnudagur 26. desember 2004
Veðrið og snjórinn sem gengið hefur yfir norðausturland yfir jólin hefur
ekki angrað Siglfirðinga mikið, það var jú leiðinda veður og snjókoma á
aðfangadag en ekkert í líkingu við það sem var á Akureyri og þar fyrir
austan ef marka má fjölmiðlana. Hér er varla hægt að tala um snjóþunga,
sáralítill snjór í fjöllunum og allar götur færar, jafnvel þó sumar
þeirra hafi lítið eða ekkert verið mokaðar. Bæjarkarlarnir voru þó á
varðbergi og sáu til þess að engar götur lokuðust. Að beiðni fjölmargra
þá fór ég á vettvang til að taka "snjómyndir" en átti erfitt með að
finna einhvern slíkan vettvang, en tók þó nokkrar myndir til að sýnast.
Smelltu á kirkjuna. |
Sunnudagur 26. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 3 °C
Suðvestan
4 - 6 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Sunnudagur
26. desember 2004 Ein gömul:
Bráðum kemur að áramóta brennu- og ef að líkum lætur, þá verður þar
aðal eldsmaturinn "Evrópubretti" - en á áunum 1960-1965 þá var aðal
eldsmaturinn aflaga snuprunótabátar, sem oftast var fargað með því að
brenna þá um áramót og á þéttandakvöldum. Þessi mynd er tekin um
áramótin 1964-1965
Efst á síðu |
Sunnudagur
26. desember 2004
Aðalbjörg Þórðardóttir
er 54 ára í dag |
|
Sunnudagur
26. desember 2004
Aníta Elefsen
er 17 ára í dag |
Sunnudagur
26. desember 2004
Ægir Eðvaldsson
er 44 ára í dag
Efst á síðu |
|
Laugardagur 25. desember 2004
Ég vona að mér verði fyrirgefið - en ég ákvað að taka daginn
rólega, borða lesa, og vinna í tölvunni - en fara ekki út úr húsi. Enda
væntanlega lítið að frétta, nema að talsvert hefur snjóað, en
ekkert í líkingu við áð sem sagt er frá í Mbl fyrir austan, og lítið
spennandi myndefni í skammdeginu. Það er það sem ég sá í fjöllunum og
við hús mitt, út um gluggann. Hafið það gott - þökk fyrir
allan póstinn sem ég hefi ekki enn gefið mér tíma til að svara
öllum. |
Laugardagur 25. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 3 °C
Norðan
4 - 6 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Laugardagur
25. desember 2004 Ein gömul:
Þessi er tekin í eldhúsinu að Hótel Hvanneyri 19. janúar 1964.
Una Guðmundsdóttir,
Páll Jónsson og Kristín Kristjánsdóttir
Efst á síðu |
Laugardagur
25. desember 2004
Þorsteinn Jóhannesson
er 59 ára í dag |
Laugardagur
25. desember 2004
Eiður Hafþórsson
er 33ja ára í dag |
 Aðfangadagur
jóla 2004
Jólakveðja til
Siglfirðinga
Efst á síðu |
 Aðfangadagur
jóla 2004
Jólakveðja til
Siglfirðinga |
 Aðfangadagur
jóla 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 6 °C
Norðan
6-8 m/s
Snjókoma
Efst á síðu
|
|
Aðfangadagur
jóla 2004
Samkvæmt frétt Morgunblaðsins í morgun féllu tvö snjóflóð
á Siglufjarðarveg við "Miðstrandargil" Flóðið er sagt hafa verið 40-50
metra breytt og 3-4 metrar á hæð. Snjóflóðið hindraði för nokkurra bíla
á leið til Siglufjarðar, en engin hætta stafaði af fyrir fólkið, sem lét
vita af sér á 112 neyðarlínunni, og snjóruðningstæki komu fljótt á
staðinn og kom fólkinu til Siglufjarðar. ---- Samkvæmt
korti Vegagerðarinnar á
http://www3.vegag.is/faerd/nordurl1.html
þá er vegurinn, nú klukkan 11:00 sagður ófær . -En talsverðum snjó hefur
kyngt niðurá Siglufirði í gær, nótt og í morgun. |
|
 _small.JPG) Aðfangadagur
jóla 2004
SR-Byggingavörur - Lukkupotturinn
Dregið var í lukkuleik SR Byggingavara í gærkveldi klukkan
22:00 í votta viðurvist. Fyrst var kassanum snúið og hann hristur
rækilega og síðan sótti stúlkan vinningsmiðana án þess að sjá ofaní
kassann; fyrst var dreginn vinningur númer 5 og svo koll af kolli
og niðurstaðan varð þessi:
-
Vinningur, 28 tommu sjónvarp – María V. Karlsdóttir Suðurgötu 52
- Vinningur, DVD spilari –
Hreiðar Jóhannsson, Hvanneyrarbraut 60
- Vinningur, þráðlaus sími –
Skúli Jóhannsson, Hverfisgötu 6
- Vinningur, veðurstöð – Skúli
Jónsson, Hólavegi 3
- Vinningur, verkjaraklukka með
útvarpi – Elísa Ýr Gylfadóttir Hólavegi 36
|
 Aðfangadagur
jóla 2004
Jólakveðjur til
Siglfirðinga -- og.....................
Efst á síðu |
|
 Aðfangadagur
jóla 2004 Pizzahlaðborð var í gærkveldi í stóra salnum að
Kaffi Torg þar borguðu viðkomandi gestir eitt gjald og gátu svo borðað
eins og þeir gátu torgað af úrvali pizzutegunda. Þetta er sérstaklega
vinsælt á meðal barna og unglinga, sem gjarnar koma með foreldrum sínum.
Efst á síðu |
|
 Aðfangadagur
jóla 2004 Jólasveinarnir sem væntanlegir voru í gær til að
aðstoða KS með jólaundirbúninginn, voru fasti í snjóskafli upp á
Möðrudalsöræfum og var Mark Duffield sendur sem fyrirliði leiðangurs
þeim til hjálpar í gærkveldi og eru þeir væntanlegir til byggða nú með
morgninum, sennilega um 10 leitið. KS stelpurnar 3-4 flokkur kvenna,
beið þeirra á KS skrifstofunni í gær þegar þessi mynd var tekin.
-- Vegna sérstakrar beiðni stráksins á myndinni, skal þess getið að hann
er ekki í kvennaliðinu, hann er bara skotinn í einni þeirra !
Eða var það ekki einhvernvegin þannig?
Efst á síðu |
|
 _small.JPG) _small.JPG) _small.JPG)
Aðfangadagur jóla 2004 "Besta" jólaskreytingin Fulltrúar
Bæjarstjórnarinnar afhentu í gærkveldi viðurkenningu fyrir "bestu"
jólaskreytinguna nú um jólin. Af hálfu fyrirtækja fékk Aðalbúðin
viðurkenningu og íbúarnir við Fossveg 17, fyrir "bestu" skreytingu
íbúðarhúsa. Það var erfitt að velja á milli hús sögðu nefndarmenn, en
þetta var niðurstaðan í ár. |
 Aðfangadagur
jóla 24. desember 2004. Ein gömul:
Kveikt á jólatrénu árið 1964
|
Aðfangadagur
jóla 2004
Sara Lind Þorsteinsdóttir
jólastelpa er 7 ára í dag |
|
 Aðfangadagur
jóla 24. desember 2004.
Efst á síðu
Tvíburarnir Árni Gunnar
Skarphéðinsson og
Guðmundur Þór Skarphéðinsson
eru 38 ára í dag.
(synir Skarphéðins Guðmunds og Margrétar Hallgrímsdóttur) |
Fimmtudagur
23. desember 2004
Símon Gestsson bóndi á Barði
er 60 ára í dag |
|
Fimmtudagur
23. desember 2004
Hinar hefðbundnu Skötuveislur voru haldnar í hádeginu í
dag í Allanum og Kaffi Torg, og verður einnig aftur í kvöld frá 18 - 20
í Allanum.-- Pizzahlaðborð verður um kvöldið í stóra salnum að Kaffi
Torg.
Ég leit inn á báðum stöðum í hádeginu.
Efst á síðu |
|
_small.JPG) Fimmtudagur
23. desember 2004
Það var vel tekið á móti viðskiptavinum Sparisjóðsins í
morgun eins og venjulega, en nú var viðskiptavinum boðið upp á kaffi,
kakó með rjóma tertum og fleira góðgæti, - og svo verður í allan dag.
Þarna voru allir í góðu jólaskapi er ég mætti á staðinn, laust upp úr
klukkan 10:30 |
Fimmtudagur
23. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 10 °C
SA gola
Smá
él
Efst á síðu |
Fimmtudagur
23. desember 2004
Jólakveðja til
Siglfirðinga |
Fimmtudagur
23. desember 2004
Jólakveðja til
Siglfirðinga |
|
Fimmtudagur
23. desember 2004 Sólstöðutónleikar í Bátahúsinu
voru í gærkveldi, þar sem fram komu Hlöðver Sigurðsson tenór og Renata
Íván píanóleikari. Þá var óvænt uppákoma í hléinu er bróðir Hlöðvers;
Þorsteinn Sigurðsson lék og söng nokkur lög, og að auki spiluðu
þeir Sigurður Hlöðversson og Daníel Pétur Daníelsson nokkur jólalög á
trompet á meðan gestir nutu kaffiveitinga og meðlætis -- Um 130-140
manns mættu á hljómleikana, og var þeim Hlöðver og Renátu ákaflega vel
tekið og þau margsinnis klöppuð upp í lokin. Bátahúsið hefur
margsannað sig hvað hljómburð snertir, þannig að gestirnir sem sátu vítt
um salinn nutu vel, auk þess sem umhverfið er stórkostlegt. Ég tók þarna
nokkrar myndir, sem koma í ljós ef þú smellir á myndina til vinstri.
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
23. desember 2004 Ein gömul: Halldóra Bjarnadóttir, - Jónína Sveinsdóttir ljósmóðir og Erna
Rósmundardóttir.
Barnið heitir Helga Kristín Einarsdóttir.
Ljósmynd: Einar Hermannsson
Efst á síðu |
Miðvikudagur
22. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 6 °C
Norðan 12 -15
m/s
Snjókoma
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
22. desember 2004 Karlakór Siglufjarðar undir stjórn
Elíasar Þorvaldssonar var að æfingu í Bátahúsinu í gærkveldi, ásamt
Hlöðver Sigurðssyni sem tók með þeim lagið er mig bar að garði. En
Karlakórinn mun halda Söngskemmtun; Brennið þið vitar í
Bátahúsinu þann 30. desember klukkan 20:30. Hlöðver mun eins og getið er
um hér fyrir neðan
halda Sólstöðutónleika ásamt Renata Íván, í kvöld kl. 20:00
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
22. desember 2004 "Gagnagrunnunin" sem nefndur er
hér aðeins neðar er að fæðast.
Nokkrir hafa nú þegar sett sig á listann. Fyrstu gögnin, það er
viðkomandi síða, verður sett á vefinn strax eftir áramótin.
Efst á síðu |
|
Miðvikudagur
22. desember 2004 Ein gömul:
Hvað er að ske?
Þetta eru Jónmundur Hilmarsson og Gestur Fanndal í einhverskonar átökum,
ekki þó alvarlegum, því það var brugðið á leik í brúðkaupsveislu
Jónmundar 19. janúar 1964
Efst á síðu |
Miðvikudagur
22. desember 2004
Ólafur Björnsson
er 23ja ára í dag |
Miðvikudagur
22. desember 2004
Aðalheiður Jonna Friðfinnsdóttir
er 13 ára í dag |
Miðvikudagur
22. desember 2004
Elín Birna Bjarnadóttir
á afmæli í dag
|
Miðvikudagur
22. desember 2004
Aðalsteinn Oddsson
er 49 ára í dag
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
21. desember 2004
Sólstöðutónleikar í Bátahúsinu, verða á
miðvikudaginn 22. desember klukkan 20:00. Hlöðver
Sigurðsson, tenór og Renata Íván, píanó. Á efnisskrá eru Íslensk og
erlend sönglög og jólalög. Létt jólastemming, heitt á könnunni. Verður
uppákoma í hléinu? Aðgangseyrir kr 1000
Efst á síðu |
Þriðjudagur
21. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 1 °C
Norðan andvari
Úrkomulaust - ísþoka til fjalla austan og sunnan fjarðar
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
21. desember 2004 Mjölskipið Trinket, var í morgun
að lesta loðnumjöl frá Síldarvinnslunni á Siglufirðir, alls munu fara um
borð um 800 tonn af gæðamjöli..
Efst á síðu |
Þriðjudagur
21. desember 2004
Nýjar Jólakveðjur til
Siglfirðinga.................
Efst á síðu |
Þriðjudagur
21. desember 2004 Ein gömul:
Stefán Friðriksson og Erlendur Magnússon Siglunesi
Efst á síðu |
Þriðjudagur
21. desember 2004
Svava Gunnarsdóttir
er 45 ára í dag
(Búsett í Vestmannaeyjum) |
|
Þriðjudagur
21. desember 2004
Þórarinn Hannesson trúbardór
er 40 ára í dag |
Þriðjudagur
21. desember 2004
Kolbrún Símonardóttir
er 59 ára í dag
Efst á síðu |
Mánudagur
20. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 0 °C
SA 6 - 8 m/s
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Mánudagur 20. desember 2004
Aðsent: Þær eru vart mjög margar kaupstaðarkonurnar sem
standa í því að baka flatbrauð. En ein af þeim er Sólveig Halla
Kjartansdóttir (þessi í hvítu blússunni) og er að því að
Hvanneyrarbrautar 60 á Siglufirði.
Með henni fylgist Berta Jóhannsdóttir hrifin af framtaki hennar.
S.Þ.
Efst á síðu |
|
Mánudagur
20. desember 2004 Ein gömul: Glatt á hjalla, á
skólaskemmtun Gagnfræðaskólans (?) í Nýja Bíó, í desember 1964
Efst á síðu |
Mánudagur
20. desember 2004
Líney Bogadóttir
er 82ja ára í dag |
Mánudagur 20. desember 2004
Rósa Magnúsdóttir
er 80 ára í dag
Efst á síðu |
Sunnudagur
19. desember 2004
Jólaball Siglfirðingafélagsins
Smelltu á myndina, til að fara á síðu Siglfirðingafélagsins, -
eða tengilinn til vinstri undir "Lífið a Sigló".
Efst á síðu |
Sunnudagur
19. desember 2004
Veðrið í hádeginu:
Hitastig - 4 °C
Logn
Úrkomulaust
Efst á síðu |
|
Sunnudagur
19. desember 2004 Logn og blíða var á Sigló klukkan
10:30 í morgun í ljósaskiptunum, er þessi mynd var tekin.
Efst á síðu |
|
Sunnudagur 19. desember 2004
Aðsend hugmynd: Til mín hefur borist hugmynd í tölvupósti,
sem mér finnst ekki svo galin, raunar hefur þetta áður verið nefnt við
mig, en það var í jákvæðri umræðu úti á vinnustað, en hvarf svo úr minni
mínu.
Hugmyndin felur í sér beiðni um að ég komi upp gagnagrunni á
vef mínum um Siglfirðinga, öðruvísi "símaskrá eða netfangaskrá" þar sem tekin verði
fyrir nöfn einstaklinga, símar, netföng, heimilisfang og mynd af
viðkomandi.
Jafnvel mætti koma þar fyrir í viðkomandi reit, nafni maka og
barna og etv. einhverjum öðrum vísbendingum sem viðkomandi vill koma á
framfæri, ásamt ljósmyndum af fjölskyldunni.
Nú þegar, eru flestar þessar upplýsingar til í netfangaskrám
á síðu minni, en "hugmyndin" myndi gera skrána líflegri og betur
leiðbeinandi.
Þetta er að sjálfsögðu ekki hægt
nema með samþykki hlutaðeiganda, annað er bannað í lögum. Gaman væri að
fá viðbrögð frá lesendum síðu minnar um þessa hugmynd, og fer það að
sjálfsögðu eftir áhuga fólks hvort þessu verður ýtt úr vör.
Þeir sem eru nú þegar skráðir hér með netfang;
hugsið málið.
Sendið mér
tölvupóst S.K.
Efst á síðu |
Sunnudagur 19. desember 2004
Ein gömul: Spennandi lesefni
Tekið í Bókasafninu 16. nóvember 1964
Efst á síðu |
Sunnudagur 19. desember 2004
Sarbína Lind Adolfsdóttir
er 8 ára í dag
|
Sunnudagur 19. desember 2004
Sigurbjörg Elíasdóttir
er 43ja ára í dag
Efst á síðu |
Sunnudagur 19. desember 2004
Þóra Frímannsdóttir
er 83ja ára í dag |
Sunnudagur 19. desember 2004
Björg Kara Elefsen
(dóttir Elvu og Hilmars)
er 10 ára í dag
Efst á síðu |