Þetta er mynd af tvíburunum hennar Rutar. Þau fæddust á Landspítalanum í Reykjarvík 18-10-2004 Stelpan kom á undan og var 3714gr og 52cm og strákurinn 2mín. á eftir og var 3340gr og 50cm. Foreldrarnir eru Rut Guðbrandsdóttir (dóttir Gaua Gústa og Gunnjónu) og Magnús Sigþórsson.
Þessi stúlka fæddist á Landeskrankenhaus í Salzburg þann 13. október 2004.- Hún var 13 merkur og 48 cm, foreldrar Hlöðver Sigurðsson og Berglind Ýr Birkisdóttir.
Bjarni Þór Sigurðsson, hann fæddist 22.ágúst 2004 -- Hann er sonur Huldu Magnúsdóttur og Sigurðar Páls Sigurðssonar -- Hulda er dóttir Magnúsar Eiríkssonar og Guðrúnar Pálsdóttur.
Þessi litli snáði kom í heiminn 5.október kl 06:40 2004 Faðir hans Ingvar Már Lésson og móðir hans er Arna Rut Gunnlaugsdóttir (dóttir Gulla Sínu) og hann var 12 merkur og 50 cm og er 100% Siglfirðingur.
Þessi fallegi drengur fæddist 8 ágúst á landspítalanum við Hringbraut, hann fæddist 13 merkur og 50 cm. Foreldrar eru Siglirðingarnir Bragi Birgisson og Guðlaug Þórhallsdóttir
Þessi drengur fæddist 20.ágúst.2004 - Hann var 3920 gr og 52 cm. Foreldrar hans eru Siglfirðingarnir. Hilmar Þór Hreiðarsson og Sigríður Ósk Salmannsdóttir.
Þessi drengur fæddist klukkan 08:03 þann 17 júní sl. Hann var 16 merkur og 56 cm á lengd. Foreldrar hans eru Jónas Halldór Sigurðsson og Kristín Ósk Ragnarsdóttir.
Þessi fallega stelpa fæddist kl. 20:11 á F.S.A. í gær 17.07.04 Foreldrar eru Agnar Sveinssson og Telma Birkisdóttir. Hún var 12 merkur og 48 cm.
Þessi litla fallega dama sem fengið hefur nafnið Steinunn Vala Víðsdóttir, fæddist á landspítalanum 11.júlí og vó 15.merkur og 52cm. -- Hún er dóttir þeirra Víðis Venna (Venna og Huldu) og Máneyjar (Steinars og Völu).
Lítil prinsessa fæddist á sjúkrahúsinu á Neskaupstað þann 2. maí 2004. Foreldrar eru Hafdís Heiða Hall og Jóhannes Már Dagbjartsson. Hún heitir Natalía Guðrún og var 12 merkur og 51 cm. Stóri bróðir heitir Dagbjartur Már.
Guðrún Viktoría Ólafsdóttir fæddist 01.júní sl. klukkan 13:53. Hún var 13 merkur og 50 cm. Foreldrar hennar eru Elva Dögg Sverrisdóttir (Sverrir Óla) og Ólafur Viggó Sigurðsson
Drengur, sem fæddist á Akureyri þann 25.05.2004 hann var 15,5 mörk og 53 cm. Foreldrar hans eru Valdís Guðbrandsdóttir og Jón Már Jónasson.
Þann 8. júní fæddist lítill Siglfirðingur, 14 merkur og 53 sm í Reykjavík. - Foreldrar eru Hilmar Þór Elefsen og Inga Lára Reimarsdóttir
Amalía Þórarinsdóttir, fæddist 6. apríl 2004, hún var við fæðingu 20 merkur og 58 sentimetrar. Foreldrar eru Kristín Anna Guðmundsdóttir og Þórarinn Hannesson
Drengur Láreyjar Valbjörnsdóttir og Baldur Þórs Baldurssonarí faðmi ömmu sinnar Álfhildar R. Halldórsdóttir Hann fæddist 4. maí kl.13:00 2004 og var 52,5 sm. og 3470 gr.
Hér er mynd af nýfæddri dóttur minni hún heitir Berglind Rós og fæddist í Rvk 13. apríl 2004. Hún var 12 merkur og 50 cm. Með henni á myndinni eru systkyni hennar Daníel Ágúst og Stefanía Lilja. Foreldrar þeirra eru Árný Eggertsdóttir og Birgir Þórisson.
Þessi drengur fæddist á Sjúkrahúsinu á Siglufirði miðvikudaginn 21. apríl. Hann var 18 merkur og 54cm. við fæðingu. Foreldrar eru; Róbert Haraldsson og Rósa Dögg Ómarsdóttir
Hlynur Orri Sveinsson, fæddur: 19. apríl 2004, 16 merkur 52 cm, foreldrar Sigrún Ásta Gunnlaugsdóttir og Sveinn Ingi Sveinsson
Helga Magnúsdóttir og Tony Van Tonder eignuðust þennan dreng á landsspítalanum 10 mars sl. Hann var 17 merkur og 55.5 cm langur. Helga sem heldur þarna á syni sínum, er dóttir Dagmar Elíasdóttur og Magnúsar Ásmundssonar.
Sonur Guðnýar Erlu Fanndal og Magnúsar Þórðarsonar, fæddur 24.mars 2004 í Reykjavík.
Í gærmorgun 21/3 kl. 10 fæddist ung siglufjarðarmær á sjúkrahúsinu á Akureyri hún er dóttir Sigurðar Óla (Svenna Alla og Sigrúnar) og Huldu Maríu Vilhelmsdóttir
Sigþór Ingi Heiðarsson með nýfædda dóttur sína. Þessi unga dama fæddist á Akranesi 7.mars 2004 kl.17:00 og var 3570gr að þyngd og 51cm að lengd. Foreldrar eru Helga Hallfríður Stefánsdóttir og Sigþór Ingi Hreiðarsson (sonur Hreiðars og Möggu).
Nýfæddur Siglfirðingi, sem er sonarsonur,Siggga Rikka og Lóu þ.e. óskírður sonur Hákonar Sigurðssonar. Hann fæddist 14. mars síðastliðinn í Reykjavík og var 18 merkur að þyngd og 54cm á lengd. Á myndinni er stolt amma (Lóa) með barnabarnið.
Í morgun 21. febrúar klukkan 8:38 fæddist stúlka hér á Siglufirði, og eiga þau Rut (Hilmarsdóttir, í Siglósport) og Sindri Guðnason, sonur Guðna Sveins löggu) Það er að sjálfsögðu þessi litla, - ég fékk ekki nafnið á stráknum sem heldur á stúlkunni(?)
Síðbúin myndsending. Litli snáðinn á myndinni heitir Friðrik Árni Grímsson "nýfæddur" Siglfirðingur - Olga Björk Friðriksdóttir (Sillýjar og Rikka) og Grímur Jónsson eiga hann, en hann fæddist 24 júlí 2003 - Hnátan við hlið hans er Stefanía Lilja (dóttir Árnýjar Eggertsdóttur)
Þessi kom í heiminn 2. febrúar sl. Foreldrar: Mikael Þór Björnsson og Sólrún Guðfinna Rafnsdóttir. Það er stoltur faðir sem á drengnum heldur.
Þessi Siglfirski snáði kom í heimnn 5. janúar 2004, hann var 16 merkur - 3965 grömm - og 51 sentimeter við fæðingu. Foreldrar hans eru Elín E Hreggviðsdóttir og Ásmundur Einarsson.
Emil Hrafn Ómarsson, hann er fæddur 22.desember 2003 - 19,2 merkur - 4800gr 58cm. Foreldrar Linda María Ásgeirsdóttir og Ómar Hlynsson
Hér kemur mynd af nýjum Siglfirðingi, hann heitir Mikael Sigurðsson. Hann fæddist þann 11. janúar á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Hann var 15 merkur og 52 sm. Foreldrar hans eru Arnheiður Jónsdóttir og Sigurður Ægisson.
Hér er mynd af nýjasta meðlimi í fjölskyldu Heimis Birgissonar og Katrínar Freysdóttur. Hún fæddist að vísu á fyrra ári, 19. desember 2003, á sjúkrahúsinu á Akureyri, en flýtur hér með (2004) Hún var 13,5 merkur og 50 cm við fæðingu.