|
Úthlutun byggðakvóta á
Siglufirði 2005.
Bæjarstjórn Siglufjarðar auglýsir hér með eftir umsóknum um
byggðakvóta á Siglufirði fiskveiðiárið 2004/2005. Við úthlutun verður
farið eftir neðangreindum reglum sem staðfestar hafa verið af
Sjávarútvegsráðuneytinu. Skv. reglugerð nr. 596/2003 um úthlutun
byggðakvóta er það Sjávarútvegsráðuneytið sem úthlutar byggðakvóta en
viðkomandi sveitarfélagi er heimilt að gera tillögu að úthlutun.
REGLUR VARÐANDI ÚTHLUTUN BYGGÐAKVÓTA Á SIGLUFIRÐI
FISKVEIÐIÁRIÐ 2004/2005
Megintilgangur reglnanna skal vera að
auka útgerð og vinnslu á fiski á Siglufirði og fjölga störfum.
1. Veiðiheimildum
samkvæmt bréfi Sjávarútvegsráðuneytisins frá 6. desember 2004 skal
úthlutað til einstakra aflamarksskipa og krókaaflamarksbáta, sem leggja
upp afla sinn til vinnslu hjá fiskverkunarstöðvum á Siglufirði, samkvæmt
nánara samkomulagi. Eingöngu skulu fiskiskip sem skráð eru á Siglufirði
31.12.2004 koma til greina við úthlutun aflaheimilda. Ekkert fiskiskip
skal hljóta meira en 15 þorskígildislestir með þeirri undantekningu er
fram kemur í reglu 2.1. Eftirstöðvum vegna 15 tonna ákvæðis skal skipta
á milli fiskiskipa á grundvelli greinar 2.2.b.
Ef bolfiskaflamark skips hefur minnkað
frá úthlutun fiskveiðiársins 2004/2005 til 31.desember 2004 vegna
framsals þá kemur það skip aðeins til greina við skiptingu 10% hlutarins
sbr. c-lið 2.2. gr.
Þeir aðilar sem fengu úthlutað
byggðakvóta á síðasta fiskveiðiári og hafa ekki fylgt þágildandi reglum
varðandi ráðstöfun byggðakvóta skulu ekki koma til greina við úthlutun
nú.
2. Byggðakvóta verður skipt þannig
milli þeirra fiskiskipa er sækja um og
fullnægja skilyrðum:
2.1. 50
þorskígildistonn skulu skiptast milli skipa sem landað hafa úthafsrækju
til vinnslu á Siglufirði á árinu 2004 í hlutfalli landaðs rækjuafla
þeirra þar.
2.2. Eftirstöðvum, 155
þorskígildistonnum skal skipt sem hér segir:
a). 20%
skal skipt jafnt á milli fiskiskipa, þó þannig að ekkert skip auki
úthlutaðan kvóta um meira en 100%.
b). 70%
skal skipt á grundvelli úthlutunar veiðiheimilda í upphafi
fiskveiðiársins 2004/2005.
c). 10%
byggðakvóta verður úthlutað í mars 2005. Um þann hluta geta sótt um
fiskiskip sem ekki fá úthlutað byggðakvóta skv. reglum þessum og
uppfylla ekki skilyrði um framsal sbr. 2.málsgr. reglu 1.
d). Ef
útgerðaraðili hefur ekki lögheimili á Siglufirði þann 31. desember 2004
skal úthlutun til viðkomandi fiskiskips skerðast um 50%. Eftirstöðvum
vegna þessa ákvæðis skal skipta jafnt á milli fiskiskipa.
3. Öllum aðilum á Siglufirði sem
úthlutað er byggðakvóta er skylt að leggja til aflaheimildir að
lágmarki til jafns við úthlutaðan byggðakvóta og skoðast móttekin umsókn
sem staðfesting viðkomandi á því að það verði gert. Skilyrði til
úthlutunar byggðakvóta er að viðkomandi eigi ekki í vanskilum við
Siglufjarðarkaupstað.
4. Þeir aðilar sem úthlutað er
byggðakvóta skulu leggja fram gagnkvæman samning við fiskvinnslu um
löndun afla og vinnslu á Siglufirði. Öllum afla samkvæmt þessari grein
skal landað fyrir lok fiskveiðiárs.
5. Úthlutaður byggðakvóti er ekki
framseljanlegur en heimilt er að skipta á milli tegunda. Minnki
aflaheimildir fiskiskips sem hlýtur byggðakvóta á yfirstandandi
fiskveiðiári vegna framsals skulu þær afsala sér sambærilegu magni af
byggðakvótanum, sem úthlutað verður að nýju.
6. Í lok fiskveiðiárs skulu útgerðir
og fiskverkanir, sem fengið hafa byggðakvóta skila til sveitastjórnar
skýrslu um landaðan afla til vinnslu í samningsbundnum
fiskverkunarfyrirtækjum eða mótteknum afla frá útgerðum og skal skýrslan
staðfest af viðkomandi samningsaðila. Verði skýrslu ekki skilað eða
ákvæðum þessara reglna um löndun og vinnslu afla ekki fylgt skulu
viðkomandi bátar og fiskverkanir ekki eiga rétt á úthlutun byggðakvóta
komi til slíkrar úthlutunar.
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00
þann 14. febrúar n.k. og ber að skila umsóknum fyrir þann tíma á
bæjarskrifstofu. Umsóknum skal fylgja staðfesting á skráningu
viðkomandi fiskiskips, kvótastöðu og annað er nauðsynlegt er skv.
ofangreindum reglum. Nánari upplýsingar eru gefnar af bæjar – og
skrifstofustjóra.
Siglufjarðarkaupstaður. |