_small.JPG) |
Laugardagur 5. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -3 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust |
10:48 |
|
|
Laugardagur 5. febrúar 2005
Skíðasvæðið í Skarðsdal. Nægur snjór er þar nú sem hingað
til frá því að svæðið var opnað. Hlákan í síðustu viku hafði lítil áhrif
á svæðinu og nú er þar nýfallinn snjór síðan í gær- og um 3ja °C frost
þar uppi í morgun og sunnan andvari. Sólin var að gægjast yfir
fjallahringinn í morgun klukkan 10:40 er þessi mynd var tekin. |
|
Laugardagur 5. febrúar 2005
Fundur með þingmönnum Frjálslynda flokksins var haldinn í
gærkveldi í Allanum. Þar voru mættir Guðjón Arnar Kristjánsson sem var
með framsögu á fundinum, og Sigurjón Þórðarson. Um 15-20 manns mættu á
fundinn, sem var all fjörugur. Var látið vel af framsögu Guðjóns,
sérstaklega fannst mér góðar hugmyndir hans um lagfæringar á sukkinu
í kring um kerfið um lífeyri aldraðra, þar sem þjóðinni er skipt í þrjá
flokka; þá eignalausu, meðalríku og moldríku þar sem hinir fátækari
búa við annað og verra kerfi en þeir ríku (undirstrikað, eru mín orð
hér á síðunni) en um þetta fjallaði Guðjón meðal margs annars
athygliverðs, en Sigurjón talaði að mestu um kódakerfið, fiskimælingar
og vernd og sukkið þar í kring.
|
|
Laugardagur 5. febrúar 2005
Í gær fór fram kynning á "nýrri tækni" á sviði sjónvarpa og
tengdum tækjum hjá SR-Byggingavörur. En þar voru kynnt af tæknimanni frá
Samsung Electronics ýmis búnaður til margmiðlunar sem fyrirtækið
framleiðir. En nú árið 2005 er hafin samsvarandi bylting á
sjónvarpsviðinu og var á sviði útvarpsins fyrir um 50 árum þegar "transistorarnir"
byrjuðu fyrir alvöru að ryðja burtu radíólömpunum og minnka umfang og
fyrirferð útvarpstækjanna, allt að því sem við þekkjum í dag; agnarsmá.
Nú er það LCD og Plasmaskjáir sjónvarpanna sem koma í stað gömlu og
níðþungu sjónvarpsmyndlampanna, sem smátt og smátt eru að hverfa af
markaði. Sá sem veltir fyrir sjónvarpskaupum í dag ætti ekki að kaupa
gömlu tæknina. |
|
Laugardagur
5. febrúar 2005 Tveggja manna tal iðnaðarmanna, Birgir
Guðlaugsson byggingameistari og Helgi Magnússon pípulagningarmeistari,
fyrir frama Rafbæ, eftir hádegið í gær. |
Laugardagur
5. febrúar 2005 Ein gömul: Miðbær Siglufjarðar 198?
Tekið með 400mm linsu, frá Skollaskál. |
|
Föstudagur
4. febrúar 2005
Aðalgata 34 Siglufirði hefur til langs tíma verið
þekktasta, og raunar eina skrifstofubyggingin hér, þar sem margar
skrifstofur frá mörgum fyrirtækjum hafa verið til húsa í. Í dag eru
skrifstofurnar ekki eins margar og á tímum Síldarævintýrsins, en fyrir
utan Íslandabanka sem notar meirihluta skrifstofuhúsnæðisins í dag eru
þar enn nokkur fyrirtæki með skrifstofur. Ég heimsótti nokkrar þeirra
sem voru með opið í dag.
Starfsfólk Íslandbanka voru þó ekki með að þessu sinni.
 |
|
Föstudagur
4. febrúar 2005
Það snjóaði örlítið í nótt, götur voru auðar í gær, en
mokaðar í morgun. Ekki vegna þess að þær væru ófærar, heldur vegna þess
að bæjarkarlarnir eru vanir að gera "hreint fyrir sínum dyrum" og gera
jafnt ökumönnum sem gangandi auðveldar að komast leiðar sinnar. Þarna er
eitt tæki bæjarins við Hafnartún. |
_small.JPG) |
Föstudagur 4. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig -4 °C
Norðan 8 - 10 m/s
Él til fjalla |
10:41 |
|
|
Föstudagur 4. febrúar 2005
Á DÖFINNI: Söngtónleikunum sem
áttu að vera í
dag klukkan 18:00 - er frestað vegna veikinda. |
Föstudagur 4. febrúar 2005
Athygliverðar
upplýsingar (erlendar) um
Siglufjörð, "fjöður í hnappagatið?"
Efst á síðu |
|
Föstudagur
4. febrúar 2005
Ein gömul: 23. janúar 1966. Jarðýta bæjarins var
notuð til að drag stórann sleða frá Hafnarbryggjunni, með mjólk og
fleiri vörur sem komu til Kaupfélagsins og fleiri verslana, með Drang.
En allar götur voru ófærar bílum. Jarðýtan sem notuð var við snjómokstur
hafði ekki undan í stórhríðinni sem verið hafði síðustu dagana, auk þess
sem ýtan var notuð sem dráttarvél með ýmsan varning hingað og þangað.
Efst á síðu |
Föstudagur
4. febrúar 2005
Þórður Birgisson
er 22ja ára í dag |
Efst á síðu |
Föstudagur
4. febrúar 2005
Eva Karlotta Einarsdóttir
er 25 ára í dag |
Föstudagur
4. febrúar 2005
Kolbrún Marvia Passaro
er 25 ára í dag -(í appelsínugula bolnum), ásamt
vinkonum sínum frá sigló:-) |
Föstudagur
4. febrúar 2005
Guðmundur Árnason
er 76 ára í dag |
Föstudagur
4. febrúar 2005
Adolf Árnason
er 41 árs í dag
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Fimmtudagur 3. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 2 °C
Sunnan andvari
Úrkomulaust |
11:07 |
|
|
Fimmtudagur
3. febrúar 2005 Efnalaugin Lind ehf - Opnaði aftur í
gær, eftir að hafa flutt sig um set frá Lækjargötunni yfir í Aðalgötu
21, sem er talsvert stærra og þægilegra húsnæði, og ný uppgert. Þær
stöllur, eigendurnir Lilja Ástvaldsdóttir og Ragna Hannesdóttir hafa
einnig aukið við vélakost og aukið þjónustusvið sitt á ýmsan máta. Meðal
annars hafa þær gert samning við Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar um
allan þvott frá stofnunni, sem þær munu sinna frá og með miðjum þessa
mánaðar.
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
3. febrúar 2005 Ein gömul: Hrafnhildur
Stefánsdóttir, Elín Gestsdóttir og Birgir Björnsson. Þarna stödd við
vígslu nýs frystihúss Þormóðs Ramma árið 1975
Efst á síðu |
|
Fimmtudagur
3. febrúar 2005
Hafsteinn Hólm Þorleifsson
er 70 ára í dag |
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Miðvikudagur 2. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 7 °C
Sunnan 10 - 12 m/s
Rigning "skúrir" |
11:00 |
|
|
Miðvikudagur
2. febrúar 2005
Úthlutun byggðakvóta á Siglufirði 2005.
Bæjarstjórn Siglufjarðar auglýsir eftir umsóknum um
byggðakvóta á Siglufirði fiskveiðiárið 2004/2005.
Nánar um það hér
Efst á síðu |
Miðvikudagur
2. febrúar 2005 Ein gömul:
198?
Efst á síðu |
Miðvikudagur
2. febrúar 2005
Guðný Erla Fanndal
er 34 ára í dag |
Miðvikudagur 2. febrúar 2005
Viktor Daði Sævaldsson
er 8 ára í dag
Hann heldur með Man United og er því í
tvöfalt góðu skapi í dag!
Efst á síðu |
_small.JPG) |
Þriðjudagur 1. febrúar 2005
Veðrið í hádeginu:
Hitastig 8 °C
Sunnan 6 - 8 m/s
Úrkomulaust |
10:33 |
|
|
Þriðjudagur 1. febrúar 2005
Ný talstöð í Slysavarnarskýlið í Héðinsfirði var afhent
síðastliðinn laugardag í Stjórnstöð Björgunarsveitarinnar Strákar á
Siglufirði. Þetta er fullkomin neyðartalstöð, með sólarrafhlöðubúnaði
til hleðslu orkugjafans, innbyggðri rafhlöðu. -
Þetta er dýr búnaður, en Ljósmyndavöruverslunin
BECO og
Radíóþjónusta Sigga
Harðar gáfu stóran
hluta andvirðis búnaðarins. Ég tók nokkrar myndir við þetta tækifæri,
ásamt myndum tengdum skyndihjálparnámskeiði sem stóð yfir hjá sveitinni,
á "sama" tíma.
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur 1. febrúar 2005
Skyndihjálparnámskeið, sem Elín Arnardóttir sá um.
Myndir voru teknar við þetta tækifæri, jafnhliða afhendingu
talstöðvabúnaðar.
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur 1. febrúar 2005
Slysavarnarskýlið í Héðinsfirði . - Í tengslum við frásögninni
hér fyrir ofan af "Björgunarsveitinni" þá er hér myndasería frá árinu
1966, þegar Slysavarnarskýlið í Héðinsfirði var reist.
Efst á síðu |
|
Þriðjudagur
1. febrúar 2005 Ein gömul:
Ómar Hauksson bókari - Viðar Ottesen hótelstjóri - Ólafur
Jóhannsson lögregluþjónn. Á hvað ætli þeir séu að horfa? (ég veit
það)
(Ómar gefur mér að vísu hornauga)
Efst á síðu |
Þriðjudagur
1. febrúar 2005
Bryndís Jónsdóttir
er 91 árs í dag |
Þriðjudagur 1. febrúar 2005
Efst á síðu |